Lögmannablaðið - 01.12.1995, Page 4

Lögmannablaðið - 01.12.1995, Page 4
Hemlaför Kunningi minn í lögmanna- stétt liefur sagt mér að ef hann er spurður á skemmti- stöðum borgarinnar hvað hann geri, þá segist hann vera skrifstofu- maður. Meðan hann gekkst ennþá við því að vera lögmaður gerðist alltaf eitt af þrennu: 1) þrjú- hundruðpundamenn vildu fá hann afsiðis til að ræða málin vegna þess að einhver lögmaður hirti af þeim bílinn; 2) menn báðu um lög- fræðilega ráðgjöf („maðurinn minn er alltaf að segja mér að fara til andskotans, má ég taka börnin með?“); 3) ætlast var til að hann „splæsti sjússum" á allt liðið vegna þess að hann væri ríkur lögmaður. Getur það verið að ímynd stétt- arinnar sé svo slæm, að lögmenn séu farnir að skammast sín fyrir að vera lögmenn? Víst er það að margir telja lögmenn óalandi og óferjandi. Þeim er gjarnan líkt við ýmsar tegundir úr dýraríkinu, svo sem skunka, snáka eða refi. Lög- mönnum er tíðrætt um ímynd stétt- arinnar. Er þá gjarnan vísað til um- sagnar í fjölmiðlum, unnnæla stjórnmálamanna, sem telja illyrði um lögmenn og lögfræðinga ódýra leið til að afla sér vinsælda. Lög- fræðingabrandarar eru margir og eru flestir í hemlafarastíl („Hver er munurinn á dauðum skunki og dauðum lögmanni á þjóðveginum? Það eru hemlaför fyrir framan skunkinn."). Lögmenn hafa gert ýmislegt í þeim tilgangi að bæta þessa meintu slæmu ímynd og hafa jafn- vel margir hverjir verið reiðubúnir til að láta ýmislegt yfir sig ganga í nafni bættrar ímyndar. í byrjun marsmánaðar síðastliðins var sam- þykkt á Alþingi breyting á málflytj- endalögunum. Breytingin hefur það í för nteð sér að lögmenn verða nú skyldaðir til að kaupa sér starfsábyrgðartryggingu og til að hafa vörslufjárreikninga. Neytenda- vernd var rnjög hent á lofti þegar þessi lagabreyting var samþykkt. Sérstakra ráðstafana átti aö vera þörf til að vernda neytendur gegn lögmönnum. í greinargerð með breytingalögunum var tekið fram, að ekki skipti máli hvort fjár- hagstjónið, sem lögmaðurinn hefði valdið viðskiptamanni sínum, væri að rekja til ásetnings- eða gáleysis lögmannsins. Á auka-aðalfundi LMFI, sem haldinn var 31. október s.l., voru samþykktar starfsábyrgð- artryggingarreglur, sem fela það í sér, að ekki er tryggingaskylda að því er varðar ásetningsbrot. Þegar þetta er skrifað er ekki vitað hvort dómsmálaráðuneytið muni stað- festa reglurnar eins og þær voru samþykktar á auka-aðalfundinum. Þeirri skoðun hefur verið hreyft að það myndi bæta mjög ímynd lögmannastéttarinnar ef lögmenn væru skyldaðir til að kaupa sér tryggingu gegn ásetningsbrotum. Hvernig í veröldinni getur það aukið virðingu almennings fyrir stéttinni ef lögmenn hafa ásetn- ingsbrotatryggingu? Mun það ekki frekar hafa þveröfug áhrif? Þetta leiðir þá hugann að því, hvort ímynd lögmanna sé eins slæm og af er látiö. Hversu djúpt rista ummæli fjölmiðla og stjórn- málamanna? Alntenningur, þ.m.t. fjölmiðlamenn og stjórnmálamenn, þurfa oft að Ieita til lögmanna. Miðað við þann stóra hóp, sem þarf á lögmannsaðstoð að halda í þjóðfélaginu, þá virðist aðeins lítill hluti manna vera óánægður með þjónustuna. Ef ummæli í fjölmiðl- um endurspegluðu almenna óánægju almennings með lög- menn, þá hlytu umkvörtunarefnin, sem berast til LMFÍ, að vera marg- falt fleiri. Þegar vel er að gáð er ímynd lögmanna kannski ekki svo slæm og af er látiö. Lögmenn mega ekki láta hræðsluna við „slæma ímynd stéttarinnar" draga úr sér mátt. Lögmenn eiga að stíga sjálfir á bremsurnar og berjast gegn ósanngjörnum álögum á stéttiná. Það má ekki setja reglur, sem eru það íþyngjandi, að þær takmarka möguleika ungs fólks að hefja lög- mennsku og leiði jafnvel til þess að þær hreki starfandi lögmenn úr starfi. Ef ekkert er að gert þá gæti farið svo að lögmenn lentu á lista yfir dýrategundir, sem eru í útrým- ingarhættu, ásamt nashyrningum, skallaerninum o.fl. Lögmenn, eins og nashyrningar, eru ávallt reiðu- búnir til atlögu, nashyrningar gegn óvinum sínum, en lögmenn fyrir skjólstæðinga sína. Þónmn Guömundsclóttir, brl. (höfund- ur er formaöur L.M.F.Í. og rekur lög- mannsstqfu í Reykjavík). Frá ritstjóra og ritnefnd Aösendar greinar Félagsmenn eru hvattir til að rita í blaöið greinar. langar eða stuttar, um hugöarefni sín er tengjast störfum lögmanna. Ekki þarf að vera um ntjög fræöileg skrif að ræða. Til að auðvelda vinnslu blaðsins væri æskilegt aö aösendar greinar kæmu bæði prentaðar á blað og á tölvudiskum, t.d. í Word eða Word-Perfect ritvinnslu- formi. Þeim, sem hafa áhuga á að senda greinar til blaðsins, er bent á að það kemur út 15. dag janúar, mars, maí, júlí, september og nóvember ár hvert. Þurfa greinarnar því að berast til skrifstofu L.M.F.Í. eigi síöar en 1. dag útgáfumánaðar. 4

x

Lögmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.