Kópavogsblaðið - 29.11.2013, Page 13
Núna langar mig til þessa að deila með ykkur Þriðja
boðorðinu mínu. Mér finnst það pínu uppáhalds.
Ég hef aldrei lent í fyrsta sæti. Ekki í neinu. Aldrei fengið
bikar. Nema fyrir framför og ástundun í fótbolta. Ég var
mjög dugleg að stunda íþróttir þegar ég var lítil og fram
yfir unglingsárin og fékk alveg helling af medalíum. En
aldrei var það fyrsta sætið. Það var allt í lagi. Ég var með
fínt jafnaðargeð sem barn og fannst bara gaman að taka þátt
og fá önnur eða þriðju verðlaun.
Það sem var kannski ekki alveg allt í lagi var að í lífinu
setti ég sjálfa mig ekki í fyrsta sætið. Kannski þess
vegna sem ég vann aldrei fyrstu verðlaun. Ég skal ekki
segja. En ég átti erfitt með að taka pláss og hugsa vel
um mig og heilsuna mína.
Ég man eftir því þegar ég var lítil og ég kom að
umferðagötu. Ég vildi ekki að bílarnir myndu stoppa
fyrir mér, svo ég beið oft og þóttist skoða blómin á
umferðareyjunni svo bílarnir þurftu ekki að stoppa fyrir
mér. Þegar þeir voru farnir framhjá skoppaði ég yfir
götuna. Með fulla lúku af gulum fíflum. Ég var ekki í
fyrsta sæti hjá sjálfri mér.
Á unglingsárunum og fram að byrjunar-dömu-árunum
vann ég voðalega mikið. Ég var í tveimur eða þremur
störfum og jafnvel í skóla með. Hvers vegna? Það
vantaði fólk. Ég gat og þorði ekki að segja nei. Úrvinda
í skrokknum og ringluð í toppstykkinu mætti ég í
vinnuna. Af því það vantaði fólk.
Ég setti sjálfa mig ekki í fyrsta sætið.
Ég sat stundum og hlustaði á fólk. Stundum var ég al-
veg að pissa í buxurnar, en fór ekki á klósettið. Því ég
var svo mikið að hlusta á fólk og vera með í samræðum.
Ég þorði ekki að standa upp og pissa, þá myndi ég trufla
samræðurnar.
Ég setti sjálfa mig ekki í fyrsta sæti.
Ég borðaði oft mjög óreglulega af því ég gaf sjálfri mér
ekki tíma til að borða. Eða, gaf sjálfri mér ekki tíma til
að hreyfa mig markvisst. Í vinnunni eða á öðrum stöðum
var ég oft of upptekin við að gera eitthvað annað en að
hugsa um sjálfa mig og setja sjálfa mig í fyrsta sætið.
Ef ég hugsa ekki um sjálfa mig, hver gerir það þá?
Heilsan mín er það mikilvægasta sem ég hef. Ef ég hef hana
ekki, hvað hef ég þá?
Ok. Setjum Siggu í tímavél. Í þykjó er til tímavél. Stillum
hana á 30 ár fram í tímann. Þar horfir „gamla Sigga“……….
afsakið, ég meina „Sigga á besta aldri“, útum gluggann
á húsinu sínu í sveitinni og langar svakalega að gera
kartöflugarð og rækta gulrætur. Og rófur. Fá sér jafnvel
nokkrar hænur.
En „Sigga- á besta aldri“ getur ekki látið þann draum rætast.
Hún er bakveik eftir of mikla vinnu, með gigt í hnjám og
ökla vegna ofþyngdar og ónýta pissublöðru. Meltingarfærin
hennar eru líka í ólagi. Hún tekur kúkatöflur sem hún fær
skaffaðar frá lækninum.
„Sigga á besta aldri“ er rétt um sextugt. Og hún getur ekki
ræktað rófur.
Þetta hafði hún upp úr því að setja sjálfa sig ekki í fyrsta
sætið. Hvað græddi hún á þessu öllu saman.
Jú, Viðurkenningu.
Ah, þessi Viðurkenning. Súrsætur andskoti eins og Bubbi
myndi orða það.
En Viðurkenningin ræktar ekki rófur. Eða gefur hænunum
að borða.
Þriðja boðorð Siggu: Setjið sjálfa(n) ykkur í fyrsta sætið.
Hugsum vel um okkur sjálf. Líkamlega og andlega. Þannig
höldum við heilsunni okkar í lagi. Og það er það besta sem
við getum gefið okkur sjálfum!
Njótið þess að vera þið í ykkar líkama með ykkar sál og
gerið það besta hverju sinni til að klappa ykkur á öxlina og
vera góð við sjálfa(n) ykkur!
Hlýjir straumar til ykkar!
Ykkar Sigga
Heilbrigð Heilsurágjöf er á Facebook.
Settu þig í fyrsta sæti
Kópavogsblaðiðkfrettir.is 13
HEILSAN & TÍSKANkópa
vogs
ÚTRÝMINGARSALA!!!
NÚ TÖKUM VIÐ TIL Í HILLUNUM
MYNDARAMMAR MEÐ 50% AFSLÆTTI
SPIL, PÚSL OG LEIKFÖNG MEÐ 40% AFSLÆTTI
FRÁBÆR BÓKATILBOÐ ALLAN DESEMBER