Fréttabréf Biskupsstofu - 15.02.1979, Page 6

Fréttabréf Biskupsstofu - 15.02.1979, Page 6
6 ÁSTAND KIRKJUGARÐA FER BATNANDI - EN ER EKKI NÓGU GOTT Aðalsteinn Steindórsson hefur verið eftirlitsmaður kirkjugarða undanfarin ár. Er hann ráðgjafi um skipulag þeirra og viðhald, "hvati til þess að hugsað sé vel um garðana". Hann er til húsa hjá HÚsameistara ríkisins, sími: 27177. Aðalsteinn er að skipuleggja ferðastarf sitt á sumri komanda og ættu þeir sem vildu fá heimsókn hans að hafa samband sem fyrst. Nýr kirkjugarður fyrir Reykjavíkursvæðið er nú í undirbúningi í grennd við Gufunes. Það er meira verk en flestir ætla, m.a. hefur kostað um 100 millj. að ræsa fram kirkjugarðsstæðið. Ætlað er að þessi garður dugi Reykjavík og íbúum nágrennis til 2030. NÁMSKEIÐ UM BOÐSKIPTI í KIRKJULEGU STARFI í SKÁLHOLTI 14.-16. ÁGÓST Dr. James Engel, forstjóri fjölmiðlunardeildar Wheaton College í Chicago,mun stjórna námskeiði í sumar í Skálholti. Fjallað verður um boðskipti (kommun- ikation) og boðun (evangelisation) í samfélagi nútímans og hversu nýta má fjölmiðla þar til. Dr. Engel var lengi prófessor í markaðstækni við Michigan-State og formaður bandarísku samtakanna um þau mál. (American Association of Marketing). Dr. Engel er nú í Afríku, þar sem hann er ráðgjafi ýmissa kirkna og kristni- boðsfélaga í leit þeirra að nýjum aðferðum við kristniboð. Hingað kemur hann frá Noregi, þar sem hann stjórnar námskeiðum á vegum norskra kristniboðssamtaka. KIRKJURÁÐ FUNDAR Kirkjuráð er á fundi nú um mánaðarmótin febrúar - mars. Meginefni fundarins er rekstur Skálholts, úthlutun starfsstyrkja úr Kristnisjóði og framkvæmd og vinnsla ýmissa samþykkta kirkjuþings, sem kom saman á s.l. hausti. Kirkjuráð er kostið af Kirkjuþingi, sem kemur saman annað hvert ár og er framkvæmdaraðili þess. í Kirkjuráði sitja: Gunnlaugur Finsson, Hvilft, Önundarfirði Vilhjálmur Hjálmarsson, Brekku, Mjóafirði Sr. Pétur Sigurgeirsson, Akureyri Sr. Eirikur Eiriksson, Þingvöllum og Sigurbjörn Einarsson, biskup, sem er forseti Kirkjuráðs. ÞJÓÐKIRKJAN RÆÐUR FRÉTTAFULLTRÚA Kirkjuþing hefur tvívegis samþykkt ályktunartillögu um það að fela Kirkjuráði að útvega kirkjunni blaðafulltrúa (betra starfsheiti er trúlega fréttafulltrúa). Vegna fjárhagsörðugleika hefur ekki getað orðið úr framkvæmd meðan allur þunginn af rekstri Skálholtsskóla hvíldi á Kristnisjóði. NÚ hefur nokkur fjárhagsgrund- völlur verið tryggður og var sr. Bernharður Guðmundsson ráðinn til starfans fyrir nokkru. Hann lauk meistaraprófi í fjölmiðlunarfræðum (Mass Communications) við S. Illinois háskóla í Bandaríkjunum, en starfaði áður við útvarpsstöð LÚtherska heimssambandsins í Eþíópíu. Áður gegndi hann prestsþjónustu innan íslenzku Þjóðkirkjunnar.

x

Fréttabréf Biskupsstofu

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Biskupsstofu
https://timarit.is/publication/1507

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.