Bæjarins besta - 18.09.1991, Page 12
12
BÆJARINS BESIA • Miðvikudagur 18. september 1991
Nýjar bækur:
Sam-
tíningur
UT ER KOMIN Ijóða-
bókin „Samtíning-
ur“ með ljóðum og vísum
eftir Gunnar Guðmunds-
son frá Hofi í Dýrafirði.
Gunnar lést þann 30.
október 1987 og lét þá eftir
sig safn ijóða og vísna sem
hann hafði samið allt frá
árinu 1914. Efni bókarinn-
ar er að stofni til í formi
svokallaðra „þorrablóts-
vísna“ sem ortar eru um
náungann og það sem efst
var á baugi áður á árum.
Má víst telja að ýmsir sam-
tímamenn Gunnars kann-
ist við sig í sumum vísun-
um.
Bókin er gefin út í tak-
mörkuðu upplagi og verð-
ur ekki til sölu í bókaversl-
unum. Verð bókarinnar er
600.- kr. og þeir sem hafa
áhuga á að eignast eintak
geta fengið bókina keypta
hjá Katrínu Gunnarsdótt-
ur á Þingeyri í símum 8117
og 8317 eða pantað hana
hjá Birni Davíðssyni á ísa-
firði í síma 4560.
- fréttatilkynning.
BÆJARINS BESIA
- ávallt á
réttum tíma
Strandir:
Sauðfjár-
slátrun hafin
á Ströndum
HAUSTSLÁTRUN er
hafin af fullum krafti í
Strandasýslu. Slátrað er í
fjórum sláturhúsum; í Norð-
urfirði. á Hólmavík, á
Ospakseyri og á Borðeyri.
Að sögn Þórólfs Guð-
finnssonar hjá KSN, hefst
slátrun hjá Kaupfélagi
Strandamanna á Norður-
firði nk. föstudag. Eingöngu
er slátrað þar fé úr Arnes-
hreppi.
Hjá Kaupfélagi Stein-
grímsfjarðar á Hólmavík
hófst slátrun s.l. miðviku-
dag. Ólafur Ingimundarson,
sláturhússtjóri, sagði í við-
tali við BB að slátrað yrði
810 kindum á dag og yrði
slátrað alls eitthvað um 18
þúsund fjár. Af þeirri tölu
eru um 1300 fjár niður-
skurðarfé vegna fækkunar
búfjár. Reiknaði Ólafur
með að slátrun lyki helgina
19. - 20. október nk.
A mánudag hófst svo
slátrun hjá Kaupfélagi
Bitrufjarðar á Óspkseyri.
Torfi Halldórsson, slátur-
Núpur hf. býður Vestfirðingum frábært verð
á útsölunni sem hefst laugardaginn 21. september.
OPIÐKL. 10.00-13.00
Til dæmis:
Verðáður Verðnú
GUSTA VSBERG salerni 21.924.- 19.842.-
HANDLA UG á vegg 42x56 6.689.- 5.842.-
STURTUKLEFI80x80sm 62.014.- 55.813.-
PANELL fura/greni (pr/m) 894.- 804.-
PARKET eikrustical (stgr.) 3.531.- 3.208.-
PA RKET askur natur (stgr.) 3.495.- 3.094.-
DÚKUR ornam. life (pr/m2) 1.588.- 1.191.-
FLÍSARM-4530x30 (pr/m2) 2.505.- 2.194.-
O Gólfteppi
O Gólfdúkur
O Parket
O Flísar
O Mottur
10% afsláttur
10% afsláttur
5% afsláttur
8% afsláttur
10% afsláttur
Við seljum einnig afganga afteppum, dúkum
og flísum með allt að 50% afslætti.
EURO-KREDIT • VISA VILDARKJÖR
Gerum tilboð
að kostnaðarlausu
X
— verslun sem býður betur
hússtjóri hjá KBÓ, sagði að
slátrað yrði um 6000 dilkum
og einhverju niðurskurðarfé
hjá þeim. Áætlað er að
slátrun ljúki fyrir 10. októ-
ber, sagði Torfi. Slátrað er
frá 350 og upp í 400 fjár á
dag í sláturhúsi KBÓ. Slát-
urhúsið hefur hlotið löggild-
ingu, enda hafa miklar end-
urbætur verið gerðar á því.
Búið er að gjörbreyta hús-
inu, klæða neðan á öll loft
og byggja við húsið, færi-
bönd komin í loftin og
bakkabönd og búið að gjör-
bylta allri hreinlætisað-
stöðu, vatnslögnum og raf-
lögnum. Steypt hefur verið í
kringum húsið og fjárréttin
stækkuð og tæki endurnýuð,
sagði Tort'i að lokum.
Sverrir Björnsson. stjórn-
armaður í Kaupfélagi Hrút-
firðinga á Borðeyri, sagði
slátrun hafa byrjað á þriðju-
dag hjá þeim. Sagði hann að
slátrað yrði 13000 dilkum á
Borðeyri og 1000 af full-
orðnu fé. Einhverju niður-
skurðarfé yrði slátrað þar
líka. Búist væri við að dilka-
slátrun stæði til 17. október
og þá væri eftir fullorðið fé
og niðurskurðarfé. Þeir
slátra um 700 fjár á dag á
Borðeyri, sagði Sverrir.
Tvær síðustu vikurnar í
ágúst var slátrað 360 dilkum
til að fá ferskt kjöt á mark-
aðinn. Slátrað var einn dag í
hvorri viku og var meðal-
vigtin fyrri vikuna 15,3 kg
og lítið eitt hærri þá seinni.
-GHj.
• Frá Hólmavíkurréttum síðastliðinn laugardag.