Bæjarins besta - 20.01.1993, Síða 8
8
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 20. janúar 1993
Samkeppni um
merki og slagorð
Ferðamálasamtök Vestfjarða og Fjórðungssamband Vest-
firðinga efna til samkeppni um hönnun merkis og slagorða sem
lýsir ímynd Vestfjarða. Hér með er auglýst eftir hugmyndum að
hvoru tveggja.
Markmið samkeppninnar er að leita eftir merki og slagorðum
semverðasamnefnariferðaþjónustunnarífjórðungnum.Merkinu
er ætlað að prýða minjagripi, umbúðir, auglýsingar og annað
sem tengist ferðaþjónustu. Slagorðin eru fyrst og fremst ætluð
til nota í auglýsingar og kynningar.
Merkið skal umfram allt vera stílhreint og einfalt og mikilvægt
er að í því birtist hreinleiki fjórðungsins. Skila skal teikningum af
því og skriflegri lýsingu á hugmyndinni að baki þess.
Samkeppni þessi er öllum opin og er heimilt er að skila inn
hugmyndum að merkinu einu sér eða slagorði eða hvoru
tveggja.
Hugmyndum ber að skila í lokuðu umslagi merktu dulnefni en
nafn höfundar fylgi með í lokuðu umslagi.
Verðlaun eru kr. 100.000 fyrir merki og kr. 5.000 fyrir hvert
slagorð (alls verða 5 slagorð verðlaunuð). Veitt verða tvenn
aukaverðlaun fyrir merki:
Kvöldverður og gisting fyrir tvo eina nótt í hótel Flókalundi og
Hornstrandaferð fyrirtvo með m/s Fagranesi.
HugmyndumskalskilaðtilferðamálafulltrúaVestfjarða.Önnu
MargrétarGuðjónsdóttur, Byggðastofnun Ísafirðí, Hafnarstræti
1, 400 ísafirði, sími 94-4633, sem einnig veitir nánari upp-
lýsingar.
Skilafrestur er til 15. mars 1993.
Dómnefnd skipa eftirtaldir aðilar:
Áslaug Alfreðsdóttir, formaður ferðamálasamtaka Vestfjarða,
Björk Jóhannesdóttir, myndmenntakennari,
Gunnar Jóhannsson, formaður
Fjórðungssambands Vestfirðinga.
Dómnefnd áskilur sér rétt til að nýta, að höfðu samráði við
höfunda, hluta hugmyndar eða hafna þeim öllum.
GOSI
Sjoppa og billjardstofa að Mánagötu
6, ísafirði er til sölu.
Upplýsingar í slma 3425.
SVÆÐISSKRIFSTOFA
MÁLEFNA FATLAÐRA
VESTFJÖRÐUM
Mjallargötu 1 • 400 ísafjörður • Sími 94-3244
Samgöngumál á Vestfjörðum:
• •
„0skiibusM‘
veslfirska vegakeifisins
■segir Hallgnmur Sveinsson um Vesturleiðina
HALLGRÍMUR Sveinsson bóndi á Hrafnseyri við Arn-
arfjörð er mörgum kunnur og þá ekki síst fyrir skoðanir
sínar á samgöngumálum á Vestfjörðum. Blaðamaður leitaði
fanga hjá Hallgrími og fckk hann til að segja sína skoðun á
þessum málum og þá sérstaklega þeim málum sem að honum
snéru.
„Eg og fleiri teljum að upp-
bygging vesturleiðarinnar, þ.e.
leiðin frá Þingeyri í Vatns-
fjörð, sé mjög mikilvæg fyrir
okkar byggðarlag. Því er ekki
að leyna að ýmislegt hefur
verið gert og það má engan
veginn vanþakka, en það er
hægt að gera betur á ýmsan
hátt.
Það sem fólk hér á mið-
hluta Vestfjarða finnur einna
helst fyrir er að geta ekki
notfært sér flóabátinn Baldur á
leið sinni suður eins og það
kysi og er þá samgöngumálum
um að kenna. Baldur þarf að
geta flutt bæði fleira fólk og
bíla til að geta staðið undir
sér. Eg tel að að þeim málum
beri að huga betur.
Hvað viðkemur snjó-
mokstursmálum þá finnst
okkur héma á svæðinu að allt
of oft og sérstaklega á haustin
sé einn skafl látinn kljúfa Vest-
firði í tvennt, sem oft kemur
fyrir á Hrafnseyrarheiði á
haustin. Þessi mál eru erfið
og hlutverk vegagerðarmanna
er oft ekki auðvelt.”
-Ef þú mættir ráða hvað gert
yrði á þessu svæði, hvað
myndir þú þá gera?
„Ef ég mætti ráða kæmi
aðeins eitt til greina og það
væru jarðgöng í gegnum
Hrafnseyrarheiði sem yrðu
um kílómeters löng og síðan
upphleyptur vegur á Hrafns-
eyrardal og Brekkudal. Við
teljum að hægt sé að gera upp-
hleyptan, snjóléttan veg fram
dalina báðum megin.”
-Heldurðu að draumurinn
verði að veruleika?
„Það var talað um það á
sínum tíma að þegar jarð-
gangagerð á Vestfjörðum lyki
yrðu Austfirðirnir næstir en
hver veit nema hægt yrði að
skjóta þessu svona inn í milli
þar sem þeir eru staddir hérna
á annað borð. Ef slíkt yrði
gert væri hægt að Iáta draum
allra sveitarstjórnarmanna
hérna á svæðinu verða að
veruleika, þ.e. að koma upp
heilsárs samgöngum á Vest-
fjörðum. Eftir að jarðgöngin
í Tungudal verða komin í
gagnið verður Hrafnseyrar-
heiðin versti farartálminn hér
á Vestfjörðum. Ef draumurinn
um jarðgöng í gegnum Hrafns-
eyrarheiði verður að veru-
leika þýðir það stórfelldar
breytingar fyrir fólk á sunnan-
verðum Vestfjörðum upp á
samskipti norðurávið. Veginn
frá Þingeyri yfir í Vatnsfjörð
hef ég leyft mér að kalla ösku-
busku vestfirska vegakerfisins
og tel það vera réttnefni.
Eg hef oft vitnað í það að á
dögum Persakeisara lagði
hann mikið upp úr því að
leggja vegi um sitt víðlenda
ríki og var með hraðboða á
sínum snærum. Sama gerðu
Rómverjar en það er ekki fyrr
en fyrst núna sem Islendingar
eru að átta sig á nauðsyn þess
aðhafagóðarsamgöngur. Um
leið og samgöngurnar eru
komnar í gott horf kemur allt
hitt á eftir. Samgöngur eru
undirstaða sameiningar
sveitarfélaga sem svo mikið
hefur verið rædd upp á síð-
kastið.
Vió búum á erfiðu svæði
og því skiptir samstaða heima-
manna miklu máli. Menn
verða að líta á Vestfirði sem
eina heild og vinna út frá því.
Eg geri mér grein fyrir því að
það er ekki hægt að gera allt í
einu en leikmannsþankar cru
saklausir og það kostar ekkert
að láta sig dreyma.” Og því
má bæta við í lokin að sökum
þess hversu snemma fór að
snjóa þá hefur Hrafnseyrarhei
verið lokuð frá því í byrjun
nóvember og er lítið útlit fyrir
að hún opnist fyrr en í apríl/
Súðavík:
Nýr
oddviti
N YR odd viti hefur verið
kjörinn t hreppsnefnd
Súðavíkur í stað Hálfdáns
Kristjánssonar sem ný-
verið tók við stöðu bæjar-
stjóra á Ólafsfírði.
Hinn nýi oddviti er Elvar
Ragnarsson verkstjóri og
hlaut hann þrjú atkvæði
hreppsnefndar en Heiðar
Guðbrandsson hlaut tvö at-
kvæði. Sigríður Hrönn
Elíasdóttir sveitarstjóri var
kjörin varaoddviti á fundi
hreppsnefndar sem haldinn
var á miðvikudag í síðustu
viku. -S.
Afmæli:
75ára
MARGRÉT Magnús-
dóttir Ibúðum aldraðra
Höfðastíg Bolungarvík
verður 75 ára 22. janúar
næstkomandi.
Hún tekur á móti gestum
á heimili sonar síns og
tengdadóttur að Völusteins-
stræti 22 í Bolungarvík
sunnudaginn 24. janúareftir
kl. 16.
Svœðisskrifstofa óskar eftir starfsmanni
í fímabundið starf við tvœr íbúðir í
Pollgötu.
Starfið felstí því að vera stuðningur við
íbúa varðandi athafnir daglegs íífs.
Umsóknarfrestur er til 25. janúar 1993.
Upplýsingar gefa Birna og Laufey ó
skrifstofunni í síma 3224.
Átthagafélag Strandamanna
Þorrablót Átthagafélags Strandamanna
verður haldið laugardaginn 30. janúar kl.
20.00 í Félagsheimilinu í Hnífedal.
Ath. Húsið verður opnað kl. 19.30.
BG-flokkurinn spilar íyrir dansi.
Trog.
Miðasalan íer fram fimmtudaginn 28. janúar
í anddyri Hraðfrystihússins Norðurtanga milii
kl. 18 og 19.
Miðapantanir: Dísa Hjartar í síma 7379,
Anna Torfadóttir í síma 7266, Anna
Björgmundsdóttir í síma 7475 og Sjöfn
Guðmundsdóttir í síma 7215 og 7255.
Nefhdin.
Gísla Björg Einarsdóttir skrífar:
Á UNDANFÖRNUM vikum
og mánuðum hafa verið
þónokkur blaðaskrif í okkar
ágæta Vestfirska fréttablaði
um hreppsnefndarmál í
Broddaneshreppi á Strönd-
um. Fyrir þá sem ekki
þekkja til málsins, þá var
kært til félagsmálaráðu-
neytis kosmnghreppsnefnd-
ar í störf við Broddanes-
skóla.
Þar sem mér finnst margt
hafa skolast til hjá frétta-
mannínum ætla ég að reyna
að bæta aðeins úr því.
Broddaneshreppur er ný-
stofnaður hreppur sem varó
til vió sameiningu Fells- og
Óspakseyrarhrepps um ára-
mótin 1991-2. Vegna þessa
varð að breyta stjórnskipan
hreppsins og var því öllu
starfsfólki við skólann sagt
upp, utan kennara og stöður
þeirra auglýstar. Mikið var
gert úr þeirri staðreynd aó
skólabílstjóra og matráós-
konu hafði verið sagt upp og
aðrir ráðnir í staðinn.
Skólabílstjórinn sótti um
starfið ásamt tveimur öðrum
og var kosið á milli þeirra,
þar sem of lítið þótti koma í
hlut hvers og eins ef starFmu
væri skipt milli umsækjenda
pgátti það sama við um starf
við ræstingu skólans. Um
stöðu matráðskonu sótti
aðeins ein manneskja. I ræst-
ingu var sama manneskja og
hefur verió undanfarin ár
ráðin. Þá er það ,,aðal”
ráðningin að mati frétta-
ntanns: Skólabílstjórinn.
• Gísla Björg Einarsdóttir.
Að sjálfsögðu hefði þar
ýmislegt rnátt bctur fara og
tengdafaðir umsækjandans
átti að víkja af fundi. En nú
langar mig að benda á dálítið.
Þetta er ekki nógu stórt
sveitarfélag og mikið um
skyldleika og tengsl fólks.
Það hefði oróið erfitt að
manna hreppsnefndarfund ef
enginn hefði átt að kjósa um
sitt fólk. Það cru fimm í
hreppsnefnd en aðeins 3-4 af
bæói aðal- og varamönnum
óskyldir einhverjum um-
sækjendanna.
Ég heid varla að fundur þar
sem skipta þarf mönnum út,
óttogtítt, sé traustvekjandi til
afspurnar. Að lokum langar
jyAð sjálfsögðu
hefði þarýmislegt
mátt beturfara
og tengdafaðir
umsœkjandans átti
að víkja af fundi.
En nú langar mig
að benda á dálítið.
Þetta er ekki stórt
sveitarfélag og mikið
um skyldleika og
tengslfólks. Það
hefði orðið erfitt að
manna hrepps-
nefndarfund ef
enginn hefði átt að
kjósa um sittfólk.”
mig til að bæta því við að
ráðning skólabílstjórans var
staðfest á öðrum fundi, þó
svo að tengdafaóirinn sæti
ekki þann fund. Ráðningin
var staófest með sama at-
kvæðisfjölda og á fyrri fund-
inum. Eg hygg ekki á fleiri
blaðaskrif um þetta mál.
Gísla Björg Einarsdóttir.