Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.09.1991, Síða 7

Bæjarins besta - 18.09.1991, Síða 7
BÆJARINS BESIA • Miðvikudagur 18. september 1991 7 • Mynd 5: Trúbadorinn afhenti ungfrúnni skilaboð um að flauta 12 sinnum í gæsaveiði- flautu sem hann afhenti henni. Birtust þá, ein af annari gæsirnar sem skipuðu gæsagengið eftir að hafa fylgst með öllu út um glugga sem áður hafði farið fram í Ósvör. Sigmundur Þorkelsson „Herra Gullrúntur“ flutti síðan gæsagengið á traktor það sem eftirlifði kvölds. • Mynd 7: Arnar Smári Ragnarsson, tengdabróðir ungfrúarinnar afhenti heimamundinn í fjarveru föður hennar, Einars Guðmundssonar. • Mynd 6: Skilaboð sótt á Shell Skálann í Víkinni um að nú skyldi heimamundurinn sóttur í foreldrahús. • Mynd 11: Um miðnættið bönkuðu þrír gullkroppar uppá í sumarbústaðnum og færðu ungfrúnni listilega skreytta, hjartalaga köku. • Mynd 8: Heimamundurinn skoðaður. Greinilegt var að faðirinn hafði notað tækifærið og tekið til í geymslunni en lét þó fylgja með forkunnarfagurt tré til gróðursetningar í garði dóttur sinnar. Dóttrr ungfrúarinnar, Ásdís Svava fylgist gaumgæfilega með. • Mynd 10: Kalt borð beið gengisins í sumarbústað í Syðridal við Bolungarvík. • Mynd 12: Gullkropparnir (frá hægri), Guðmundur Óskar Reynisson, Bjarki Friðbertsson og Guðmundur Markússon með ungfrúna í örmum sér. Farið var síðan í ýmsa leiki og dansað fram eftir nóttu. • Mynd 9: Tilvalið var áður en lengra var haldið, að bjóða ungfrúnni í reiðtúr. Ekki dugði minna en verðlaunagæða- gripur, Sódi, í eigu Sigmundar Þorkelssonar í Bolungarvík. • Mynd 13: Viku síðar.... Brúðhjónin Jóhanna Einars- dóttir (margumtalaða „Ungfrú Gullgæs“) og Hallgrímur Magnús Sigurjónsson á brúðkaupsdaginn 24. ágúst 1991 ásamt börnum sínum Ásdísi Svövu og Sigurjóni. Hjartan- lega til hamingju! Köttur út í mýri, setti upp á sig stýri. Nú er rétt að byrja „Frú Gullgæsarævintýri“.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.