Bæjarins besta - 05.08.1993, Qupperneq 1
OHAÐ
FRÉTTABLAÐ
/
A
VESTFJÖRÐUM
AÐILIAÐ
SAMTÖKUM BÆJAR- OG
HÉRAÐSFRÉTTABLAÐA
FIMMTUDAGUR
,, 5. ÁGÚST 1993
' jrf. TBL. ■ ÍO.ÁRG
Verð kr. 170,-
með virðisaukaskatti
Hótel ísafjörður:
Gengið til samn-
inga um kaup
- sjá bls. 2
Skattskráin:
Togaraskipstjórar
með hæstu launin
» - sjá bls. 2
Vegagerðin:
Kannar hug
vegfarenda til
ferjusiglinga
- sjá bls. 3
ísafjörður:
Nýja íþrótta-
húsið opnar
eftir mánuð
- sjá baksíðu
Vestfirðir:
Líf og fjör
um alla firði
- sjá opnu
FLUGLEiÐIR
- SÖL USKRIFSTOFA -
MJALLARGÖTU 1 • ÍSAFIRÐI
opið kl. 09-12
OG KL. 13-17
Réttur dcLgsirts
cl góðu verði
- V2 verð fyrir böm 5-12 ára
- frítt fyriryngri en 5 ára
Bæjarsjóáur ísafjaráar
v/ Vinnumiólun
í-i a f n a r s t r æ t .i :l — 3
401 ísafjöróur
Álagningarskrár sveitarfélaga í Vestfjarðaumdæmi:
Ruth Tryggvason
ber hæstu álagn-
ingu einstaklinga
Hraðfrystihúsið hf. í Hnífsdal greiðir hæstu heildargjöld lögaðila
ALAGNINGARSKRAR
sveitarfélaga í Vestfjarðaum-
dæmi árið 1993, vegna tekna
og eigna ársins 1992 hafa
verið lagðar fram. Sam-
kvæmt álagningarskránum
nema heildargjöld einstakl-
inga í umdæminu kr.
1.834.291 þús., og þeim til
viðbótar koma kr. 3.868 þús.,
sem eru gjöld barna. Álagning
hvílir á 7.233 einstaklingum
16 ára og eldri og 633 börn-
um.
Hæstu gjaldategundir hjá
einstaklingum 16 ára og eldri
eru tekjuskattur kr. 1.012.108
þús., og útsvar kr. 667.199 þús.
Bamabótaauki nemur samtals
kr. 53.467 þús., vaxtabætur eru
samtals kr. 41.998 þús., og hús-
næðisbætureru kr. 18.962 þús.
Hæstu álagningu einstaklinga
að þessu sinni bera eftirtaldir
einstaklingar:
1. Ruth Tryggvason, fram-
kvæmdastjóri, ísafirði, kr.
4.904.747.
2. Ásgeir Guðbjartsson, skip-
stjóri ísafirði, kr. 3.195.156.
3. Guðbjartur Ásgeirsson,
skipstjóri Isafirði, kr.
2.975.689.
4. Þorsteinn Jóhannesson,
læknir ísafirði, kr. 2.854.136.
5. Hlöðver Haraldsson, skip-
stjóri Hólmavík, kr. 2.729.958.
Hæstu álagningu tekjuskatts
bera sömu aðilar í sömu röð.
Ruth Tryggvason, kr.
2.788.466., ÁsgeirGuðbjarts-
son kr. 2.423.262., Guðbjartur
Ásgeirsson kr. 2.270.994.,
Þorsteinn Jóhannesson kr.
2.201.528., og Hlöðver Har-
aldsson kr. 2.085.822.
Hæstu álagningu útsvars bera
Ruth Tryggvason kr. 703.371.,
Ásgeir Guðbjartsson kr.
690.127., Guðbjartur Ás-
geirsson 656.648., Hlöðver
Haraldsson kr.597.916., og
Þorsteinn Jóhannesson kr.
591.171. Hæstu álagningu
eignarskatts bera hjónin Jón
Friðgeir Einarsson og Margrét
Kristjánsdóttir í Bolungarvík.
Jón Friðgeir greióir kr.
662.779., og Margrét kr.
Ruth Tryggvason ber hæstu
heildargjöld einstaklinga á
Vestfjörðum að þessu sinni.
565.713. Ruth Tryggvason
greiðir þriðja hæsta eignar-
skatt kr. 312.228., og hjónin
Kristján Jónasson og Hansína
Einarsdóttir á Isafirði eru í 4.
og 5. sæti. Þau greiða samtals
kr. 561.404., sem skiptist jafnt
á milli þeirra.
Hæstu álagningu tryggingar-
gjalds hjá einstaklingum bera
eftirtaldir aðilar:
1. Magnús Snorrason, Bol-
ungarvík, kr. 1.505.704.
2. Hólmgrímur Sigvaldason,
Þinpeyri, kr. 1.077.693.
3. Armann Leifsson, Bolung-
arvík, kr. 1.044.609.
4. Tryggvi Tryggvason, Isa-
firði kr. 1.003.647.
5. Ruth Tryggvason, Isafirði,
kr. 886.192.
Heildargjöld lögaðila (fé-
laga) nema kr. 534.387 þús. og
hæstu álagningu bera Hrað-
frystihúsið hf. í Hnífsdal kr.
17.566.485., Isafjarðarkaup-
staður kr. 12.928.231., Orku-
bú Vestfjarðakr. 10.065.089.,
Hraðfrystihúsið Norðurtangi
hf. ísafirði kr. 9.139.613., og
Einar Guðfinnsson hf. í Bol-
ungarvík kr. 8.251.501. Hæstu
álagningu tekjuskatts lögaðila
bera Hraðfrystihúsið hf. í
Hnífsdal kr. 12.110.376.,
Þrymur hf. vélsmiðja á Isa-
firði, kr. 5.440.316., Bjarg hf.
útgerð/fiskverkun á Patreks-
firði, kr. 4.498.863., Sandfell
hf. ísafirði kr. 3.666.895., og
Sparisjóður Bolungarvíkur kr.
3.599.716.
Hæstu álagningu eignar-
skatts lögaðila bera Hrönn hf.
ísafirði kr. 3.153.71., Spari-
sjóður Bolungarvíkur kr.
2.661.810., Hraðfrystihúsið
hf. í Hnífsdal kr. 2.605.622.,
Kaupfélag Dýrfirðinga, Þing-
eyrikr. 1.695.486.,ogHjálmur
hf. Flateyri kr. 1.686.520.
Hæstu álagningu tryggingar-
gjalds lögaðila bera Isafjarð-
arkaupstaðurkr., 12.928.231.,
Orkubú Vestfjarða kr.
10.065.089., Einar Guðfinns-
■
Hraðfrystihúsið hf. í Hnífsdal ber hæstu álagningu lögðila
á Vestfjörðum, samkvæmt nýútkomnum álagningarskrám
fyrir árið 1993.
son hf. í Bolungarvík kr.
8.022.507., Hraðfrystihúsið
Norðurtangi hf. Isafirði kr.
7.903.324., og Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Isafirði kr.
7.487.750.
Álagningarskrár sveitar-
félaga í Vestfjarðaumdæmi
munu liggja frammi til 12.
ágúst næstkomandi. Heildar-
skrá og álagningarskrá ísa-
fjarðar liggja frammi á skatt-
stofu Vestfjarðaum á venju-
legum skrifstofutíma, og hjá
umboðsmönnum skattstjóra í
öðrum sveitarfélögum, eins og
þeir auglýsa, og hjá bæjarskrif-
stofunni í Bolungarvík. Sjá
einnig „Gluggað í skatt-
skrána” á bls. 2 í blaðinu í dag.
Húsnæði íshúsfélags Bolungarvíkur:
A FL'NDI Fiskveiðasjóðs sein haldinn var fyrir lielgina
ákvað stjórn sjóðsins að hafna tilboði Osvarar hf. í
frystihúsið sem sjóðurinn leysti til sín eftir gjaldþrot
Einars GuðFinnssonar hf. Á sama fundi var ákveðið að
ganga til viðræðna viðforsvarsmenn Þuríðar hf. og fóru
fyrstu tveir fundir þcssara aðöa fram í Reykjavík í gær-
dag. Samkvæmt upplýsingum blaðsins hljóðaði tilboð
Ósvarar hf. upp á 91,5 milljónir króna en tilboðÞuríðar
hf. var nálægt 110 milljónum króna. Áður hafði Ósvör
hf. boðið 85 milljónir í eignirnar og Þuríður hf. 30
milljónir í rækjuverksmiðjuna en Fiskveiðasjóður
hafnaði þeim tilboðum.
-Ef af kaupunum verður,
hvernig munið þíð koma til
með að nýta allt húsið?
„Við erum meö hugmy nd-
ir á borðinu sem við viljum
ekki úttala okkur um áþessari
stundu. Þetta er ekki búinn
að vera langur tími. Við
höfðum eina þrjá daga til að
skoða það hvort við tækjum
áskorun Fiskveiðasjóðs og
byðum í allt húsið og síðan
höfum við verið að skoða
möguleikana og þeir eru
miklir en við munum aó
sjálfsögðu nota húsið til fisk-
verkunar. Við báðum Ós-
Jón Guðbjartsson einn
eigenda Þuríðar hf. sagði í
samtali við blaðið í morgun
að hann og Valdimar L.
Gíslason, framkvæmdastjóri
hefðu átt tvo góða fundi með
Fiskveióasjóðsmönnum í
gærdag og vonaðist hann til
að niðurstaða úr þeim við-
ræöum lægi fyrir innan 10-
14 daga. „I dag erum við
mcð pappíra hvors annars og
hugtnyndir og munum skoða
þær á næstu dögum. Þetta er
miklu flóknara mál en svo að
því sé hespað af á hluta úr
degi.”
vararmenn að ræða við
okkur fyrir nokkrum vikum,
eóa um leið og við fréttum
að þeir ætíuðu sér að kaupa
rækjuverksmiðjuna, en þeir
hafa ekki enn séð ástæöu til
þess og því er málið komið I
þennan farveg,” sagði Jón
Guðbjartsson í samtali við
blaðið.
Ekki náðist í Björgvin
Bjarnason, framkvæmda-
stjóra Ósvarar hf. áður en
blaðíó fór í prentun en í vió-
tali við blaðið í síðustu viku
sagði hann að ef þeir fengju
ekki frystihúsið yrðu allar
áætlanir endurskoðaðar.
Gert er ráð fyrir að boðað
verði til hluthafafundar í Ós-
vör um miðjan mánuðinn þar
sem framvínda mála verður
rædd. Samkvæmt heimildum
blaðsins munu tveir mögu-
leikar vera taldir áhugaverð-
astir, að selja bæði skipin og
kaupa frystitogara eða selja
annan togarann og selja afla
hans hæstbjóðanda. 5