Bæjarins besta


Bæjarins besta - 05.08.1993, Qupperneq 3

Bæjarins besta - 05.08.1993, Qupperneq 3
BÆJARINS BESTA • Fimmtudagur 5. ágúst 1993 3 ísafjarðardjúp: Gallup með skoðana- könnun fyrir Vegagerðina GALLUP á íslandi hefur framkvæmt skoðanakönnun um síðustu daga á vegum Vegagerðar ríkisins í Isa- fjarðardjúpi. Vegagerðin er þessa dagana að áætla hugs- anlegan rekstur og afkomu bílferju um Isafjarðardjúp. Sem kunnugt er, ber mörgum ekki saman um ágæti ferjunnar. Vegagerðin telur ólíklegt að þessi rekstur standi undir sér og þar með þyrfti að styrkja hann á hverju ári. Fyrirmenn Djúpbátsins segja Vegagerðina hrædda við ákvarðanir og fjár- veitingar í málefnum bíl- ferjunnar. Vegagerðin kannar nú hug vegfarenda og fór skoðana- könnunin fram á virkum og helgum dögum og er útkomu hennar ekki að vænta fyrr en eftir nokkrar vikur. Spurn- ingarnar voru af ýmsu tagi, álit viðkomandi um núverandi ástand Djúpvegarins og hvort sá hinn sami komi til með að nota hugsanlega bílferju og ýmislegt fleira. „Við erum að vinna að spá um rekstrar- afkomu bílferju og þá skiptir máli fjöldi hugsanlegra notenda og heppilegasti flutningstími sólarhringsins og margt fleira í þeim dúr. Við erum með skoðanakönnuninni að reyna að koma til móts við þær óskir sem fólk vill”, sagði Gísli Eiríksson umdæmisverkfræð- ingur hjá Vegagerðinni í sam- tali við BB. -hþ. Þingeyri: Arkitekt gerir úttekt á elsta timburhúsi landsins KAUPFÉLAG Dýrfirðinga íhugar að endurbæta fyrr- verandi pakkhús bæjarins sem jafnframt mun vera elsta timburhús landsins. Þjóð- minjasafnið hefur mikinn á- huga á að yfirtaka húsið og mun arkitekt skila áliti sínu í þessum mánuði. Umrætt hús er fyrrverandi salt- og pakkhús sem reist var 1732 af einokunarkaupmönn- unum en þar var fyrir nokkrum árum afgreiðsla Ríkisskips og til dagsins í dag hefur í hluta hússins verið timburgeymsla. Eftir að arkitekt Húsafriðunar- nefndar, Hjörleifur Stefánsson, hefur skilað inn tillögum um hvemig standa skuli að endur- byggingu hússins, er það ákvörðun eiganda hússins, Kaupfélags Dýrfirðinga, hvað gera skal. Kaupfélagið hefur fengið styrk frá Húsafriðunar- nefnd til úttektarinnar og hefur jafnframt sótt um styrki víðar og fengið nokkuð góðar við- tökur. Þess má geta að Kaupfélagið á annað stórmerkilegt hús við hliðina á því fyrmefnda, þar var Kaupfélagið eitt sinn starfrækt en í dag er afgreiðsla Ríkisskips þar til húsa. Húsið var reist um 1870 af Gram kaupmanni og er í þokkalegu ástandi og geta áhugasamir fengið að skoða það. -hþ. Þeir sem ferðast hafa um Hálfdán undanfarið eru hálf „down“ vegna ástands hans. Hálfdán: Vegurinn einungis jeppafær ÞESSI mynd var tekin síð- astliðinn laugardag af veg- inum yfir Hálfdán. Verið er að undirbúa lagningu slitlags á þessum kafla sem er þriggja kílómetra langur. Mörgum vegfarendum blöskraði ástand vegarins um Verslunarmannahelgina en við því var ekkert að gera. Lagn- ingunni mun ljúka í ágúst en slitlag verður ekki komið á alla hina átta kílómetrana fyrr en í ágúst á næsta ári. „Við keyrum sprengdu grjóti í veginn sem allir vita að er gróft og leiðinlegt yfirferðar. Þeir átta kílómetrar sem eftir eru verða því nokkuð grófir þar til haldið verður áfram lagningu slitlags næsta sumar. Það mun vissulega draga úr þessum grófa kafla með tím- anum og hann verður væntan- lega mildari með haustinu”, sagði Gunnar Gunnarsson hjá Vegagerðinni. Vegfarendur verða því að sýna Vega- gerðinni smá skilning og þolinmæði þangað til slitlagið verður tilbúið að ári. -hþ. Bíldudalur: LEl KFÉLAGII) Baldur á Bílduc ■'.) svo- kallað Baldursport sunnu- (laginn 15. Idurs- portin . Kola- porlsi a og geta bæjarbúar sem aðrir komið vöru sinni þar á framfær. Leikfélagið Baldur er 28 ára og hefur um margra ára bil veriö iðið við alls konar uppátæki af ýmsu tagi. Fyrir rúmum hálfum mánuðí hélt leikfélagið svona útimarkað og tókst hann svo vel áð ákveðið var að halda annan hclminjti stærri markað sern fyrst. A þcim fyrri voru tíu básar (>g mátti þ.u finna heimabakaðarkökur, salt-og harðfisk, fatnað, bækur, heila búslóð, auk þcss sem bak- arííð á Patrcksfiröi var mcð útibú á staðnum svo eítth vaö sé nefnt. A markaðinum þann 15. ágúst veröa yfir 20 básar og er Baldursportið ekkí aðeins tilvaliðfyrirbæjarbúa heldureinnig fyrir ferðamenn sem leið eiga um svæðið. Leikfélagið Baldur skorar á sem Ilesta að mæta því þarna úlegustu hluf /eröi. fihþ. Einnig sérprentaður tölvupappír hannaour eftir þínum óskum og þörfum Leitið upplýsinga H-PRENTHF SÓLGÖTU 9 • ÍSAFIRÐI • SÍMAR 4560 - 4570 • FAX 4564

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.