Morgunblaðið - 30.12.2020, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 30.12.2020, Qupperneq 22
22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2020 England Brighton – Arsenal.................................. 0:1  Rúnar Alex Rúnarsson var varamark- vörður Arsenal í leiknum. Burnley – Sheffield United .................... 1:0  Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með Burnley vegna meiðsla. Southampton – West Ham ...................... 0:0 WBA – Leeds............................................ 0:5 Manchester United – Wolves.................. 1:0 Staðan: Liverpool 15 9 5 1 37:20 32 Manch. Utd 15 9 3 3 31:23 30 Leicester 16 9 2 5 29:20 29 Everton 15 9 2 4 26:19 29 Aston Villa 14 8 2 4 28:14 26 Chelsea 16 7 5 4 31:18 26 Tottenham 15 7 5 3 26:15 26 Manch. City 14 7 5 2 21:12 26 Southampton 16 7 5 4 25:19 26 West Ham 16 6 5 5 23:21 23 Leeds 16 7 2 7 30:30 23 Wolves 16 6 3 7 15:21 21 Arsenal 16 6 2 8 16:19 20 Crystal Palace 16 5 4 7 20:29 19 Newcastle 14 5 3 6 17:24 18 Burnley 15 4 4 7 9:20 16 Brighton 16 2 7 7 18:25 13 Fulham 15 2 5 8 13:23 11 WBA 16 1 5 10 11:35 8 Sheffield Utd 16 0 2 14 8:27 2 B-deild: Birmingham – Derby ............................... 0:4 Sheffield Wed. – Middlesbrough ............ 2:1 Huddersfield – Blackburn....................... 2:1 Luton – Bristol City ................................. 2:1 Norwich – QPR......................................... 1:1 Preston – Coventry .................................. 2:0 Rotherham – Barnsley............................. 1:2 Wycombe – Cardiff .................................. 2:1 Stoke – Nottingham Forest .................... 1:1 Staða efstu liða: Norwich 22 13 5 4 30:20 44 Swansea 21 11 6 4 25:12 39 Bournemouth 20 10 8 2 35:16 38 Brentford 21 10 8 3 34:20 38 Watford 21 10 7 4 24:15 37 Reading 21 11 3 7 32:27 36 Stoke 22 9 8 5 26:21 35 C-deild: Shrewsbury – Blackpool ........................ 1:0  Daníel Leó Grétarsson var ekki í leik- mannahópi Blackpool. Spánn Sevilla – Villarreal .................................... 2:0 Barcelona – Eibar .................................... 1:1 Cadiz – Valladolid..................................... 0:0 Levante – Real Betis................................ 4:3 Staða efstu liða: Atlético Madrid 13 10 2 1 26:5 32 Real Madrid 15 10 2 3 27:14 32 Real Sociedad 16 7 5 4 25:12 26 Sevilla 14 8 2 4 17:10 26 Villarreal 16 6 8 2 20:16 26 Barcelona 15 7 4 4 29:15 25 Granada 14 6 3 5 17:22 21  Meistaradeild karla Úrslitaleikur: Barcelona – Kiel .................................. 28:33  Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir Barcelona og átti 5 stoðsendingar. Leikur um bronsverðlaun: París SG – Veszprém ........................... 31:26 Þýskaland B-deild: Aue – Hamm......................................... 26:26  Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 10 mörk fyrir Aue og Sveinbjörn Pétursson varði 10 skot í marki liðsins. Rúnar Sig- tryggsson þjálfar Aue. Vináttulandsleikir karla Túnis – Argentína................................. 27:28 Katar – Spánn....................................... 26:28 Slóvakía – Tékkland............................. 21:28 Pólland – Rússland............................... 25:23   Evrópudeildin Baskonia – Valencia............................ 71:70  Martin Hermannsson skoraði 9 stig og tók 2 fráköst fyrir Valencia á 16 mínútum.  Valencia hefur unnið 10 leiki af 17 og er í sjöunda sæti af 18 liðum deildarinnar. Evrópubikarinn C-riðill: Mónakó – Andorra .............................. 66:64  Haukur Helgi Pálsson skoraði 5 stig fyr- ir Andorra, tók 3 fráköst og átti 2 stoðsend- ingar á 19 mínútum.  Lokastaðan: Virtus Bologna 10/0, Lo- komotiv Kuban 8/2, Mónakó 6/4, Andorra 3/7, Lietkabelis 2/8, Antwerpen 1/9. Bo- logna, Kuban, Mónakó og Andorra fara í 16-liða úrslitin. NBA-deildin Atlanta – Detroit .............................. 128:120 Brooklyn – Memphis ............... (frl.) 111:116 Oklahoma City – Utah ..................... 109:110 Denver – Houston ............................ 124:111 LA Lakers – Portland...................... 107:115   ENGLAND Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Manchester United virðist í fyrsta skipti frá því að Sir Alex Ferguson lét af störfum árið 2013 vera komið af alvöru í toppbaráttuna í ensku úr- valsdeildinni í fótbolta. United vann dramatískan 1:0-sigur á Wolves á heimavelli í gærkvöld í leik sem Ferguson hefði verið stoltur af. Spilamennskan var ekki sú besta en seiglan sem einkenndi liðið hjá Skot- anum var til staðar og hélt liðið áfram allt þar til í blálokin. United uppskar sigurmark frá Marcus Ras- hford í uppbótartíma og er liðið í öðru sæti með 30 stig, aðeins tveimur stig- um frá Englandsmeisturum Liver- pool. Eftir 0:1-tapið gegn Arsenal 1. nóvember hefur United spilað níu deildarleiki, unnið sjö og gert tvö jafntefli. United mætir Aston Villa á nýársdag og er næsti deildarleikur þar á eftir sannkallaður risaslagur gegn Liverpool á Anfield og gæti toppsætið verið undir. Arsenal er einnig á sigurbraut og var sigurinn gegn Brighton annar sigur liðsins í röð eftir sjö leiki í röð þar á undan án þess að fagna sigri. Alexandre Lacazette skoraði í öðrum leiknum í röð og er hann töluvert heitari en fyrirliðinn Pierre Emerick- Aubameyang sem hefur aðeins skor- að þrjú mörk á öllu tímabilinu. Þrátt fyrir heilt yfir mjög dapurt tímabil til þessa hjá Arsenal er liðið ekki nema þremur stigum frá fimmta sæti. Nýliðar Leeds eru einnig þremur stigum frá fimmta sæti eftir 5:0- stórsigur á öðrum nýliðum West Brom. Lærisveinar stóra Sam All- ardyce gerðu flott jafntefli á heima- velli meistaranna í síðustu umferð, en liðið náði sér aldrei á strik gegn Leeds, sem hefur unnið báða leiki sína og ekki fengið á sig mark eftir 2:6-skellinn gegn Manchester United á Old Trafford. Þá fjarlægðist Burnley neðstu sætin með 1:0-sigri á botnliði Shef- field United. Er Burnley nú fimm stigum fyrir ofan fallsætin en Shef- field United, sem heillaði marga á síðustu leiktíð, er aðeins með tvö stig eftir 16 leiki og án sigurs. United komið í titilbaráttu  Tveimur stigum frá toppliði Liverpool AFP Gleði Marcus Rashford og Paul Pogba fagna sigurmarki Rashfords gegn Úlfunum í gærkvöld en það skoraði hann í uppbótartímanum. Þýska stórliðið Bayern München er í viðræðum við Breiðablik um kaup á landsliðskonunni ungu Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur. Hún staðfesti þetta við mbl.is í gær, sem og að hún verði frá æfingum og keppni fram í mars vegna meiðsla í hné sem komu í veg fyrir að hún léki tvo síðustu leiki Íslands í undankeppni EM. „Það er þvílíkur heiður að vera orðuð við Bayern og ef þetta geng- ur eftir er það mjög spennandi,“ sagði Karólína við mbl.is. Bayern er á toppnum í Þýskalandi, fimm stig- um á undan meisturum Wolfsburg. Heiður að vera orðuð við Bayern Morgunblaðið/Eggert Þýskaland Karólína Lea Vilhjálms- dóttir gæti farið til toppliðsins. Líkur eru taldar á að tveggja vikna hlé gæti verið gert á keppni í ensku knattspyrnunni eftir áramótin. The Telegraph greindi frá því í gær að nokkrir stjórnarformenn félaga í úrvalsdeildinni hefðu rætt þetta sín á milli. Leik Everton og Manchest- er City sem fram átti að fara í fyrrakvöld var frestað vegna smita í röðum City. Nýr stofn veirunnar hefur valdið usla á Bretlandseyjum og í kjölfarið hefur nokkrum leikj- um þegar verið frestað í neðri deildunum á Englandi núna um jól og áramót. Hlé á Englandi í janúar? AFP Smit Manchester City fékk leik sín- um við Everton frestað. Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Þýskalandsmeistarar Kiel eru Evr- ópumeistarar karla í handbolta ár- ið 2020 eftir 33:28-sigur Aroni Pálmarssyni og samherjum hans hjá Spánarmeisturum Barcelona í úrslitaleik í Lanxess Arena í Köln í gærkvöldi. Um er að ræða keppn- ina frá því á síðustu leiktíð, en henni var frestað til loka árs þar sem ekki tókst að klára hana síðast- liðið vor vegna kórónuveirunnar. Aron hefur nú fjórum sinnum leikið í úrslitum Meistaradeildar- innar, tvisvar hefur hann fagnað sigri en þurft að sætta sig við silfur tvisvar í röð. Hann fór í úrslit með Veszprém árið 2016 og tapaði þá í vítakeppni fyrir Kielce. Aron fagn- aði sigri, einmitt með Kiel, árin 2010 og 2012 undir stjórn Alfreðs Gíslasonar en hann þarf að bíða enn lengur eftir þriðja Evrópumeistara- titlinum. Aron lék afar vel fyrir Barcelona gegn París SG í undanúrslitum, en hann fann sig ekki eins vel gegn sterkri 3-2-1 vörn Kiel og skoraði aðeins eitt mark úr fimm skotum. Aron lagði þó upp fimm mörk fyrir samherja sína. Norðurlandabúarnir í liði Kiel stálu senunni en sænski hornamað- urinn Niclas Ekberg skoraði átta mörk og norska skyttan Sander Sagosen bætti við sjö mörkum. Aleix Gómez var markahæstur hjá Barcelona með tíu mörk. Glæsileg byrjun Tékkans Eftir jafnar fyrstu mínútur komst Kiel í 13:9 og var staðan í hálfleik 19:16. Kiel spilaði afar öruggan handbolta og hleypti Barcelona ekki of nálægt sér í seinni hálfleiknum og var sigurinn verðskuldaður. Tékkinn Filip Jícha, sem tók við Kiel af Alfreð Gíslasyni fyrir síð- ustu leiktíð, hefur unnið þýsku deildina og Meistaradeildina í fyrstu tilraun með liðið. Kiel, sem fagnaði sínum fjórða Evrópumeist- aratitli, er komið upp í þriðja sæti yfir sigursælustu lið keppninnar frá upphafi. Aðeins Gummersbach með fimm sigra og Barcelona með níu sigra hafa unnið oftar. Fimm ár síðan Barcelona vann Spænska stórveldið hefur hins- vegar ekki unnið keppnina frá árinu 2015. Barcelona hefur unnið spænsku deildina tíu ár í röð, bik- arkeppnina síðustu sjö ár og heims- meistarakeppni félagsliða síðustu þrjú ár, þar á bæ horfa menn hins vegar á Meistaradeildina og því um mikil vonbrigði að ræða. Kiel virðist vera að ná fyrri styrk en liðið var með mikla yfirburði í þýskum handbolta á sínum tíma og vann þýsku deildina ár hvert frá 2005 til 2010 og alls 17 sinnum á milli 1994 og 2015, þar af sex sinn- um undir stjórn Alfreðs Gíslasonar. Alfreð tókst hins vegar ekki að fagna sigri í deildinni fjögur síð- ustu ár sín með liðið, en hann gerði Kiel þó að bikarmeistara í fyrra. Þess má geta að Kiel og Barce- lona eru saman í B-riðli í Meistara- deildinni á þessari leiktíð og vann Barcelona 32:26 og 29:25-sigra á þýska liðinu í riðlakeppninni í nóvember síðastliðinn. Þurfti að sætta sig við silfrið Ljósmynd/Barcelona Silfur Aron Pálmarsson reynir að brjótast í gegnum vörn Kiel í úrslita- leiknum í Köln í gærkvöld. Hann náði aðeins að skora eitt mark.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.