Kópavogsblaðið - 29.11.2013, Síða 12

Kópavogsblaðið - 29.11.2013, Síða 12
Förðun í vetur Það verður mikið um dökkt smokey í vetur, enda er það alltaf klassískt og hægt að fara allskonar fljótlegar og auðveldar leiðir til þess að fá flotta útkomu. Hægt er að nota ýmisskonar liti og þetta árið eru plómufjólubláir og steingráir litir alveg tilvaldir fyrir flotta party förðun. Húðin er fersk og ljómandi. Dökkir varalitir hafa verið mjög áberandi núna í haust og verða það einnig í vetur. Hér ætla ég að sýna fljótlega og einfalda kvöldförðun. Helga Karólína er 21 árs Kópavogsbúi og förðunarfræðingur. Hún mun verða með pistla hjá okkur um nýjustu strauma í förðun og gefa góð ráð. Hún opnar förðunarstofu sína í byrjun desember á hárgreiðslustofunni Hárný, Nýbýlavegi 28 og á sama tíma opnar hún vefverslunina www.CoolCos.is 1. Ég byrja á því að bera fljótandi farða yfir allt andlit. Undir augu, kringum nef og munn og á augnlok nota ég hyljara. 2.Því næst nota ég dökkan augn- skugga í globus-línu þar sem ég nota hann til þess að skyggja. Nota síðan hreinan bursta til þess að blanda honum og fá fallega áferð. 3.Ég ber silfurgráan augnskuggapenna yfir augnlokið og til þess að festa augnskuggapennan betur á og fá meiri glans ber ég lausan silfur augnskugga yfir allt það svæðið sem ég bar augnskuggapennan á. Til þess að ramma inn augun og fá dramatískara look nota ég svartan augnblýant. Ég valdi dökkrauðan varalit og löng augnhár til þess að setja punktinn yfir i-ið. HEILSAN & TÍSKANkópa vogs Kópavogsblaðið kfrettir.is12 Allar vörur sem ég notaði eru frá CoolCos.is. Opnum 5.des með partíi kl 19-21 á Nýbýlavegi 28, allir velkomnir. Gott að gefa - gaman að lesa! Von - Saga Amal Tamimi. Konunnar sem óttaðist um líf sítt og flýði á ævintýralegan hátt til Íslands. Undir hraun. Einstök frásögn Sigga á Háeyri af eldgosinu í Heimaey. Sir Alex. Mögnuð bók um þennan magnaða knattspyrnustjóra og það sem á hefur gengið í hans lífi, jafnt sigra sem sorgir. Húmör í Hafnarfirði. Bráðsmellnar sögur af Hafnfirðingum, skráðar af Ingvari Viktorssyni. Skagfirskar skemmtisögur 3. Gamansemi Skagfirðinga er einstök og þeir sem lesa þessa bók munu veltast um af hlátri.

x

Kópavogsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.