Morgunblaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2020
Löggiltur heyrnarfræðingur
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Hljóðmagnarar
Hljóðmagnari hentar vel þeim sem
þurfa að heyra betur og er einfaldur í
notkun. Þægilegt samskiptatæki. Með
margmiðlunarstreymi tengist hann
þráðlaust við sjónvarp og önnur tæki.
Vekjaraklukka
fyrir þá sem sofa fast eða heyra illa
Að vakna á réttum tíma hefur aldrei
verið auðveldara
Vekur með ljósi, hjóði og/eða tirtingi
svo að maður þarf ekki að sofa yfir sig.
Verð frá
kr. 19.800
Verð frá
kr. 58.800
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér hefur tekist að vekja athygli á
þér og þínum málstað. Sveigjanleiki og
ákveðni eru kjörorð dagsins sem og alla
daga.
20. apríl - 20. maí
Naut Að kjósa peninga eða hluti fram yfir
fólk veit aldrei á gott. Leggðu þig fram um
að gera þær breytingar sem þú vilt sjá í lífi
þínu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þið hafið ráð undir rifi hverju og
getið komið ýmsu í verk ef þið leggið ykkur
fram um að leita.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Reyndu ekki að þröngva óraunhæf-
um hugmyndum þínum upp á vini og
vandamenn. Vertu vakandi fyrir utan-
aðkomandi áhrifum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú þarft þú að taka á honum stóra
þínum og standa af þér stormviðri um
stundarsakir. Allt er gott í hófi.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú gætir lent í deilum um skiptingu
á eignum. Þú ert góður vinur og það vita
þeir sem hafa leitað til þín. Haltu því áfram.
23. sept. - 22. okt.
Vog Oft er það svo að samferðamenn okkar
setja upp grímu til þess að halda okkur frá
tilfinningum sínum. Ef þú sérð færi á að
komast undir grímuna gerðu það þá.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Reyndu að forðast rifrildi, það
er ekki til neins. Réttu fram sáttarhönd og
sjáðu hvað gerist. Einhver reynir að ná til
þín en þú tekur ekki eftir því.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Sköpunarmætti þínum er best
beint að því sem þú gerir vel nú þegar.
Reyndu að borða minna af skyndibitamat
og meira af ávöxtum og grænmeti.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þar sem þú ert alltaf svo nær-
gætin/n, gæti það valdið vissum aðilum
sársauka ef þú ætlar að vera hispurslaus.
Ekki stressa þig, leyfðu örlögunum að sjá
um sitt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ekki er allt gull sem glóir og hin
sönnu auðæfi eru ekki fólgin í gulli eða gim-
steinum. Passaðu þig á að reyna ekki að
gera öllum til geðs, enginn getur þjónað
tveimur herrum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Notaðu tækifærið á meðan kraft-
urinn er til staðar og komdu eins miklu í
verk og þú mögulega getur.
A
xel Sæland fæddist 30.
desember í Reykholti í
Biskupstungum.
„Reykholt var nafli al-
heimsins hjá mér öll
mín fyrstu ár. Ég gekk í grunn-
skólann þar og var byrjaður að
taka virkan þátt í garðyrkjustöð-
inni strax þegar ég var átta ára.
Síðan var holtið og hitaveituskurð-
irnir í uppáhaldi hjá mér og vinum
mínum. Þar gerðust ævintýrin og
þá sérstaklega á veturna þegar
fennti yfir skurðina og við gátum
grafið okkur inn í þá og fundið ís-
hella.“
Axel segist hafa haft mikinn
áhuga á íþróttum en það hafi verið
erfitt að sérhæfa sig í einni grein
þar sem einungis var ein æfing í
boði á viku í hverri grein. „Því má
segja að maður hafi verið sæmileg-
ur í öllum íþróttum. Skólastjórinn
okkar, Unnar Þór Böðvarsson, kom
samt skák- og borðtennisáhuga á
hærra plan þar sem við gátum
stundað það allar frímínútur og
fengið kennslu í því á skólatíma.
Árangurinn var eftir því þar sem
við náðum 3. sæti á grunnskólamóti
Suðurlands á yngra stigi og þar var
ég valinn bestur á 4. borði. Árið
eftir var ég á fyrsta borði og okkar
sveit vann grunnskólamótið á
yngra stigi. Borðtennisáhuginn í
skólanum varð slíkur að Umf. Bisk.
vann HSK-mótin mörg ár í röð og
ég ásamt mörgum öðrum í skól-
anum var farinn að sækja æfingar
til Reykjavíkur og æfa með ung-
lingalandsliðinu.“
Eftir grunnskólann fór Axel í
Menntaskólann á Laugarvatni.
„Laugarvatn varð mitt annað heim-
ili næstu árin þar sem ég ákvað að
fara í Íþróttakennaraskólann á
Laugarvatni þegar ég kláraði
menntaskólann, en tók mér þó eins
árs pásu frá námi á milli og vann
við smíðar. Þarna eignaðist ég
mína eilífðarvini og við erum fjórir
úr menntaskólaárganginum sem
erum í miklu sambandi.“
Axel vann mestmegnis á garð-
yrkjustöðinni heima á sumrin, en
prófaði þó siglingar niður Hvítá hjá
Bátafólkinu, smíði hjá Biskverk og
ekki síst að þjálfa íþróttir, fótbolta
og frjálsar hjá Umf. Bisk. „Síðasta
árið í íþróttakennaraskólanum
keyrði ég á milli Reykholts og
Laugarvatns, en þá sinnti ég mest-
allri þjálfuninni hjá Umf. Bisk.“
Eftir námið, árið 2004, flutti Axel
til Reykjavíkur og starfaði á leik-
skólanum Efstahjalla í Kópavogi.
Þar hitti hann aftur eiginkonu sína,
Heiðu Pálrúnu, en hún hafði flust
frá Dalvík til að læra hjúkrun. „Ég
kynntist henni fyrst árið 2002 á
Þjóðhátíð í Eyjum, en svo þarna
fjórum árum seinna förum við að
senda hvort öðru sms og ákváðum
síðan að fara á „deit“. Það var
reyndar mjög fyndið að við vorum
búin að ákveða dag, en föttuðum
síðan bæði sitt í hvoru lagi að það
var valentínusardagurinn, og
fannst það kannski fullmikið fyrir
fyrsta stefnumótið, en við hittumst
og upp frá því höfum við verið sam-
an.“
Árið 2006 voru heimahagarnir
farnir að kalla og Axel og Heiða
ákváðu að flytja í Reykholt. „Þar
sem Heiða hafði starfað í björg-
unarsveit frá unga aldri var það
eitt af okkur fyrstu verkum heima
að stofna sameiginlega unglinga-
deild í Björgunarsveitinni Biskupi
ásamt Smára Stefánssyni í Björg-
unarsveitinni Ingunni. Þetta tókst
alveg ótrúlega vel og við vorum
með 30 krakka víðs vegar úr sveit-
unum og þetta var virkilega gef-
andi og skemmtilegt starf.“
Axel tók einnig sæti í skólanefnd
sveitarfélagsins og var þar í 13 ár.
Hann hefur verið virkur í sveitar-
stjórnarmálum og situr í sveitar-
stjórn Bláskógabyggðar í dag.
„Samfélagið hérna er lítið og manni
er ekkert alveg sama hvernig það
þróast og stýrist. Sveitarstjórnin
hér hefur unnið mjög vel saman og
afskaplega gott að vera þar inni.“
Fjölskyldan og garðyrkjan hafa
átt hug Axels alveg síðan þau fluttu
heim og hjónin reka garðyrkjustöð-
ina Espiflöt ásamt foreldrum hans.
Árið 2014 fór Axel í garðyrkjuskól-
ann á Reykjum í Ölfusi og útskrif-
aðist sem garðyrkjufræðingur af
ylræktarbraut vorið 2016.
Garðyrkjustöðin Espiflöt var
stofnuð árið 1948 af afa og ömmu
Axel Sæland blómabóndi á garðyrkjustöðinni Espiflöt – 40 ára
Fjölskyldan Hér er fínasta sjálfa af fjölskyldunni á Espiflöt. Frá vinstri:
Heiða, Axel, Auðunn Torfi, Lilja Björk, Adda Sóley og Áki Hlynur.
Fóru á stefnumót á valentínusardaginn
Blómaræktunin Espiflöt ræktar yfir tvær og hálfa milljón blóma á ári fyrir
íslenskan markað á 8.000 fermetrum og mikill vöxtur er í greininni.
Til hamingju með daginn
30 ára Ágúst Ingi ólst
upp í Hafnarfirði og er
Hafnfirðingur í húð og
hár. Hann er bílasmiður
hjá H. Jónssyni á
Smiðshöfða. Helstu
áhugamál hans eru allt
sem viðkemur bílum,
hestamennska og íþróttir.
Maki: Karen Björk Wiencke, f. 1993, ljós-
myndari, en vinnur núna hjá Fé-
lagsþjónustu Hafnarfjarðar.
Börn: Gabríella Þóra Samúelsdóttir, f.
2012 og Alexander Jökull Flygenring, f.
2019.
Foreldrar: Hildur Guðfinnsdóttir, f. 1961,
vinnur í Héraðsdómi Reykjaness, og
Magnús Flygenring, f. 1952, atvinnubíl-
stjóri.
Ágúst Ingi
Flygenring
30 ára Anna Lilja
ólst upp á Sauðár-
króki en býr núna í
Lýtingsstaðahreppi í
Skagafirði. Anna Lilja
er hársnyrtimeistari
en er í fæðingarorlofi
eins og er. Helstu
áhugamál hennar eru fjölskyldan, tón-
list og söngur, en hún syngur í kór.
Maki: Finnur Sigurðarson, f. 1988,
starfar við ferðaþjónustu.
Börn: Brynmar Sölvi, f. 2014; Baltasar
Hörður, f. 2018 og Birnir Bassi, f.
2020.
Foreldrar: Guðbjörg Elsa Helgadóttir,
f. 1965, stuðningsfulltrúi og Guð-
mundur Brynjar Ólafsson, f. 1962, vél-
virki. Þau búa á Sauðárkróki.
Anna Lilja
Guðmundsdóttir
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is