Bæjarins besta - 06.10.1993, Qupperneq 2
2
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 6. október 1993
Hvað myndir þú
gera ef þu
mættir ráða
öllu í einn dag?
Kristrún Sif
Gunnarsdóttir:
„Ég myndi láta fella
niður skólann svo að allir
krakkarnir fengu frí og
gætu leiluð sér.”
Brynja María
Ólafsdóttir:
„Láta allt vera ókeypis í
búðunum því þá væri
hægt að fá meíra
sælgæti.”
BB spyr:
Óskar Gunnar Karlsson:
„Ég myndi leyfa að koma
með nammi í skólann.”
Karen Ragnarsdóttir:
„Láta vera frítt í strætó.”
Reynir Öm Reynisson:
„Ég myndi láta rífa
gömlu húsin í bænum og
byggja ný í staðinn.”
Bygging sorpbrennslustöðvar í Engidal:
lilboð Naglans hf. í veifdð
83% of kostnoðaráæfluii
- bygginganefnd leggur til að tilboðinu verði tekið
FIMM tilboð bárust í byggingu nýrrar sorpbrennslu-
stöðvar sem áætlað er að reisa í Engidal í Skutulsfirði.
Þrjú tilboðanna voru undir kostnaðaráætlun en hún
hljóðaði upp á kr. 15.893.070.- og hefur byggingarnefnd
sorpbrennslustöðvarinnar lagt til að lægsta tilboðinu, sem
kom frá Naglanum hf., á ísafirði, verði tekið.
Tilboð Naglands hf„ hljóð-
aði upp á kr. 12.900.780 sem
er 83% af kostnaðaráætlun.
Næst lægsta tilboðið kom frá
Auðni Guðmundssyni hf., kr.
13.929.680 og þriðja lægsta
tilboðið kom frá Eiríki og
Einari Val hf.,kr. 14.320.000.
Einnig buöu í verkið Véla-
verk hf., sem bauð kr.
16.000.000. og ístak hf., sem
bauð kr. 21.234.593.
A fundi byggingarnefndar
sorpbrennslustöðvarinnar sem
haldinn var 24. september
síðastliðinn var samþykkt að
ganga til samninga við Yl-
einingu hf., í Reykjavík, um
klæðningu í hús stöðvarinnar
oghefur byggingarnefndin lagt
til aó sú ráðstöfun verði
samþykkt af bæjarráði Isa-
fjarðar.
A sama fundi var lögð fram
tillaga að auglýsingu um sam-
keppni að merki fyrir sorp-
brennslustöðina, auk annarra
gagna. Var þeim Elísabetu
Gunnarsdóttur arkitekt og Hans
Georg Bæringssyni falið að
vinna endanlega tillögu að
samkeppnisreglum um kerkið.
í dómnefnd við val á merkinu
verða þau Eyjólfur Bjarnason,
formaður, Gísli Gunnlaugsson
og Pálína Aðólfsdóttir.
-s.
Patreksfjöröur:
íbúðir aldraðra afhentar
Á PATREKSFIRÐI var nýtt og glæsilegt hús, Kambur -
íbúðir aldraðra, tekið í gagnið á svokölluðum Kambi
niður á Vatneyri við Patreksfjörð. Lyklar íbúðanna voru
afhentir íbúunum við formlega athöfn síðastliðinn sunnu-
dag og var kaffisamsæti haldið í félagsheimilinu af því tilefni
og um leið kynnt áform um byggingu þjónusturýmis fyrir
aldraða í vetur.
„Búið er að úthluta öllum
íbúðunum og komust færri að
en vildu. Það eru alls átta
íbúðir í Kambi, fjórar 68 fer-
metra einstaklingsíbúðir og
fjórar 75 fermetra hjónaíbúðir.
Áætlaður byggingarkostnaður
er um fimmtíu milljónir. Ibúð-
imar eru í kaupleigukerfinu og
eru því metnar inn í félagslega
almenna kaupleigukerfið,”
sagði Olafur Arnfjörð Guð-
mundsson, sveitarstjóri á Pat-
reksfirði.
Byggingartími Kambs
spannar fimmtán mánuði,
framkvæmdir hófust í maí-
mánuði í fyrra og þeim lauk í
júlímánuði síðastliðnum.
Verktaki var Byggir hf. á Pat-
reksfirði. „Aðilar frá Hús-
næðisstofnun tóku út verkið
fyrir skömmu og voru mjög
hrifnir af frágangi verktaka,
sögðu vel að verkinu staðið
og að allt væri til fyrirmyndar,”
sagði Olafur.
Byggingin hefur ekki mikil
áhrif á stöðu sveitarsjóðs þar
sem fjármagnið kemur annars
staðar frá. Sveitarfélagið fékk
framkvæmdalán upp á níutíu
prósent frá Húsnæðisstofnunu
og íbúarnir b.orga hin tíu
prósentin sem sveitarsjóður
þarf að borga í miilitíðinni.
Félagsstarf aldraðra hefur
verið með ágætum undanfarin
ár. Vikulega er starfrækt svo-
kallaó Eyrarsel í íbúð einni í
bænum, mikið starf hefur
farið þar fram en aðstaðan
ekki verið nógu góð. Patreks-
firðingar eru því ánægðir með
að geta bætt úr aðstöðunni
því stefnt er að því að hefja
byggingu þjónusturýmis fyrir
aldraða í haust.
„Hús þjónusturýmisins
veröur við hlið Kambs og
samtengt honum. I þjónustu-
rýminu fá íbúar margs konar
þjónustu, verslun, félagsstarf
og fleira. Þarna er um að ræða
230 fermetra byggingu og við
gælum við þá hugmynd að
hefja byggingarframkvæmdir
núna í haust. Við munum miða
smíðina við það fjármagn sem
verður vió hendi á hverjum
tíma,” sagði Olafur Arnfjörð
Guðmundsson. uu
Magnús Reynir Guðmundsson skrifar:
Athugosemd vegna fréttar
. í
* *
Magnús Reynir Guðmundsson, framkvæmdastjóri Togaraútgerðar ísafjarðar hf., segir
tjónið á Skutii vart undir fimm milljónum króna.
í BB, sem út kom í síðustu
viku, er getið um tjón er varð
á Skutli IS-180, þegar Arnar-
fell sigldi á togarann þar sem
hann lá við bryggju á Isa-
firði.
Haft er eftir verkstjóra skipa-
smíðastöðvar Marsellíusar að
tjónið sé varla meira en ein
milljón. Hér er heldur frjáls-
lega farið með þar sem líkur
eru nú á að tjónið verði vart
undir fimm milljónum auk
aflatjóns. T.d. má geta þess,
að nýir toghlerar kosta u.þ.b.
tvær milljónir, en Arnarfellið
eyðilagði annan hlerann við
áreksturinn og reyndarekki að
vita hvernig farið hefði, ef
hlerinn hefði ekki tekið af
mesta höggið. Við áreksturinn
gekk stjórnborðsgálginn fram
um hálfan metra, auk þess sem
ýmsar fleiri skemmdir urðu á
Skutli og hafa nokkrar þeirra
verið að koma í ijós þar sem
skipið er nú að veiðum út af
Vestfjörðum.
I framhaldi af umfjöllin um
tjónið á Skutli, sem varð eins
og fram hefur komið algjör-
lega vegna gáleysislegrar
siglingar skipstjórans á Arn-
arfelli, sem var með skipið í
sinni fyrstu ferð til ísafjarðar,
er rétt að geta þess að for-
ráðamenn Samskipa virðast
vilja gera sem minnst úr tjóninu
og torvelda forráðamönnum
Togaraútgerðar Isafjarðar,
sem gerir út Skutul, að bæta
það fljótt og vel. Hefur því
reynst nauðsynlegt að ráða
lögmann til að fara með málið
fyrir Togaraútgerðina.
Þegar óhappið varð voru
fjölmargir menn að störfum
um borð í Skutli m.a. menn
við löndun við lúguop og
veróurað teljast mildi aðekki
skyldi verða manntjón. Það
ættu forráðamenn Samskipa
og skipstjórinn á Arnarfellinu
að þakka forsjóninni fyrir.
Magnús Reynir Guðmundsson,
framkvcemdastjóri
Togaraútgerðar ísafjarðar hf.
Afmæli:
Fimmtug
FRIÐGERÐUR Péturs-
dóttir, til heimiiis að Völu-
steinsstræti 3, Bolungarvík,
fagnar fimmtugasta aid-
ursári sínu þann 11. okt-
óber næstkomandi.
Friðgerður tekur á móti
gestum sunnudaginn 10.
októbcr í Félagsheimilinu í
Bolungarvík miili klukkan
þrjú og sex.
Afmæli:
Sexlugur
GUÐMUNHl R H. Ing-
ólfsson Holti, Hnífsdal
verður sextugur miðviku-
daginn 6. október næst-
komandi.
Eiginkona Guðmundar er
Jóna Valgerður Kristjáns-
dóttir og eiga þau f i m m börn.
Guðmundur veröur að
heiman á afmælisdagínn en
tekur ámóti gestum í tilefni
afmæiisins í Félagsheim-
ilinu í Hnífsdal laugardaginn
8. október frá klukkan 16.
ísafjörður:
AÐ SÖGN lögreglunnar
á ísafirði var fremur ró-
legt á götum bæjarins um
helgina. Fremur lítið bar
á ölvun og lítið var um
óspektir.
Lögreglan fékk tilkynn-
ingu um tvær minniháttar
líkamsárásir en þær höfðu
ekki verið kærðar á mánu-
dag er blaðið hafði sam-
band við lögregluna. Önnur
líkamsárásin mun hafa átt
sér staó við Landsbankann
og hin í veitingastaðnum
Krúsinni.