Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.09.1991, Page 5

Bæjarins besta - 18.09.1991, Page 5
BÆJARINS BESIA • Miðvikudagur 18. september 1991 5 Lesendur: Þakkir og kveðjur EGAR ég hverf héðan frá ísafirði eftir liðlega átta ára dvöl til þess að taka við öðrum störfum, langar mig til að koma á framfæri örfáum kveðju- og þakkar- orðum. Þessi ár hér vestra hafa verið lærdómsrík umbrotaár í krefjandi starfi. Mér er að sjálfsögðu ljóst, að margt af því, sem ég hef gert og beitt mér fyrir sem sýslumaður og bæjarfógeti, hefur verið um- deilt og kostað bæði átök og fórnir. Ég hef hins vegar leitast við að hafa að leiðar- ljósi í hverju máli jafnræði allra fyrir lögum og þá hugs- un, að sérhver ákvörðun væri efnislega sanngjörn og til þess fallin að efla hag og heiður ísafjarðar og Isa- fjarðarsýslu, þegar til lengri tíma væri litið. Til þessa hef ég notið stuðnings margra frábærra samverkamanna. Aðrir verða svo vitaskuld að dæma um það, hvernig til hefur tekizt. Við Inga Ásta og synir okkar höfum átt hér yndis- leg ár „í faðmi fjalla blárra." Einstakt náttúrufar á Vest- • Pétur Kr. Hafstein. fjörðum og hlýhugur og góðvild vina og kunningja hefur hvorttveggja lagzt á eitt um að skipa þessum árum í hóp hinna beztu ára í minningunni. Fyrir allt þetta viljum við nú þakka. Við vonum jafnframt, að okkur auðnist að halda tengslum og tryggðabönd- um hingað vestur um ókom- in ár. Umfram allt væntum við þess, að hér megi mann- lífið blómgast og dafna í framtíðinni og byggðir efl- ast. Pétur Kr. Hafstein. Jafnrétti á milli byggðarlaga VEGNA svara Umdæm- isstjóra Pósts og síma á Vestfjörðum útaf kvörtun minni um þjónustugjöld, þá ítreka ég það, að ég tel, að ekki sé þar jafnræði á, hvað varðar gjaldtöku fyrir veitta þjónustu. Það er staðreynd, að við sem búum ekki í nágrenni við aðalstöðvar Pósts og síma þurfum að greiða meira fyrir þessa þjónustu. Pað skal skýrt tekið fram. að það var ekki einungis átt við þjónustu vegna skemmda, heldur vegna flutnings á síma og annarrar viðhaldsþjónustu. Læt ég fylgja hér með Ijósrit af reikningi frá Þjónustudeild Pósts og síma, sem sýnir ýmis aukagjöld sem við þyrftum ckki að greiða, ef við byggjum þar sem aðal- stöðvar Pósts og síma eru. Jónas Ólafsson Pingeyri jÆr Farskóli Vestfjarða Farskóli Vestfjarða kynnir námskeið sem ákveðin eru á nœstunni. SKIPSTJÓRN: 4. okt. kl. 20.00 hefst 30 rúmlesta skipstjórnarnámskeið í húsakynnum Menntaskólans á ísafirði, stofu 2. Námið er 114 kennslustundir alls og kennt er einkum á kvöldin og um helgar. Skipstjórn á Hólmavík Fyrirhugað er 30 rúmlesta skipstjórnarnámskeið á Hólmavík ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið yrði eftir 15. október. VÖKVAKERFI I: í október verður námskeið í þrýstiolíukerfi I, fyririðnaðarmenn og vinnuvélstjóra. Námskeiðið verð- ur haldið í húsakynnum vélskólabrautar. Lengd námskeiðsins er um 40 kennslustundir og verður það haldið um helgi. Óskað er eftir endurskráningu í Vökvakerfi II, þetta námskeið er fyrir þá sem lokið hafa Vökvakerfi I. Námskeiðin eru haldin í samvinnu við Fræðsluráð málmiðnaðarins. KJARNANÁMSKEIÐ Á PATREKSFIRÐI: í október er fyrirhugað Kjarnanám- skeið á Patreksfirði, ætlað ófaglærðu starfsfólki sjúkrahúsa og dagvistunar- stofnana. Námskeiðið er haldið í samvinnu við FOS.Vest og Verka- lýðsfélag Patreksfjarðar. ÍSLENSKUNÁMSKEIÐ FYRIR ÚTLENDINGA: 3. október kl. 20.00 hefst íslensku- námskeið fyrir útlendinga, í stofu 13, húsakynnum Menntaskólans á Isa- firði. Kennt verður tvö kvöld í viku, þriðjudaga og fimmtudaga. Nám- skeiðið verður 40 kennslustundir alls. Leiðbeinandi: Þóra Karlsdóttir. Inn- ritun í síma 4215 eða 3599. íslenska á Flateyri; Fyrirhugað er íslenskunámskeið fyrir útlendinga á Flateyri. Vinsamlegast hafið samband í síma 4215 eða 3599. Icelandic for Foreigners: A course of Icelandic for foreigners will start on October 3rd at 8 pm in room 13 in Menntaskólinn á ísafirði. The course will be held twice a week, Tuesdays and Thursdays, 40 hours in all. Teacher: Þóra Karlsdóttir. Regis- tration by phone 3599 and 4215. Icelandic for Foreigners in Flateyri: A course of Icelandic for foreigners is þlanned in Flateyri. Please phone 3599 or 4215 for information and reg- istration. SAUMANÁMSKEIÐ: Það stendur til boða námskeið í búta- og fatasaum, 50 kennslustundir hvort námskeið. Upplýsingar hjá Sigrúnu Vernharðsdóttur í síma 3598. AUTOCAD TÖLVUTEIKNING 2: Námskeiðið er haldið í húsakynnum Menntaskólans á ísafirði og er einkum ætlað þeim sem lokið hafa við AutoCad 1, eða hafa hliðstæðaþekkingu. Tímasetninger ekki ákveðin ennþá. Námskeiðið er haldið í samvinnu við endurmenntunarnefnd Háskóla íslands. OFURMINNI: 12. og 13. október verður haldið námskeið í minnistækni. Fólki er kennd ný tækni við að muna atriði í leik og starfi. Námskeiðið verður 16 kennslustundir og hefst laugar- daginn 12. kl. 10.00 í Menntaskólanum á Isafirði. Lág- marksfjöldi 15-20 manns. Leiðbeinandi: GuðmundurÁs- mundsson. SKRAUTSKRIFT: Námskeið í skrautskrift hefst laugardaginn 12. okt. kl. 14.00 í Menntaskólanum. Námskeiðið er 6 kennslu- stundir alls og er deilt á tvo daga. Leiðbeinandi: Jens Guðmundsson. MYND- OG HANDMENNTIR: Eftir miðjan október er fyrirhugað námskeið í myndlist. Notaðar verða nýjar kennsluaðferðir. Leiðbeinendur: Leó Jóhannson og Erica G. Menzel. Stutt námskeið í tau- og silkimálun verður í samvinnu viðFöndurloftið. Leiðbeinandi: MálfríðurHalldórsdóttir. Keramik kvöldnámskeið verður í næsta mánuði, það verður 45 kennslustundir alls og níu kennslustundir á viku. Námskeiðið er haldið í Hússtjórnarskólanum Ósk. Leiðbeinandi: Ólöf Oddsdóttir. ENSKA Á SUÐUREYRI: 1. október kl. 20.00 hefst enskunámskeið fyrir byrjendur á Suðureyri. Námskeiðið verður haldið að Aðalgötu 20. Leiðbeinandi: Debbie Ólafsson. Vestfirðingcir hafið samband við Farskólann ef ykkur vantarfræðslu á einhverju sviði. Farskólinn er deild innan Menntaskólans á ísafirði. Innritun í síma 3599, 4215. Umsjónarmaður Farskólans er Ouðmundur Einarsson, heimasími 3697. Ath. nemendur utan ísafjarðar getafengið gistingu á heimavist M. /.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.