Bæjarins besta - 03.03.1993, Blaðsíða 5
RÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 3. mars 1993
5
Ók á og stakk af
Síöasta helgi var fremur
róleg að sögn lögreglunnar
á ísafirði. Aðfararnótt
síðastliðins laugardags
fékk lögreglan tilkynningu
um ónæði í heimahúsi á
Isafirði og fór hún á
vettvang og róaði þann
sem þar átti hlut að máli.
Klukkan 16. 20 á laugar-
dag barst lögreglunni síðan
tilkynning um árekstur og
afstungu við Strandgötu 5 í
Hnífsdal. Einhverjar
skemmdir urðu á bifreiðinni
sem ekið var á en sá sem þar
var að verki hefur ekki
fundist enn. Kvöldið áður
fór brunavarnarkerfi Vöru-
markaðarins Ljónsins í gang
og virðist sem spennufall
hafi sett kerfið í gang. Að-
fararnótt sunnudags að-
stoóaði lögreglan síðan
ökumann sem hafði ekið út
af Djúpvegi við Engidal.
Mikil hálka var á veginum
um nóttina.
Dráttarvél ók í veg
fyrir flutningabfl
Sama dag um kl. 15.15.
hringdi bifreiðastjóri hjá
Vöruflutningum Armanns
Leifssonar í lögregluna og
tilkynnti um að hann hefði
lent í árekstri viðdráttar-
vél við bæinn Ögur í Isa-
fjarðardjúpi.
Svo virðist sem að
dráttarvélinni hafi verið
ekiö afturábak frá heim-
keyrslunni og út á Djúpveg
þar sem hún fór í veg fyrir
vörufiutningabílinn sem var
á leið til Reykjavíkur.
Flutningabíllinn skall á aftur-
hjóli dráttarvélarinnar með
þeim afleiðingum að öku-
maðurinn hennar kastaðist
af henni. Hann var fiuttur á
Fjórðungssjúkrahúsiðáísa-
firði þar sem hann liggur
enn. Ökumaður vöruflutn-
ingabílsins gaf skýrslu um
áreksturinn á Hólmavík.
Nýtt neyðarnúmer
fyrir Yestfírði
Undanfarna daga hafa
starfsmenn Pósts og síma
á Isafirði verið við
prófanir á nýju stafrænu
símkerfi fyrir hluta
norðanverðra Vestfjarða.
Hafa þcir m.a. verið við
prófanir í Bolungarvík þar
sem stafræna kerfið á að
vera komið í garig.
Sam fara uppsetningu staf-
rænu stöðvarinnar hefur nýtt
samnorrænt neyðarnúmer
verið tekið í notkun og er
þaó nú þegar orðið virkt.
Númerið erOl 12 og verður
svarað í það samfara gamla
númerinu 000. Aætlað er að
því verði kippt út síðar en
þaó hefur ekki reynst eins
vel og gert var ráð fyrir í
upphafi. Nánar verður sagt
frá því þegar að því kemur.
Sameining sveitarfélaga:
Hagkvæmni
er lykilorðið
- frh. af bls. 3
„Athyglisvert var í öllum við-
ræðum við sveitastjórnir á Vest-
fjörðum hversu mikil áhersla var
lögó á að samskipti ríkis og sveitar-
félaga verði góð. A það var
ítrekað minnt, að ríki og sveitarfé-
lög væru samstarfsaðilar um að
þjóna íbúum þessa lands og alls
ekki mætti setja málin upp þannig,
að um andstæður væri aö ræða,”
segir í kaflanum.
Þrátt fyrir vilja sveitastjórnar-
mann til að eiga góð samskipti
við ríkisvaldið kemur fram að
menn treysta ríkinu ekki allt of vel
og er niðurstaðan sú að mikil upp-
stokkun þurfi að eiga sér stað ef
sveitarfélög eigi að taka við verk-
efnum ríkisins í miklum mæli:
„Megingrundvöllur að breyt-
ingum eins og sameiningu sveitar-
félaga er því sá, að samkomulag
geti orðið milli þessara tveggja
stjórnsýslustiga um skiptingu tekna
og verkefna með eðlilegum
hætti...Stærsta málið er að fyllsta
gagnkvæmt traust geti ríkt milli
þessara aðila. Að mati sveitar-
stjómamanna hefur á þetta skort,”
segir í lok kaflans um tekjustofna
sveitarfélaga.
Breytingar á skólahaldi
Eins og áður hefur verið getið
voru það samgöngumálin sem
mönnum varð hvað tíðræðast um.
Skólamál og heilbrigðismál voru
líkaofarlegaíhugumsveitastjómar-
manna.
Um skólamálin segir meðal
annars: „Það má ljóst vera að í
skólamálum ríkir víða mikil fast-
heldni. Fæstir telja sér fært að missa
neitt af því sem þeir hafaí dag. Það
er þó alveg víst, aó til að gæta
fyllstu hagkvæmni í rekstri skóla
gæti þurft að koma á annarri skipan
skólastarfs. Hér er ekki átt við
skerðingu á þjónustu, heldur að
meó skipulagsbreytingum megi ná
fram bættri þjónustu á svæðinu.
Það mun hinsvegar verða gagn-
rýnt, ef skólar verða lagðir niður
og kennsluhald flutt til nærliggjandi
skóla. En þetta verður að ske á
sumum svæðum, og er liður í
hagræðingu og breyttri verka-
skipan innan héraðsins sem heildar.
Það er ljóst, að hér er um við-
kvæmt tilfinningamál að ræða, sem
verður að leysa með ýtrustu gætni
og að höfðu samráði við við-
komandi aðila.” Hérervarfæmis-
lega talað en ljóst að einhverjir
verða að sjá á bak skólum í krafti
hagræðingarinnar. Og sjálfsagt
gildir það um fleiri málaflokka.
Hagræðing og hagkvæmi eru
lykilorðin í skýrslunni. Sveitar-
stjórnarmenn sjá marga kosti við
sameiningu en jafnframt marga
ókosti. Mörgum spurningum er
ósvarað á en sameiningarhug-
myndir þær sem hér hefur verið
drepið á verða að veruleika en
skýrslan gefur ótvírætt til kynna þá
niðurstöðu að fyrir Vestfirði í
heild verði sameining sveitarfélaga
til að styrkja þá og efla í atvinnu-
og menningarlega tilliti.
-hj-
ísafjörður:
„Rokbörninu hittast
í SÍ ÐASTA tölublaði BB rifjuðum við upp er barnaskóla-
húsið í Hnífsdal fauk ofan af 38 börnum með þeim af-
leiðingum að nokkur þeirra auk skólastjórans slösuðust.
Síðastliðið föstudagskvöld komu fjórtán þeirra sem voru í
skólanum þegar atburðurinn átti sér stað, saman á Hótel Isa-
firði og rifjuðu upp atburðinn og var glatt á hjalla hjá þeim
þegar ljósmyndari blaðsins leit við. Þrátt fyrir margar sögur og
margar minningar gáfu þau sér tíma til að sitja fyrir á ljósmynd
og birtist hún hér að ofan.
Þau sem mættu á Hótelið á föstudagskvöldið voru, talið að
ofan: Jósef Vernharðsson, Sigríður Þórðardóttir, Halldór As-
geirsson, Hermann Skúlason, Kristín Kristjánsdóttir, Jónína
Högnadóttir, Jón Kristjánsson, Sóley Sigurðardóttir, Ósk
Hannesdóttis Elínóra Asgeirsdóttir, Sigrún Vemharðsdóttir,
Hansína Einarsdóttir, Karl Geirmundsson og Grétar Þórðarson.
Leiðrétting:
Ekki Þorsteinn
J. heldur
í FRÉTT BB í síðustu
viku um fyrirhugaðar
brey tingar á fy rirkomulagi
heimahjúkrunar og heim-
ilisþjónustu við aldraða á
Ísafirði var sagt að Guð-
rún Gunnarsdóttir deildar-
stjóri heimahjúkrunar
hefði hætt störfum vegna
deilna við Þorstein Jó-
hannesson yfirlækni. Þetta
er ekki allskostar rétt.
Þorstein Jóhannesson kom
hvergi nálægt þessu máli og
hefur ekkí átt í neinum
deilum við Guðrúnu um eitt
eða neitt. Hið rétta er að
ágreiningur var milli Guð-
rúnar annars vegar og fyrr-
verandi yfirlæknis heilsu-
gæslustöðvarinnar, Þor-
steins Njálssonar, hins veg-
Blaðamaður biður Þor-
stein Jóhannesson afsökunar
á þessum mistökum. Jafn-
framt harmar blaðamaður
hafi Þorsteinn Jóhannesson
orðið fyrir óþægindum
vegna þessa og ítrekar að
Þorsteinn Jóhannesson og
Guðrún hafa ekki átt i
deilum af neinu tagi.
Isafjarðarkaupstaður
HLKYNNING
á leikskóla/
skóladagheimili
Isafjarðarkaupstaðar
Eftirf arandi reglur um innritun bama á
staðar hafa verið samþykktar:
1. Skilyrói fyrir leikskóladvöl/skóladag-
heimilisdvöl er að viðkomandi eigi lög-
heimili áísafirði.
2. Heimilt er að sækja um leikskóladvöl á
því ári sem barnið verður eins árs.
3. Böm einstæóra foreldra, námsmenn
(mióað við fullt nám), börn sem búa við
félagslega erfióleika njóta forgangs.
4. Leikskólaplássum er úthlutað eftir
aldursröð umsóknar. Þó getur aldur bams
ráðið nokkm um. Oski leikskólastjóri eftir
ákveðnumaldribams/bama á leikskólann,
skal tekió tillit til þess.
Fulltrúi félagsmálastjóra,
Helga B. jóhannsdóttir.
Kjólar, dragtir, kápur, jakkar,
buxur, blússur.
Fermingargjöfin væntanleg
}ONm
GUNNA
Ljóninu, Skeiði, simi 3464