Fréttabréf Biskupsstofu - 15.02.1979, Page 2

Fréttabréf Biskupsstofu - 15.02.1979, Page 2
2 4. MARZ ÆSKULÝÐSDAGUR ÞJÓÐKIRKJUNNAR 1979 Hinn árlegi æskulýðsdagur hefur að þessu sinni yfirskriftina JESÚS og BARNIÐ. Alþjóðaár barnsins 1979 hefur að sjálfsögðu mótað undirbúning og skipulag dagsins. Æskulýðsstarf Þjóðkirkjunnar hefur sent frá sér myndskreyttan bækling. Auk messuforms og sálma er þar að finna ávarp frá biskupi og leiðbeiningar til foreldra og uppalenda tim trúarlegt uppeldi. Bæklingurinn er vandaður að frágangi og gæti gagnast við ýmis tækifæri á barnaárinu. Æskulýösdagurinn mun verða haldinn hátíðlegur í hinum ýmsu söfnuðum landsins með sérstökum guðsþjónustum, fundum og samkomum. SÖFNUN HJÁLPARSTOFNUNAR Á JÓLAFÖSTU NAM 36 MILLJÖNUM KRÓNA Eins og kunnugt er gekkst Hjálparstofnun kirkjunnar fyrir landssöfnun á jóla- föstu undir einkunnarorðunim "Brauð handa hungruöum heimi". Söfnun þessi gekk mjög vel og þegar þetta er skrifað hafa safnast nálega 36 milljónir króna. Eins og fram hefur komið í fréttum fór Utanríkisráðuneytið þess á leit við Hjálparstofnun kirkjunnar að hluta þess söfnunarfjár sem safnað yrði væri varið til flóttamanna í flóttamannabúðum í Zaire, einkum 20 þúsund barna sem þar hefðust við. í því sambandi var bent á að mikill skortur væri á eggja- hvítuefnaríkri fæðu, og er nú í athugun, hvort um kaup á slíkum fæðutegundiam hér geti verið að ræða. Að öðru leyti mun það fé sem safnaðist verða varið til framhalds þeirra verkefna sem byrjað var á á sl. ári á vegum LÚtherska heimssambandsins í Súdan. Þess má geta, að það ár voru sendir 84.000 dollarar eða um 30 millj. ísl. króna á núverandi gengi. Nánar verður skýrt frá þessum verkefnum innan tíðar. KIRKJULEG ÞJÓNUSTA MEÐAL HEYRNARSKERTRA Fáir eru jafn einangraðir 1 íslenzku þjóðfélagi sem heyrnarskertir. í kirkjunni hafa þeir verið utangarðsmenn til þessa, þar sem þeir hafa verið afskiptir um kirkjulega þjónustu er miðast við þeirra sérþarfir. Kristín Sverrisdóttir, sérkennari, hefur nú verið ráðin í hlutastarf meðal heyrnarskertra á vegum Kristnisjóðs. Mun hún skipuleggja félagsstarf á kristnum grunni meðal fullorðinna og annast um kirkjuskóla fyrir heyrnar- skert börn. Hefur tekizt hið ágætasta samstarf við skólann og foreldrafélag heyrnarskertra, sem mun hafa beðið um þessa þjónustu. Kristín Sverrisdóttir stundaði sérnám sitt í framhaldsdeild Kennaraháskólans og sxðan við sérkennaraskóla norska ríkisins í Oslo. HÚn lauk einnig prófi í kristindómsfræðum við Safnaðarháskólann (Menighetsfakultetet) í Oslo. Undanfarið hefur Kristín starfað í Bjarkarási.

x

Fréttabréf Biskupsstofu

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Biskupsstofu
https://timarit.is/publication/1507

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.