Kópavogsblaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 14

Kópavogsblaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 14
Kópavogsblaðið hvetur ungt fólk í bænum til að skapa og senda okkur hugleiðingar sínar. Fyrstur til að ríða á vaðið er Daníel Ingi Sigþórsson, ungur nemandi í MK. Hver er tilgangur lífsins? Þessi spurning hefur brunnið á vörum mannsins frá því að hann varð til. Margir fræðin- gar, spekingar, læknar og alls konar fólk hafa mikið pælt í þessu í gegnum árin. Niðurstöðurnar hafa sjálfsagt verið persónubundnar og hafa einnig farið eftir staðsetningu í samfélaginu. Nú er komið að mér að velta þessu fyrir mér. Við erum heppin að eiga líf. Lífið er það verðmætasta sem við eigum og við eigum bara eitt svoleiðis. Þess vegna er mikilvægt að nýta það sem best. Ég tel að eitt af markmiðum lífsins sé að öðlast sanna hamingju. Finndu hæfileika þína og ræktaðu þá. Ekki lifa eftir draumum og skoðunum an- nara. Virtu samt sem áður skoðanir og reglur annara. Gerðu það í lífinu sem hjartað þitt vill og það sem hugurinn leyfir. Gerðu það sem veitir þér gleði og ánægju. Þannig finnur maður hamingjuna. Ég sá rosalega fallega setningu í mynd sem ég dái. Myn- din heitir „Into The Wild“ og fjallar um ungan mann sem er kominn með nóg af samfélaginu og ákveður að fara að lifa í náttúrunni í Alaska. Myndin byggir á sannri sögu, en setningin úr myndinni er svohljóðandi: „Happiness not real without sharing“ sem ég myndi íslenska einhvern veginn svona „Sönn hamingja fyrirfinnst ekki nema henni sé deilt með öðrum.“ Eins og lífið er í dag, þá er svo rosalega auðvelt að þiggja. Fólk er líka alltaf að þiggja. En líkt og málshátturinn se- gir, þá er sælla að gefa en að þiggja. Að gefa þarf ekkert endilega að kosta peninga. Gefðu fólki ást og hlýju. Það er ein besta gjöf sem hægt er að gefa, og er einnig besta gjöf sem hægt er að þiggja. Brostu til allra. Líttu í kring- um þig. Er ekki einhver sem þarf á brosi að halda? Gerðu góðverk. Hjálpaðu þeim sem eru hjálparþurfi. Einn lítill jákvæður hlutur til einhvers munar þig kannski ekki miklu, en gæti skipt sköpum fyrir hinn aðilann. Gleði og hamingja auðveldar lífið um helming. Gefðu. Að elska og þykja vænt um aðra er stór partur af lífinu. Það er fátt betra í heiminum en að elska einhvern sem elskar mann til baka. Þú getur elskað sem vinur, sem nágranni, sem maki, sem foreldri, sem barn eða á hvaða vegu sem til er. Ástin er án landamæra og er óháð útliti. Þú getur elskað hlut eða lifandi veru. Elskaðu. Trúin er mikilvæg. Trúin flytur fjöll. Í heiminum eru til ótal trúarbrögð. Hvort þú trúir á einhver þeirra eða ekki, þá er samt mikilvægt að trúa á eitthvað, eins og til dæmis sjálfa/n sig. Þú getur náð öllum þínum markmiðum ef þú trúir bara á þig. Ef þú trúir ekki á sjálfa/n þig, þá gerir þú þér svo erfitt fyrir. Trúðu. Farðu samt varlega í allt og sýndu varkárni. Við eigum nú bara eitt líf og þurfum að fara vel með það. Njóttu þess að vera sá sem þú ert. Það er nefninlega enginn eins og þú, jaf- nvel þótt þú sért eineggja fimmburi! Enginn er eins. Finndu þitt eigið hlutverk í lífinu, hjálpaðu öðrum í neyð, trúðu á sjálfa/n þig og lifðu lífinu. Gefðu, elskaðu og finndu ham- ingjuna. -Daníel Ingi Sigþórsson, nemandi í MK. Hver er tilgangur lífsins? Kópavogsblaðið kfrettir.is14 Skólalífið Allt til sundiðkunar, sund er okkar fag Aqua Sport er sérverslun með vörur til sundiðkunar. Bjóðum mikið úrval sundfatnaðar fyrir konur og karla. Einnig alla fylgihluti til sundiðkunar. Kíkið við á nýju heimasíðunni okkar! Aqua Sport – sundverslun Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur aquasport.is

x

Kópavogsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.