Morgunblaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 30.12.2020, Blaðsíða 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2020 PON er umboðsaðili PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður Sími 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf „Töffararokk er fínt heiti á þessa tónlist. Fyrir mér er þetta fyrst og fremst rock’n’roll. Sem er alls ekki það sama og rokk. Rokk er drasl fyrir rokkhnakka. Rock’n’roll er allt annað. Ætli rock’n’roll sé ekki bara það sem Arnar Eggert og fleiri kalla töffararokk. Það mætti þá kalla rokk „hnakkarokk“,“ svarar Henrik. Er ekki að tala til allra – Good Sick Fun heitir platan og þú segir sjálfur um þann titil: „ger- um rangt og höfum gaman af því í staðinn fyrir að reyna alltaf að gera „rétt“ og vera með móral yfir því að takast það ekki. Gefum skít í reglur og venjur og vægðarleg gildi. Ger- um það sem okkur sýnist!“ Er ekki hætt við glundroða fylgi fólk þess- um tilmælum? „Ef allir myndu gera það sem þeim sýndist færi allt til fjandans en ekki á kúl hátt þar sem flestir eru fávitar. En ég er auðvitað ekki að tala til allra. Ég er aðeins að tala við þann litla hóp fólks sem hlustar á Singapore Sling og það er al- mennt afburðavel gefið fólk. Og ef það fólk fylgir þessum tilmælum gerist eitthvað stórkostlegt.“ Spáir ekki í ímynd – Hversu mikilvægt finnst þér að vera með heildstæða, samræmda fagurfræði? Það virðist skipta þig miklu máli, útlitið og ímyndin. Ég hef til að mynda séð þig keyrandi Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Good Sick Fun nefnist nýútkomin 12 laga plata Singapore Sling. Er þar við stjórnvölinn, sem fyrr, Hen- rik Baldvin Björnsson og segir hann í tölvupósti að platan sé fyrst og fremst inspíreruð af gömlu rokki og róli. Plötuna samdi hann á fyrstu mánuðum ársins og var hún hljóðblönduð í sumar af Guð- laugi Halldórs- syni og Henrik. Var þá einnig tekinn upp hljóðfæraleikur auka- hljóðfæraleikara, Haukur Gröndal lék á tenór- og barítónsaxófóna í „Touch The Filth“ og Axel Björns- son gerði gítarhávaða, eins og Hen- rik orðar það, í laginu „Sickin’ Street“. Bakraddir sungu Tatjana Dís, Elsa María Blöndal og Anna Björnsson og um masteringu sá Ryan Van Kriedt. Hlustar á sína innri rödd Henrik skrifar að í hvert sinn sem hann geri plötu þýði það að rokk og ról hafi bjargað lífi hans, huga og sál, enn einu sinni. „Stund- um gerist það að ég sogast inn í eitthvert bull og fer að halda að það skipti einhverju máli. En átta mig síðan á því að ekkert skiptir máli nema rokk og ról. Þá bý ég til plötu,“ skrifar Henrik. Hann er beðinn að útskýra hvað hann eigi við með þessu, inn í hvaða bull hann hafi sogast og haldið að það skipti máli. „Hmmmm … til dæmis átta ég mig á því að ég er farinn að éta skít og ég hef ekki hugmynd af hverju ég er að því og mér finnst það ömurlegt. Eflaust hefur einhver fá- viti sagt mér að þetta væri það eina sem væri í boði og ég hef verið illa fyrirkallaður og látið plata mig. Þá allt í einu heyri ég mína innri rödd segja: „Ekki gleyma. Ekkert skiptir máli nema rock’n’roll.“ Þá hætti ég að éta skít,“ segir Henrik. Töffararokk – Singapore Sling var einu sinni hljómsveit en er þetta núna eins manns verkefni, þú einn? „Þetta er eins og það hefur alltaf verið. Það er band sem spilar með mér „live“ og stundum spilar ein- hver inn á eitthvað á plötunum. Og stundum fæ ég aðstoð við upptökur og mix.“ – Þú samdir plötuna og tókst upp heima hjá þér á fyrstu mánuðum ársins. Hvernig er platan í saman- burði við fyrri plötur Singapore Sling? „ Ég skil ekki spurninguna. En ég hef samt mjög gaman af henni,“ segir Henrik kíminn. – Arnar Eggert kallar þetta töff- ararokk í pistli hér í blaðinu árið 2017 en hvað kallar þú þessa tón- list? um á mjög svo hversdagslegum bíl í leðurjakkanum, með rokksólgler- augu og rokkhárgreiðslu. „Hahahahaha. Leðurjakki, „rokk- sólgleraugu“ og „rokkhárgreiðsla“ er minn hversdagsklæðnaður. Hvernig öðruvísi ætti ég að vera þegar ég er að keyra? Wtf? En jú, ég spái í útlitið. Hver gerir það ekki? En ímynd er eitthvað sem þú ert að spá í. Ekki ég. Ég spái fyrst og fremst í stemningu. Og útlit og stemning fer alltaf saman, saman- ber hrekkjavöku og jólin.“ Ekkert skiptir máli nema rokk og ról  Singapore Sling gefur út breiðskfíuna Good Sick Fun  „Útlit og stemning fer alltaf saman,“ segir Henrik Rokkari Henrik Baldvin Björnsson með rokkhár og rokksólgleraugu. Ljósmynd/Heiða Jónsdóttir Þrátt fyrir að stóru alþjóðlegu uppboðshúsin hafi vegna kórónuveirufaraldursins þurft að hætta við fjölsótt uppboð í sölum sínum skiptu þau um mitt ár í vef- uppboð í streymi og segja sérfræð- ingar ArtNews að efnaðir mynd- listarsafnarar víða um lönd hafi haldið áfram að greiða hátt verð fyrir myndlistarverk á þessu furðuári, þótt færri hafi farið fyrir meira en 10 milljarða kr. en í fyrra. Eftirtalin eru þau sex verk sem hæst verð fékkst fyrir á uppboðum á árinu: Francis Bacon, Triptych Inspi- red by the Oresteia of Aeschylus (1981). Verð: 84,6 milljónir dala, um 10,8 milljarðar kr. Wu Bin, Tíu sjónarhorn á Lingbi-grjót (1610). Verð: 76,6 milljónir dala, um 9,8 milljarðar kr. Roy Lichtenstein, Nude With Joyous Painting (1994). Verð: 46,2 milljónir dala, um 5,9 milljarðar kr. David Hockney, Nichols Canyon (1980). Verð: 41 milljón dala, um 5,2 milljarðar kr. Ren Renfa, Fimm ölvaðir prins- ar ríða heim (Um 1300). Verð: 39,4 milljónir dala, um 5 milljarðar kr. Cy Twombly, Untitled (Bolsena) (1969). Verð: 38,7 milljónir dala, um 4,9 milljarðar kr. Verðmætt Norski safnarinn og listasafnseigandinn Hans Rasmus Astrup seldi verk Francis Bacons, Triptych Inspi- red by the Oresteia of Aeschylus. Það var slegið hæstbjóðanda fyrir um 10,8 milljarða króna með gjöldum. Þrískipt verk Bacons dýrast Frá 17. öld Kínverska myndskrollan Tíu sjónarhorn á Lingbi-grjót. Popplist Hluti verks Roys Lichten- steins, Nude With Joyous Painting. Landslag Hluti málverks Davids Hockneys, Nichols Canyon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.