Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.10.1993, Síða 3

Bæjarins besta - 06.10.1993, Síða 3
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 6. október 1993 3 Reykjanes við Djúp: Þjálfunar- námskeið AfS sláplinema AFS SKIPTINEMASAM- TÖKIN á íslandi héldu sitt árlega þjálfunarnámskeið um síðustu helgi og fór það fram í Reykjanesi við Isa- fjarðardjúp að þessu sinni. Skiptinemarnir komu til ís- lands í ágústmánuði síðast- liðnum og hafa búið hér á Fróni í rúmar sex vikur. Nám- skeiðið stóð frá föstudegi til sunnudags og með í för voru starfsmenn AFS skrifstofunnar í Reykjavík, stjórn AFS, deild- arstjórar og tengill erlendu skiptinemanna á Islandi. Tveir skiptinemar voru frá Isafirði en Isafjarðardeildin er sú elsta af landsbyggða- deildunum og án efa sú virk- asta. I febrúar verður annað sambærilegt námskeió fyrir sama hóp haldið í Reykjavík. Þá verður höfuðborgin í brennidepli og merkir staðir sóttir heim. BB hafði samband við Sigrúnu Vernharðsdóttur for- Ánægður §ölþjóðahópur í Reykjanesi. Á myndinni má meðal annarra þekkja Kristínu Bjömsdóttur og Sigrúnu Vemharðsdóttur frá Isafirði. mann Isafjarðardeildar AFS samtakanna á Islandi og spurði hana hvað hafi verið gert á námskeiðinu um síðustu helgi. „Skiptinemunum voru kennd nokkur af helstu orðum og setningum á íslensku auk þess sem útskýrð var fyrir þeim þjóðfélagsbygging okk- ar, siðir og venjur. Þau hafa þegar kynnst íslensku skóla- starfi og fengu þarna tækifæri til að bera saman bækur sínar og tala um sín heimalönd og - bæi og segja hvernig þeim líkar vistin hér á landi auk þess sem þau efndu til nýrra vin- skapa við hina skiptinemana. Einnig var þetta námskeið haldið fyrir þá íslensku skipti- nema sem lokið hafa dvöl erlendis í eitt ár og eru þeir þjálfaðir í sjálfboóaliða- störfum sem tengjast sam- tökunum en þau byggjast einmitt mikið á sjálfboða- vinnu ýmis konar. Til dæmis þurfa íslensku krakkarnir að taka viðtöl við tilvonandi skiptinema og útskýra hvernig umsóknarferillinn fer fram,” sagði Sigrún Vernharðsdóttir. Yfir sextíu erlendir skipti- nemar tóku þátt í þjálfunar- námskeiðinu og samanstóð hópurinn af mörgum ólíkum þjóðlöndum, svo sem Vene- zúela, Ghana, Austurríki, Bandaríkjunum, Noregi og mörgum öðrum. „Þjálfunarnámskeið sem þetta eru oftast nær haldin úti á landi en þó yfirleitt nær höfuð- borginni. Forsvarsmenn nám- skeiðsins eru sammála um að á þessu námskeiði hafi hóp- urinn þjappast betur saman en venjulega. Reykjanesskóli þótti vel við hæfi því að hann er ónotaður og aðstaðan er hreint frábær. Þar er íþrótta- salur, sundlaug og fyrirtaks herbergi enda voru þátttak- endurnir mjög ánægðir með hvernig til tókst þótt sumum hafi fundist svolítið frumstætt að koma í Djúpið,” sagði Sigrún að lokum. -hþ. Endurbætur á anddyri FSÍ NÚ ERU hefjast endur- bætur við aðal inngang Fjórðungssjúkrahússins. Skipt verður um útihurð, sú gamla víkur og ný rafknúin tekur hennar sess. Einnig verður aðgengi og umhverfi við innganginn bætt á ýmsan hátt auk þess sem lögð verður hitalögn í stéttina þar fyrir framan. Framkvæmdir þessar taka um þrjár vikur og á meðan er þeim sem erindi eiga á sjúkrahúsið eða á heilsu- gæslustöðina bent á að ganga um aðaldyr í kjallara. s/f Hjálmar R. Bárðarson gefur út Vestfjarðabók ÞESSA dagana er að koma út á vegum Islenskrar bóka- dreifingar hf., bókin Vestfirðir eftir Hjálmar R. Bárðarson. I kynningu útgáfunnar segir m.a. að það hafi verið fyrir rúmri hálfri öld að nýstúdentinn Hjálmar R. Bárðarson gekk í fjórar vikur um Hornstrandir með Rolleycord mynda- vél og farangurinn á bakinu. Þá var slíkt ekki farið að tíðkast og þótti ekki efnilegt að ungur maður flæktist um hábjargræðistímann og „ekkert að vinna”. Hjálmar tók myndir meðan þarna var enn byggð og síðan hefur hann í ótal ferðum sínum þangað tekið myndir og ekki aðeins á Ströndum, heldur líka um alla Vestfirði og efni- viðurinn er orðinn að einni af þessum vönduðu bókum Hjálmars. Vestfjarðabókin er 480 blaðsíður að stærð með 920 ljósmyndum, gömlum og nýjum, teikningum og kortum, þar af 647 litmyndum. Bókin byrjar á Breiðafjarðareyjum, síðan er farið um Vestfirði að Isafjarðardjúpi og áfram um Hornstrandir og Strandir í Hrútafjörö. Sumarið 1939gekkHjálmar úr Jökulfjörðum, um Horn- strandir og Strandir í Stein- grímsfjörð, en þaðan yfir í Isafjarðardjúp. Hann hafði breytt myndavélinni til að spara filmurnar, þannig að hann gat tekið 18 myndir á filmuna í stað 12. Hann mynd- aði fólk, landslag og bæi, en segiraðef honum hefði dottið í hug að þarna færi allt í eyði, þá hefói hann einbeitt sér meira að fólkinu. Af því hann átti svona mikið af myndum, langaði hann til að gefa út bók um Homstrandir. Og þær eru kjaminn í bókinni en á undanförnum árum hefurhann verið að bæta í þaó sem vantaði frá öllum Vestfjörð- um. -s//. 14 ATRIÐI TIL At> AUÐVELPA ÞÉR VETUMNN OC ÞÉR LÍÐUR MIKLU BETUR, AÐ EKKI SÉTALAÐ UM BÍLINN CZMD VERP5AMANBURt> | Gegnframvísun þessa miða veitist handhafa hatis vetrarskoðu Gildir til 20. október 1993 Suðurgötu 9, Isaflrði, sími 4580 Pöntunarsíminn er 4580 Kynntu þér vetrarskoðunina Fast verð okkar, áður en þú ákveður annað. 4 cyl. kr. 6.985,- 6 cyl. kr. 8.250,- 8 cyl. kr. 9.650,- Viljir þú fá skipt um olíu og síu, greiðir þú aðeins eflti. Suðurgötu % Isafirði Bifreiðoverkstæði s. 4580 - Bílosalo 3800 Útgáfa: ísafjörður:

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.