Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.09.1991, Síða 8

Bæjarins besta - 18.09.1991, Síða 8
8 BÆJARINS BESIA • Miðvikudagur 18. september 1991 „Hér hef ég verið alla mína hundstíð og kattarævi“ — segir Axel Thorarensen í Gjögri og tekur hressilega í nefið AXEL Thorarensen í Gjögri í Árneshrepp er aft verða 86 ára og hefur biíift allan sinn búskap í Gjögri. Hann hefur stundaft sjó jafnframt búskapnum síftan hann var barn aft aldri og gerir enn. Axel er að vísu orðinn fótfúinn og á erfitt með að komast um borð í trillu sína. En hann leysir það vandamál með því að geyma bátinn á bryggjunni í Gjögri og lætur hífa sig í honum á sjóinn með löndunarkrana bryggjunnar. Eftir að hann er kominn um borð eru honum allir vegir færir, bæði með handfærin, grásleppunetin og byssuna. Axel er náttúrubarn og hefur alist upp við það, að Iifa á gæðum lands og sjávar. Menn eins og hann eru að hverfa úr íslensku þjóðlífi, því er ver. BB var á ferð í Árneshreppi fyrir skömmu og féllst Axel á viðtal við blaðið. Það fer hér á eftir: „Ég er fæddur hér að Gjögri 24. október 1906 og hér hef ég verið alla mína hundstíð og kattarævi. Það má heita að ég hafi verið við sjó síðan ég fæddist og fram á þennan dag. Það hefur alltaf verið svoleiðis hérna hjá okkur að meira hefur verið byggt á sjósókn en á hefðbundnum búskap. Svo- leiðis var það hjá pabba og líka hjá mér, að öll okkar af- koma var úr sjónum en ekki af landi. Við höfum haft nokkrar rollur til að éta sjálfir en ekki sem innlegg. Það er óhætt að segja það að ég fór til sjós undireins og ég fór að geta loftað ár- inni. Ég held að unglingar hafi mátt gera meira þá en nú á dögum. Mér virðist að minnsta kosti sumir þeirra vilji ekkert gera nema leika sér. Ég er ennþá á sjó, síð- ast var ég á sjó í fyrradag. Ég er ekki einn, þú skalt at- huga það. Ef Jakob sonur minn væri ekki með mér færi ég ekki langt. Kannski ef báturinn væri á floti, ég get ekki komið honum niður því ég kann ekkert á kran- ann á bryggjunni. Þar geym- um við bátinn alltaf núna. Það er nú einhver munur að hafa kranann, heldur en hér áður, að maður varð að sæta sjávarföllum við að fara á sjó. Tæknin er nú ekki öll til óþurftar, þó hún sé það að mestu leyti. “ Þetta var tal- inn glæpur „Ég fór einu sinni með Magnúsi Hannibalssyni í há- karlatúr á fimm tonna bát, dekkbát. Þetta var ekki langur túr því við fórum út um nóttina og komum inn kvöldið eftir með bátinn al- veg fullan af hákarli. Við drógum hákarlinn á vað fyrir norðan hann Barm. Þar lagðist Magnús nú í hálf- gcrðu óleyfi. Það mátti ekki leggjast á strauminn sent kallað var. Hákarlinn sótti alltaf á brákina í strauminn. Þetta var eiginlega talinn glæpur. Ég á við ef að há- karlaskip var komið út og var lagst. þá mátti ekki leggjast fyrir norðan það. Þá sótti allur hákarlinn und- an því að hinu skipinu. Hjalti Steingrímsson frá Hólmavík á Geir var kom- inn þarna út á undan og há- karlinn kominn undir hjá honum. Magnús var nú ekki á því að gefa sig og lagðist rétt norðan við Geir enda fylltum við bátinn á ör- skömmum tíma. Ég hef nú eiginlega aldrei farið á ver- tíð nema það að ég var með Kalla Löve á Elínu, 40-50 tonna línubát. Við voru tíu beitningamenn þar, allir frá Gjögri. Ég var bara einn túr, hálfan mánuð. Ég hef bara gutlað á sjó hér frá Gjögri.,, Fékk nóg af Reykjavík „Ég kom ekki til Rcykja- víkur fyrr en ég var kominn

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.