Lögmannablaðið - 01.12.1995, Síða 3

Lögmannablaðið - 01.12.1995, Síða 3
Fylgt úr hlaði LÖGMANNABLAÐIÐ er nýtt hlað á vegum Lögmannafé- lags íslands, sem koma á út sex sinnum á ári. Er því ætlað að vera vettvangur stjórnar félagsins og lögmanna til að fjalla um störf lögmanna, réttindi þeirra og skyld- ur, svo og hlutverk og störf stjórn- arinnar og ýmissa nefnda félagsins. Blaðinu verður dreift til félags- manna og einnig til dómara- og sýslumannsemhætta landsins, stjórnarráðsdeilda og ýmissa opin- herra stofnana og fyrirtækja. Með því móti er hægt að efla tengsl fé- lagsins og stéttarinnar við þessar stofnanir og kynna sjónarmið lög- manna um hin ýmsu málefni, sem fjallað verður um hverju sinni. Auk greina, þar sem fjallað er um ýmis hugðarefni lögmanna og annað áhugavert efni, er stefnt að því að hafa nokkra reglulega dálka í blaðinu, svo sem leiðara, punkta úr gömlum gerðarbókum, fréttir úr félagslífinu og fréttir af erlendum vettvangi, svo sem starfi norrænu lögmannafélaganna, CCBE og IBA. Mikil áhersla verður lögð á það að virkja félagsmenn til að skrifa í blaðiö, en fjölmargir lögmenn luma á áhugaveröu efni, sem feng- ur er í að sjá á síðum blaðsins. Tek- ið skal skýrt fram að það er ekki ætlunin með útgáfu hins nýja blaðs aö keppa við Tímarit lögfræðinga og Úlfljót í efnisvali, þó svo að það kunni e.t.v. að skarast að einhverju leyti. Akvörðun um útgáfu blaðsins var tekin af stjórn L.M.F.Í. í septem- ber síðast liðnum, að sameiginlegri tillögu ritnefndar Fréttabréfs L.M.F.Í. (sem hér eftir veröur rit- Martelm IVÉsscn, ritstjóri. nefnd LÖGMANNABLAÐSINS) og útgáfunefndar L.M.F.Í. Hefur síðan verið unnið markvisst að útgáfunni á vegum beggja nefndanna og eiga nefndarmenn heiöur skilinn og þakkir fyrir frábært starf. I sögu L.M.F.Í. hefur nokkrum sinnum verið reynt að gefa út fé- lagsblöð. Þannig var t.d. um nokk- urra ára skeið, í kringum 1970, gef- ið út Félagsblað L.M.F.Í. og þar áður Blað lögmanna. Lengsta sam- fellda útgáfan af þessu tagi er nú- verandi Fréttabréf L.M.F.I., sem fyrst kom út árið 1981. Hér er þá ekki talin með útgáfa félagsins á Tímariti lögfræðinga, sem á sér áratuga langa sögu, en L.M.F.Í. stofnaöi til og sá um útgáfu þess frá upphafi, árið 1951 og til ársins 1960, þegar Lögfræðingafélag ís- lands, þá nýlega stofnað (1. apríl 1958), tók við útgáfunni. Með stækkun félagsins undan- farin ár, auknum umsvifum og sí- fellt fjölbreyttari verkefnum er ekki óeðlilegt að félagið eignist vegleg- an vettvang til umfjöllunar um innri málefni þess. Er það von mín að félagsmenn taki hinu nýja blaði vel og finni jafnframt hjá sér hvöt til að skrifa í það. Einungis þannig verður blaðið áhugavert og fjöl- breytt og lifandi vettvangur um störf og stöðu lögmannastéttarinnar. Marteinn Másson, ritstjóri. Lögmannafélag íslands stofnað árið 1911 Álftamýri 9, 108 Reykjavík sími 568-5620 bréfsími 568-7057 Stjórn L.M.F.Í. Þórunn Guðmundsdóttir, hrl, formaður Sigurmar K. Albertsson, hrl., varaformaöur Lárus L. Blöndal, hdl., ritari Ásgeir Magnússon, hdl., gjaldkeri Hreinn Loftsson, hrl., meðstjórnandi Starfsfóik L.M.F.Í. Marteinn Másson, framkvæmdastjóri Hildur Pálmadóttir, ritari Mynd á forsíðu: Málflutningsmennirnir Eggert Claessen, fyrsti formaður félagsins og Sveinn Björnsson, fyrsti ritari þess og síðar formaður, í fyrsta málflutningi fyrir Hæstarétti íslands 16. febrúar árið 1920. Prentun: Borgarprent h.f. Llmsjón auglýsinga: Öflun ehf., sími 561-4440 Hönnun forsíðu: íslenska hugmyndasamsteypan h.f. Síðuhönnun og umbrot: Auglýsingasetrið 3

x

Lögmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.