Bæjarins besta - 03.03.1993, Qupperneq 12
meö elsta starfandi
áætlunarflugfélagi
á íslandi. ernírp
ÍSAFJARÐARFLUGVELLI
&4200 m 4688
TBYCGINB HF |
Umboð: ^
Björn Hermannsson
Hafnarstræti 6, sími 3777
Áfengis- og tóbakssala:
Vestfírðingar drekka
og reykja minna
AÐ SÖGN Jónatans Arn-
órssonar útbússtjóra Afcngis-
og tóbaksverslunar ríkisins á
Isafirði virðast Vestfirð-
ingar stöðugt vera að
minnka við sig áfengis-
drykkju og tóbaksbrúk.
Ekki er gott aó segja hvað
veldur minnkandi hylli manna
á þessum lífsnautnum en sjálf-
sagt spilar efnahagsástandið
inn í þetta eins og annað. Þó
reyndar hafi kannanir erlendis
frá sýnt að menn blóta Bakkus
iðulega meira þegar kreppir
að.
Jónatan segir áfengissölu í
febrúar í fyrra hafa verið 11,6
milljónir en í ár er nam salan í
febrúar 11 milljónum. Salan
hefur því minnkað um 6
hundruð þúsund í krónum
talió en samdrátturinn er í raun
meiri því áfengi hefur hækkað
um í kringum 5 prósent milli
ára.
Sala tóbaks minnkar einnig
stöðugt en 12 prósent sam-
dráttur varð í sölu nú í febrúar
miðað við febrúar 1992.
-hj.
• Jónatan Arnórsson, útsölustjóri ÁTVR á Ísafírði segir áfengissölu hafa minnkað á
milli ára.
Slysavarnarsveitin Skutull ísafirði:
Leitar að nýju húsnæði
Núverandi húsnæði orðið of lítið og auk þess ekki gert ráð
fyrir því á núverandi skipulagi
„VIÐ erum ekki óánægðir með húsið, það er langt því
frá. Hitt er annað þegar þetta var byggt þá var ákveðið
þarna athafnasvæði fyrir Slysavarnarfélagið og smábáta-
höfn átti að rísa þarna líka og aðstaða fyrir þá. Það fór upp
fyrir þannig að húsið hefur staðið þarna eitt og sér síðan.
Síðan kom nýtt skipulag fyrir bæinn og þar er þetta hús ekki
inná. Þannig að húsð á sennilega að fara verði þetta skipulag
að veruleika en þarna á að koma íbúðahverfi. Eg talaði við
bæjarstjórann og hann er alveg sammála því að þær forsendur
sem voru fyrir hendi þegar húsið var byggt séu brostnar. Þar
af lciðandi hef ég farið af stað og leitað að húsnæði hér í
bænum,” sagði Kristinn Haraldsson í slysavarnarsveitinni
Skutli á Isafirði í samtali við BB.
Skutulsmenn sóttust á sínum
tíma eftir lóð á Eyrinni en var
synjað um hana og gert að
fara út á Skeið á þeim for-
sendum að þar myndi koma
smábátahöfn og þar meó að-
staða fyrir björgunarbátinn
Daníel Sigmundsson. Hug-
myndir um smábátahöfn voru
lagðar á hilluna og því ljóst
að aðstaðan á Skeiði verður
aldrei sú sem upphaflega átti
að vera.
Kristinn segir aó þar sem
húsið er oróió of lítið, sé
annaðhvort um það að ræða
að stækka það eða finna nýtt
húsnæði og þá helst á Sunda-
höfninni. Hann segirauðvitað
ljóst að ekki borgi sig að
stækka húsið eigi það síóan
að fara þegar farið verður að
byggja á svæðinu. „Það hefur
staðió til að selja húsnæðið
sem fiskmarkaðurinn er í og
það hefur líka staðið til að
selja í Niðursuðuverk-
smiðjunni þannig að það er
um nokkur svæði að
• Smári Haraldsson,
bæjarstjóri á Isafirði.
ræða hér í bænum til að kaupa
en við þurfum auðvitaó að
losna við húsið innfrá til að
geta keypt. Vió erum mjög
illa staddir gagn vart björgunar-
bátnum Daníel Sigmundssyni
því allt sem hann snertir er
annað hvort úti í Hnífsdal eða
inni í Firði. Og það er auð-
vitað ekki þægilegt. Við erum
með gúmmíbát og vél
fyrir hann sem við getum ekki
geymt um borð en þetta þarf
að vera á stað nálægt bátnum
þannig að hægt sé að grípa
það með sér um borð ef í
ferð þarf að fara. Ef við
hefðum gott svæði á Sunda-
höfninni þá gætum við líka
verið þar með verkstæði fyrir
bát og bíla,” sagði Kristinn.
Smári Haraldsson bæjar-
stjóri sagði í samtali við BB
að honum væri kunnugt um
áhuga Skutulsmanna á að fá
nýtt húsnæði en ekkert form-
legt erindi hefði borist frá
þeim. Aðspurður um hvort
bærinn yrði að kaupa sveitina
út úr núverandi húsnæði sagði
Smári að það þyrfti aó ræða
betur og komast að samkomu-
lagi þar um. „Bærinn hefur
nokkrum skyldum að gegna í
þessu máli við lítum ekki
framhjá því,” sagði Smári.
-hj.
J
-.1»
• Björgunarbáturinn Daníel Sigmunsson.
Jarðgöngin undir Breiðadals- og Botnsheiðar:
Opnuð fyrir umferð ári fyrr?
SAMKVÆMT Öruggum
heimildum BB eru nú uppi
hugmyndir um að opna jarð-
göngin undir Breiðadals- og
Botnsheiðar rúmu ári fyrr en
upphaflega var ráð íýrir gert.
Allar áætlanir við gerð
gangnanna hafa staðist og er
verkið á áætlun bæði hvaö
varðar framkvænidir og kostn-
að við þær. BB hefur fyrir því
áreiðanlegar heimildir um að
til standi að flýta jafnvel
framkvæmdunum og opna þá
göngin fyrir umferð seint á
næsta ári eða ári fyrr en gert er
ráð fyrir í framkvæmdaáætlun.
Þetta yrði gert með ákveðnum
tilfærslum og auknum mann-
skap.
Göngin yrðu þá opin um-
ferðveturinn 1994 til 1995en
lokað aftur vorið 1995. Sum-
arið yrói notað til að ganga
ÓHÁÐ
FRÉTTABLAÐ
/
A
VESTFJÖRÐUM
ísafjarðardjúp:
Kennsl
borin á lík
LIKIÐ sem kom í vörpu
rækjubátsinsDonnu ST frá
ísafirði er skipið var á
veiðum utan við Sandeyri
í ísafjarðardjúpi mánu-
daginn 15. febrúar sl„
reyndist vera af Ólafi Ægi
Ólafssyni sem fórst með
rækjubátnum Dóra ÍS-213,
14. febrúar 1989.
Þá hefur verið borið
kennsl á líkió sem kom upp
í vörpu Gunnbjörns ÍS frá
Bolungarvtk er skipið var á
veiðum utariega við Stiga-
hlíð í ísafjarðardjúpi. Það
reyndist vera af Vagni Mar-
geir Hrólfssyni sem fórst af
vélbátnum Hauki IS-195 frá
Bolungarvík, 18. desember
1990.“
Útför Vagns hefur þegar
farið fram í kyrrþey.
frá í göngunum og koma þeim í
endanlegt horf og aftur opnað
að hausti.
Samkvæmt heimildum BB
hefur ekki verið tekin endanleg
ákvörðun um að í þctta verði
ráðist en það verður að teljast
mjög líklegt þar sem málió er
komið langt á veg og aðilar
flestir lýst sig þvi fylgjandi að
framkvæmdum verði flýtt.
-hj-
RITSTJÓRN ffi 4560 ■ FAX S 4564 ■ AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT ® 4570