Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.03.1993, Blaðsíða 3

Bæjarins besta - 03.03.1993, Blaðsíða 3
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 3. mars 1993 3 Skýrsla vinnunefndar um sameiningu sveitarfélaga á Vestfjörðum: Hagkvæmni er lykilorðið Bættar samgöngur meginforsenda þess að af sameiningu geti orðið pblög og • srmfnmm Kennitöíur og símanúmer fyfírtækjaskra Vöru- orj þjónustöSkra lícnfeöUaskra VINNUNEFND Fjórðungssambands Vestfirðinga um sam- einingu sveitarfélaga á Vestfjörðum hefur skilað skýrslu sinni sem kunnugt er. I nefndinni voru, sem aðalmenn: Guðmundur H. Ingólfsson Hnífsdal, Björgvin Sigurjónsson Tálknafirði, Stefán Magnússon Reykhólum, Gunnar Jóhanns- son Hólmavík og Bergur Torfason Mýrarhreppi. Varamenn voru: Jónas Olafsson Þingeyri, Magnús Björnsson Bíldudal, Bjarni P. Magnússon Reykhólum, Stefán Gíslason Hólmavík og Jóhann T. Bjarnason Isafirði. I skýrslu nefndarinnar kennir ýmissa grasa og nefndin kemst að þeirri nióurstöðu að sameina beri sveitarfélög þannig aö Strandasýsla verði eitt sveitarfélag nieð sam- einingu Ames-, Kaldrana-, Hólma- víkur-. Broddanes-, og Bæjar- hreppa. Norður- og Vestur- ísafjarðar- sýslaog Bolungarvíkurkaupstaður og Isafjaróarkaupstaður verði eitt sveitarfélag með sameiningu Þing- eyrar-, Mýra-, Mosvalla-, Flateyrar- Suðureyrar-, Súðavíkur-, Ogur-, Reykjafjarðar-, Nauteyrar- og Snæ- fjallahreppa og Bolungarvíkur- kaupstaðar og Isafjaróarkaup- staðar. Vestur-Barðastrandasýsla verði sameinuð í eitt sveitarfélag með því að sameina Barðastrandar-, Rauóasanda-, Patreks-, Tálkna- fjarðar- og Bíldudalshreppi. Austur-Barðastrandasýsla, sem þegar hefur verið sameinuð í Reykhólahrepp verði áfram eitt sveitarfélag. I niðurstöðum segir ennfremur að sameining sveitarfélaga á Vest- fjörðum sé æskileg ,,til þess að hægt verði að vinna skipulega aó því að styrkja búsetu innan fjórð- ungsins og marka helstu viðfangs- efnum þar að lútandi þann farveg sem nauðsynlegt er.” Óttast að ríkið standi ekki við samninga Nefndin hélt fundi með öllum sveitarstjórnum á svæðin þar sem sameiningarmálin voru rædd. Fram kemur í skýrslunni að vissra efa- senida hafi gætt meðal sveitar- stjórnarmanna en tekið fram að viðtökurnar hafi verið jákvæðar í flestum tilvikum. Meðal þeirraefa- semda sem fram komu má nefna ótta vió að ríkisvaldið „...standi ekki við gerða samninga og erfitt sé að tryggja samningagerð við þann aðila.” Sagt er að fyrsta atriðið sem fram kom á fundum með sveita- stjórnunum hafi verið að reynslan af samningageró við ríkió sé ekki góð;....var bent á fjölmörg atriði þar sem ríkisvaldið, í krafti lög- gjafarvaldsins, legði byrðar á sveitarfélögin án þess að séð væri fyrir tekjum til að mæta kostnaði þeirra.” Þá leggja sveitastjórnarmenn áherslu á að góðar samgöngur séu helsta forsenda sameiningar og vilja að þær verði tryggðar. Atvinnuleg sérstaða hinnaýmsu byggóa verði virt og hún jafnframt styrkt eftir því sem kostur er. Og þá leggja sveitastjómarmenn áherslu á að: „Unnið verði gegn sam- þjöppun stjórnvalds hins nýja sveitarfélags á einn stað eða fáar hendur, og gerð tilraun til að vega upp aðstöóumun íbúanna á fjar- lægustu stöðum.” Sterkari sameinuð gagnvart ríkinu En sveitastjómarmenn sjá fleira jákvætt en neikvætt við sam- einingu: Sameinað sveitarfélag yrði sterkari samningsaðili gagnvart ríkinu. Sveitarfélögin gætu veitt betri þjónustu sameinuð en sundruó. Nýting mannvirkja og tækja ætti að verða hagkvæmari og sömu- leiðis undirbúningur hinna ýmsu framkvæmda og fjármálastjóm öll. Oll tengsl íbúa, atvinnuleg, félagsleg og menningarleg myndu aukast sem jafnframt myndi hafa góð áhrif á búsetuþróun. Auðveldari yrði að hafa yfir- sýn í öllum veigamestu málum sveitarfélaganna, eins og; skipu- lags-. hafnar og umhverfismálum. Bættar samgöngur meginforsenda sameiningar I umsögn nefndarinnar um hvert sameiningarsvæðanna fyrir sig segir meóal annars um vestur- og norður-ísafjarðarsýslu: „Forsendur til sameiningar innan þessa svæðis, sem í eru 10 hreppar og 2 kaupstaðir. verða fyrir hendi hvaðsamgöngursnertirárið 1995, þegar heilsárssamgöngur tengja þessar byggðir með jarðgöngum undir Breiðadals- og Botnsheiðar.” Fram kemur að mikil áhersla var lögó á að hjá sveitastjórnar- mönnum að af sameiningu svæðisins gæti ekki orðið fyrr en jarðgangagerðinni væri lokið og búið væri að að taka þau í notkun. Hugsanleg sameining gæti því ekki orðió fyrr en á árunum 1995 eða 1996. I skýrslunni kemur ítrekað fram - hvort sem rætt er um Vestfirðina í heild eða hvert sameiningar- svæðanna fyrir sig - að bættar samgöngur eru meginforsenda þess að af sameiningu geti orðið. Astand vegamála er vitanlega nokkuó mismunandi á hverju svæði fyrir sig en ljóst að á hverju svæði þarf að bæta þær eitthvað og sumsstaðar verulega til að af sameiningu geti orðið. Vantraust ríkt milli ríkis og sveitarfélaga I skýrslunni er kafli um tekju- stofna sveitarfélaga. I þeim kafla segir aó tilflutningur verkefna frá ríki til sveitarfélaga gangi ekki nenia sveitarfélögunum séu tryggðar tekjur til að mæta út- gjöldum vegna verkefnanna: „...sveitarfélög takaekki vió verk- efnum bara til létta útgjöld ríkis- sjóðs. Það geta þau einfaldlega ekki,” segir í kaflanum. Þar kemur einnig fram að fái sveitastjórnirnar úthlutað því fé ríkisins til tiltekins verkefnis og framkvæmi það, sem ríkið hefði ella framkvæmt. megi ætla að sveitastjórnirnar geti ráðstafað peningunum á hag- kvæmari hátt; fari betur með þá en ríkið og þá peninga sem sparast megi nota til að bæta þjónustu við íbúanna. -framhald á bls. 5. [ L. - ' ( L 1 — 1 1 1 11 1 “ I L b i lC 1 _ \ LL LL LL E d d a H e 1 fi a s o n . f r a rn k v œ rn d a t j ó r i H a n d s a I s b f. Upplýsingahandbókiti ÍSLENSK FYH IRTÆKt er handbók sem inniheldur grunnupplýshigar um flestöli starfándi fyrirtæki, félög og stofnanir landsins, t.a.m. nafn, heimilisfang, símanúmer og kennitölu. Þessi lx>k er ómissandi fyrir stjórnendur og annaö starfsfólk íslenskra fyrirtækja lippbygging bókarinnar er þannlg: lj Kennítöiur og símanúmer fyriitækja. 2) Fyrirtækjaskrá. 3) Vöru- og þjónustuskrá ÍGular-síftur). 4) Umiroftaskrá (Gular stftur). 5) Ijtllytjenda.skrá (Gtilar síftur). t'róftí hf, Ármúla 18, 108 Reykjavík Einingaverö bókarinnar ef keypt er: - 1 eintak: Kr. 4.950,- - 2 eintftk: Kr. r, |50,- - 3 eintök: Kr. 3.950,- - 5 eintftk: Kr. 3.450,- - 10 eintök: Kr. 2.950,- OHISSRNDII VlflSHIPTUM Pantanasímí: 91-812300 i'.ix 91-812946 • Rafn Jónsson trommu- leikari, fyrsti formaður MND-félagsins á Islandi. Rafn formaður MND-félagsins Rafn Jónsson, hljóm- listarmaður var fyrir stuttu kjörinn formaður MND-félags Islands á stofnfundi félagsins sem haldinn var í Sjálfsbjargar- húsinu í Reykjavík. MND-félagið mun vinna að velferð þeirra, scm haldnir eru sjúkdómnum MND-hreyfitaugahrörnun og er það öllum opið. Rafn er einn þeirra sem eiga við þennan sjúkdóm að stríða og var hann í sérstakri undir- búningsnefnd fyrir stofnun félagsins. I lögum félagsins segir, að það skuli m.a. vera félags-, hagsmuna- og kynningarvettvangur fyrir félagsmenn, stuðiaað bygg- ingu á sérhönnuðu húsnæði fyrir MND-sjúklinga og standa að útgáfustarfscmi. Undirbúningur að fyrsta félagsblaðinu er þegar haf- inn. Tvennt flutt á sjúkrahús Aðfararnótt síðastlið- ins sunnudags var lög- rcglan kvödd að vcitinga- húsinu Krúsinni á Isafirði en þar hafði komið til slagsmála á milli tvcggja dansgesta. Tvennt var fiutt á sjúkra- hús, annar mannanna sem í slagsmálunum lenti og stúlka sem átti í deilum við fjölskyldumeðlim. hau fóru bæði til síns heima að lokinni skoðun. Um miðjan dag á sunnudag fckk lög- reglan síðan tilkynningu um að veghcfill í eigu Isa- fjarðarkaupstaðar hcfði ekið utan í bifrcið sem stóó vió Fjarðarstræti á Isafirði. Nokkrar skemmdir urðu á bifreiðinni. Taliðer aö vcg- hefilinn hafi runnið til vegna mikillar hálku. Aðfararnótt mánudags fór lögreglan síðan til Þingeyrar og sótti þar ölvaðan mann scm hafði sinnast vió aðra íbúa í húsinu sem hann bjó í. Hann var fluttur í fanga- geymslur á Isafirði þar sem hann fékk að sofa úr sér vímuna.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.