Lögmannablaðið - 01.12.1995, Síða 11

Lögmannablaðið - 01.12.1995, Síða 11
Tvíæringur IBA í París 17. - 22. september 1995 Section on Business Law er önnur tveggja deilda í IBA og sú stærri. Hún hélt ráðstefnu (Biennial) í París í september s.l. Deildin er núna 25 ára og var því hér um eins konar afmælisráð- stefnu að ræða. Þátttakendur voru um 1800 og að auki um 600 gestir. Það gefur pví auga leið að undir- búningur og framkvæmd ráðstefn- unnar er mikið vandaverk. Ekki varð þó annað séð en að allt gengi vel. Ráðstefnan var haldin í Palais de Congrés. Það er gríðarstór ráð- stefnuhöll. Þar er mikill fjöldi ráð- stefnusala af ýmsum stærðum. Sá stærsti tekur nokkur þúsund manns í sæti en hann var ekki not- aður til ráðstefnuhaldsins. Töfra- maðurinn David Copperfield (Mr. Schiffer) hélt sýningar í bygging- unni á sama tíma og ráðstefnan var og notaði þennan sal fyrir þær. Þegar ég sá sýningu hans var salur- inn um það bil fullur, svo að hon- um veitti ekki af svona stórum sal. Þótt ráðstefnugestir væru margir varð ekki nein þröng á þingi þar sem margir fundir voru í gangi á hverjum tíma. Sem dæmi má taka að fimmtudaginn 21. september voru 28 fundir á gangi um mis- munandi efni. A þeim fundum, sem ég sótti, voru að meðaltali umlOO fundarmenn. Auðvitað var ekki unnt að sækja alla fundi, þannig að maður varð að velja úr fyrirfram. En með því að fara gaumgæfilega í gegn um efnisskrá, sem var á 61 blaðsíöu, var hægt að velja fundi um þau efni, sem maður hafði mestan áhuga á. Þar sem undirritaður er í nefndum E um bankalögfræði og I um fjárfestingarfyrirtæki og verð- bréfasjóði sótti ég helst fundi sem þær nefndir héldu. En einnig sótti ég fundi nefndar Q um verðbréf og verðbréfaviðskipti. Maður mátti sækja þá fundi sem maður vildi. Sem dæmi um stærð og umfang ráðstefnunnar má geta þess að einn annar íslenskur lögmaður sótti hana, Þórður Gunnarsson, hrl. Þótt ég leitaði að honum tókst mér aldrei að finna hann í ráðstefmi- höllinni. Ég hef ekki áður sótt svo stóra ráðstefnu hjá IBA. Þær, sem ég hef sótt, eru haldnar árlega og eru á margan hátt markvissari. Þátttak- endur í þeirn eru líka mun færri, frá 150 til 200. Kannski verður slík ráðstefna haldin á Islandi í framtíð- inni. Ráðstefnum sem þessum fylgir töluvert félagslíf. Ýmsir aðilar hafa áhtiga á að ná tii þátttakenda og bjóða þá gjarnan til hanastélsboða eða málsverða. Ég og kona mín sóttum eitt hanastélsboð, sem halclið var í hinu glæsilega Plaza Athéne hóteli í París. Gestgjafinn var „Commercial Law Affiliates", sem eru ein af mörgum samtökum lögmannastofa í heiminum. Hann kynnti starfsemi sína í boðinu. I ráðstefnuhöllinni gafst ýmsum aðilum kostur á að vera með sýn- ingar- eða sölubása, þar sem þeir kynntu afurðir sínar. Þar bar mest á útgáfu- og tölvufyrirtækjum. Ljóst er að íslenskir lögmenn þurfa að eiga meiri og meiri sam- skipti við erlenda aðila og lög- menn. Ráðstefnur sem þessi hjálpa til. Bæði læra menn töluvert um al- þjóðlegan fjármálarétt og eins geta þeir stofnað til kynna sem geta komið sér vel síðar. Þá er einnig fróðlegt að átta sig á hvað verið er að glíma við í öðrum löndum, því að oft erum við að fást við það sama hér, oftast í smærri stíl. Ég vil því enn hvetja lögmenn, sem eiga þess nokkurn kost, að sæka ráð- stefnur IBA. Jón G. Briem, hrl. (höfundur er for- stöðumaður lögfrœðideildar íslands- banka h.f). Hótelgisting í Kaupmannahöfn Um langt árabil hefur danska lögmannafélagið beint viðskiptum sín- um til Hotel Christian IV, þegar á hefur þurft að halda. Hótelið stendur við Dronningens Tværgade 45, ekki langt frá aösetrí lög- mannafélagsins við Kronprinsessegade 28. Heftir félagið notið ágætra kjara að því er gistingu o.fl. varðar. Nú hefur danska lögmannafélagið sýnt lögmannaféiögum á öðrum Norðurlöndum þá vinsemd aö útvega þeirn góð kjör á hótelinu fyrir nor- ræna lögmenn. Það verð, sein boðið er upp á, er eftirfarandi: Eins manns-/tveggja manna herbergi, DKK 660 pr. nótt. Frá sunnudegi til mánudags í eins manns herbergi, DKK 495 pr. nótt. Frá sunnudegi til mánudags, tveggja manna herbergi, DKK 555 pr. nótt. Innífalið í veröinu er morgunverður, virðisaukaskattur og þjónustugjöld. Til að njóta þessara kjara þurfa íslenskir lögmenn að tiigreina við her- bergispöntunina sérkjör danska lögmannafélagsins (ADVOKATSAM- FUNDET’s speciale pris). Á tímabilinu 1. október 1995 til 30. apríl 1996 er sértilboð í gangi, en þá er innifalið í verðinu tveggja rétta kvöldverður fyrir hverja nótt sem gist er á hótelinu. Áhugasamir lögmenn geta fengið ijósrit bæklings frá hótelinu á skrif- stofu L.M.F.Í. 11

x

Lögmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.