Bæjarins besta - 20.01.1993, Blaðsíða 6
6
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 20. janúar 1993
íþróttamaður ísafjarðar 1992:
Asta S. Halldórsdóttir skíða-
kona hlaut sæmdarheitið
- átján aðrir íþróttamenn heiðraðir
KJÖR á íþróttamanni ísafjarðar fyrir árið 1992 fór fram
í hófi sem haldið var á vegum Isafjarðarkaupstaðar á Hótel
Isafirði á fimmtudag í síðustu viku. Fjölmenni var á hófínu
sem hófst með ávarpi Höllu Sigurðardóttur, formanns
Iþrótta- og æskulýðsráðs Isafjarðar, en að jjví loknu af-
henti Gylfí Guðmundsson viðurkenningar frá Iþróttabanda-
lagi Isafjarðar til átján íþróttamanna sem sýnt höfðu góðan
árangur á árinu.
Þeir íþróttamenn sem hlutu
viðurkenningar voru Helga
Sigurðardóttir sundkona sem
þríbætti Islandsmetið í 50
metra skriðsundi og setti Is-
landsmet í 100 metra skrið-
sundi á árinu, og náði þar með
lágmarki til að keppa á Olym-
píuleikunum í Barcelóna, þar
sem hún stóð sig með prýði,
Pálína Björnsdóttir sundkona,
sem er í A-landsliði Islands í
sundi eins og Helga, Halldór
Sigurðarson sem sett Islands-
met í 4x100 metra flugsundi,
Hlynur Tr. Magnússon sem
setti einnig Islandsmet í 4x 100
metra tlugsundi, Viðar Þor-
láksson sem setti Islandsmet í
4x100 metra flugsundi og
Edward Orn Hoblyn sem sett
Islandsmet í 4x 100 metra flug-
sundi og Islandsmet í 4x100
metra flugsundi pilta.
Þá fengu þrír aðrir sund-
menn viðurkenningar fyrir að
hafa sett Islandsmet í 4x100
metra flugsundi á árinu en það
voru þeir Bjarki Þorláksson,
Þorri Gestsson og Valur Mag-
nússon. Asta S. Halldórsdóttir
skíðakona fékk viðurkenningu
fyrir að hafa verið Islands-
meistari á skíðum í svigi, stór-
svigi, alpatvíkeppni og sam-
hliðasvigi auk þess sem hún
var Bikarmeistari SKÍ í alpa-
greinum kvenna. Asta var valin
til að taka þátt í Olympíu-
leikunum í Albertville í Frakk-
landi á árinu og stóð sig með
prýði. Þá fékk Arnór Þ. Gunn-
arsson skíðamaður viður-
kenningu en hann er í A-lands-
liði Islands á skíðum.
Aðrirskíðamenn sem fengu
viðurkenningu voru Sigríður
B. Þorláksdóttir sem varð
Unglingameistari í svigi í 13-
14 ára flokki og Bikarmeistari
í alpagreinum 13-14 ára
stúlkna, Bjarki Egilsson sem
er Unglingameistari í svigi og
alpatvíkeppni í 13-14 ára
flokki, Róbert Hafsteinsson
sem er Unglingameistari í svigi
15-16 ára pilta, Amar Pálsson
sem er Unglingameistari í 5
km. og 7,5 km. skíðagöngu
15-16 ára piltaog Bikarmeistari
SKÍ í 15-16 ára flokki, Gísli
Einar Amason sem er unglinga-
landsliðsmaður í skíðagöngu,
Daníei Jakobsson sem er ís-
landsmeistari í 15 km. göngu í
karlaflokki, og í flokki 17-19
ára og er í A-landsliði Islands
• Asta S. Halldórsdóttir
nýkjörin íþróttamaðurísa-
fjarðar 1992.
í skíðagöngu og Auður
Ebeneserdóttir sem er Islands-
meistari í skíðagöngu kvenna.
Tveimur íþróttamönnum úr
Iþróttafélaginu Ivari, sem tóku
þátt í vinabæjarleikum í Sví-
þjóð á síðasta ári voru veittar
viðurkenningar fyrir frábæran
árangur, en þar voru þeir
Kjartan I. Kjartansson sem
vann til gullverðlauna í lang-
stökki og 60 metra hlaupi og
Guðmundur Þórarinsson en
hann vann gullverðlaun í kúlu-
varpi.
Áætlað hafði verið að
Ellert Schram, forseti Iþrótta-
sambands Islands myndi flytja
ávarp en að því gat ekki orðið
þar sem ekki var flugfært til
Isafjarðar á fimmtudag. Eftir
að viðstaddir höfðu gætt sér
á þeim veitingum sem í boði
voru var komið að stóru
stundinni, það er kjöri Iþrótta-
manns Isafjarðar og sá Einar
Garðar Hjaltason forseti
bæjarstjórnarumþákynningu.
Iþróttamaður Isafjarðar 1992
var kjörin Ásta S. Halldórs-
dóttir skíðakona frá Bolung-
arvík sem verið hefur félagi í
Skíðafélagi Isafjarðar í tæp
10 ára eða frá haustinu 1983,
en þá var hún 13 ára gömul.
Veturinn 1984 varð Ásta
unglingameistari í stórsvigi og
alveg síðan þá hefur hún verið
í fremstu röð íslenskra skíða-
manna. Fjögur undanfarin ár
hefur hún orðið Islands-
meistari í svigi og í allt orðið
þrettán sinnum Islandsmeistari
frá árinu 1987 er hún byrjaði
að keppa í fullorðinsflokki,
þá ári yngri en venja er. Á
síðasta ári varð Ásta fjórfaldur
Islandsmeistari, hún varð
einnig bikarmeistari SKI í svigi
og stórsvigi og á alþjóða-
mótum sem haldin voru í apríl
varð hún í þriðja sæti í saman-
lögðu á þessum mótum. Ásta
keppti fyrir Isafjörð á Olym-
píuleikunum í Albertville í
Frakklandi í febrúar og var
fánaberi liðsins. Á heimslista
(punktalista) er Ásta nr. 97 í
svigi af 2500 en þess má geta
að frá því að núverandi
punktakerfi var tekið upp árið
1984 hefur enginn annar Is-
lendingur náð þeim árangri.
Ásta var ekki viðstödd at-
höfnina þar sem hún er á
æfinga- og keppnisferð á Italíu
og Austurríki og voru það því
foreldrar hennar, þau Halldór
Benediktsson og Steinunn
Annasdóttir, sem tóku við
viðurkenningunni. BB óskar
Ástu og öllum þeim íþrótta-
mönnum sem fengu viður-
kenningar á hófinu til hamingju
sem og velfarnaðar í fram-
tíðinni. -s.
• Þjálfarar íþróttafólksins fengu blómvendi sem virðingarvott fyrir þeirra starf. F.v.
Þorlákur Baxter Kristjánsson, Hafsteinn Sigurðsson, Gunnar Bjarni Ólafsson,
Auður Ebenesardóttir, Sigga Maja Gunnarsdóttir, Málfríður Hjaltadóttir og Albert
Magnússon.
• Foreldrar Ástu, Steinunn Annasdóttir og Halldór Benediktsson taka hér við
viðurkenningu dóttur sinnar úr hendi Einars Garðars Hjaltasonar forseta bæjar-
stjórnar á ísafirði.
• íþróttamennirnir sem fengu viðurkenningu á hófinu og aðstandendur þeirra sem
ekki gátu verið viðstaddir, að veitingu lokinni. F.v. Steinunn Annasdóttir, móðir
Ástu S. Halldórsdóttur, Sigurborg Þorkelsdóttir, móðir Arnórs Þ. Gunnarssonar,
Sigríður B. Þorláksdóttir, Róbert Hafsteinsson, Albert Magnússon, bróðir Hlyns Tr.
Magnússonar, Arnar Pálsson, Viðar Þorláksson, Gísli Einar Árnason, Edvard Örn
Hoblyn, Bjarki Egilsson, Kjartan I. Kjartansson, Þorri Gestsson, Guðmundur Þórarins-
son, Halldór Sigurðsson og Bjarki Þorláksson. Á myndina vantar þau Pálínu
Björnsdóttur, Helgu Sigurðardóttur, Val Magnússon, Daníel Jakobsson og Auði
Ebeneserdóttur.
- segir skíðakonan snjalla er blaðið náði
sambandi við hana í Austurríki
á mánudaginn þar sem hún var
í æfínga- og keppnisferð
KINS og kemur fram annars staðar hér í blaðinu, þá varðskíða-
konán snjalla úr Bolungarvík, Ásta S. HalMórsdóttirkjörin f þrótta-
maður ísafjarðar 1992 f hófi sem bæjarstjórn ísafjarðar hélt á
Hótel ísafirði á fimmtudag í síðustu viku. Ásta sem verið hefur
félagi í Skíðafélagl ísafjarðar um tíu ára skeið gat ekki verið
viðstödd útnefninguna, vcgna þess að hún hefur verið f æfinga-
og keppnisferð á ftalíu og í Austurríki frá því f byrjun janúar með
góðum árangri en BB náði samband við hana á mánudag þar sem
hún var stödd á skíðahóteli í Austurríki og var að undirbúa sig
undir mót sem fram átti að fara daginn eftir, í gær þriðjudag.
Fremur sl;em! símasanihand ágætlega. ÍVÍér héfursjálfri gengíð
var við Austurríki en þegar hún
varð spurð að því hvernig henni
hefði orðið við þegar hún frétti
af útnefningunni sagði hún að
sér hefði verið brugðið en því
væri ekkt að neita að útnefning
sem þessi værí ánægjuleg oghvetti
hana til dáóa. En hvernig hefur
æfingarferðin gengið?
„Hún hefur gengið ágætlega.
Víð fórum til Italíu 2. janúar og
vorum þar við æfingar í sex daga.
Síðan þá hðfum viö verið hér í
Austurríki, bæði við æfingar og
keppni og okkur hefur gengið
ágætlega. þó syo aó það hafi ekki
verið urn neinar stórar bætingar
aó ræða. Ég hef tekið þátt í
fjðrúm mótum og er þokkalega
ánægð með ú tköm una. Ég varð
í 5., 14. og 15. sæti í þremur
mótúm en hef ekki fengió niðtir-
stöðu úr þvt fjórða og svo er
fimmta mótið á morgun
(þriðjudag), svokallað Low-
Lander mót eða Láglandamót og
ég vona að mér takist vel upp í
því.”
-Hvað verðið þið lengi við
æfingar í Austurríki?
♦ Ásta S. Halldórsdóttir
,,Eg reíkna með að fara heim
tíl Svíþjóðará morgun því það er
enginn snjór hér. Þaó er búið að
festa öllum mótum hér út
mánuðinn og því er ekkert annað
að gera en að koma sér heima,”
-Og hvað er svo frantundan?
„Það eru mót bæði í Svíþjðð
Og Finnlandi og síðan er það
Landsmótió heima á íslandi í
apríl ”
-Og þar ætlarþú að sjálfsögðu
að hreinsa öll gullin?
„Ég veit það ekki, ég lofa engu
en ég geri mitt besta” sagði Ásta.
Hún vildi eínnig koma á fram-
færi bestu þókkum fyrir veittan
heiður sem hún sagðist vona aó
hún gæti staóið undir og þá bað
hún fyrir bestu kveójur heim og
sagði að sér og öllum sem væru
þarna úti liði vel. Blaöið ítrekar
hamingjuóskir sínar til Ástu og
óskar henni velfarnar í fram-
tíðinni.
-s.