Fréttabréf Biskupsstofu - 15.02.1979, Page 5

Fréttabréf Biskupsstofu - 15.02.1979, Page 5
5 "Prófastsdæmin sem starfsheildir undir stjórn prófasta" er aðalmál ráðstefnunnar að þessu sinni. Auk þess munu hinir sérhæfðu starfsmenn kirkjunnar hitta prófasta að máli og ræða störf sín og áform. Prófastar Þjóðkirkjunnar eru 15 talsins. STARFSáÆTLUN SÖNGMÁLASTJÓRA Heimsóknir söngmálastjóra til kirkjukóra munu verða sem hér segir árið 1979: Febrúar: Kjalarnesprófastsdæmi Marz: Reykjavíkurpróf.dæmi Apríl: Árnesprófastsdæmi Maí: Múla- og Austfjarðapróf.dæmi Ágúst: Árnesprófastsdæmi Sept./okt.: HÚnavatnsprófastsdæmi Nóv./des.: Eyjafjarðarprófastsdæmi Námskeið: 23.-26. ágúst: KÓra og organistanámskeið í Skálholti Október: Námskeið í raddbeitingu í Reykjavík 7.-21. júní: Kynnisför organista og annarra áhugamanna til Leipzig og V.in. Tilgangur fararinnar, sem jafnframt er hugsuð sem námsför, er einkum sá að þátttakendum gefist kostur á að heyra það bezta sem gerist erlendis í kirkjutónlist og öðrum tónlistarflutningi. Ennfremur að kynnast þvi hvernig guðsþjónustur fara fram í þeim borgum sem ferðast er til með þeim vandaða ton- listarflutningi sem þar tíókast. Skoðuð verða Bachorgel svonefnd og margir sögustaðir sem tengdir eru tónlistarmönnum, svo sem Baoh, Mozart, Schubert, Beethoven og öðrum meisturum. Þá verður komið til staða tengdra k.irkjunni, svo sem Erfurt, þar sem LÚther nam. dreifing notaðs fatnaðar Á VEGUM HJÁLPARSTOFNUNAR Allt frá stofnun hefur Hjálparstofnun kirkjunnar boðist verulegt magn fatn- aðar, bæði nýs og notaðs og er nú í athugun hjá stofnuninni hvort eðlilegt sé að stofnað verði til dreifingarmiðstöðvar á þessum fatnaði tii landsmanna. Er nú unnið að athugun á þessu máli og er niðurstöðu að vænta í lok þessa mánaðar. prestastefnan á ísafirði 19.-22. JÚNÍ í ár verður prestastefnan haldin á ísafirði og verður viku fyrr en venjan er. ^erður hún sett þriðjudaginn 19. júní kl. 14. Efni stefnunnar hefur ekki verið endanlega ákveðið, er. verður tilkynnt innan tíðar. Undanfarin ár hafa nokkrar prestastefnur verið haldnar úti á landi, þótt Reykjavík sé algengasti fundarstaðurinn. Verður þetta fyrsta prestastefna á Vestfjörðum. Sköpuð verður aðstaða fyrir presta að kcma með fjölskyldur sínar til stefnunnar, enda barnaárl - og þá væntanlega eitthvað gert fyrir börnin líka .'

x

Fréttabréf Biskupsstofu

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Biskupsstofu
https://timarit.is/publication/1507

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.