Bæjarins besta - 06.10.1993, Síða 9
BÆJARINS BESTA * Miðvikudagur 6. október 1993
9
Bíldudalshöfii.
Bíldudalur:
Nýbrygga
KAFLASKIL urðu í hafn-
armálum Bílddælinga er ný
bryggja var tekin í gagnið í
ágústmánuði sem auðvelda
mun alla þá starfsemi sem
þar fer fram.
Lokið var við nýju bryggj-
una í apríl síðastliðnum og
verktaki varbryggjusmiðurinn
Jón Guðmundsson á Bíldudal.
Bryggjan, sem erþrjátíu metra
löng harðviðarbryggja, er
staðsett í Bíldudalshöfn og
eykst vinnusvæðið á höfninni
um fimm hundruð fermetra
við tilkomu nýju bryggjunnar.
Kostnaður við verkið var
rúmar fimmtán milljónir.
SMÍÐI er hatin á nýju
íþrúltahúsi á Bildudal.
Húsið er línit résbygging og
kostnaður við smíðina er
áætlaður uni fjörtíu og
fimm milljúnir.
# Jarðvegsvinna hófst um
miðjan septembermánuð og
áætlaður byggingartími er
þrjú tíl fjögur ár. Verðandi
íþróttahús er staðsett við
hlið afgirts fótbolta- og
körfuboltavallar og er húsið
hannað með tillítí til þess
að byggja sundlaug við hlíð
þess. Fyrsti áfangi í byggingu
hússins, sem kláraður verð-
ur í haust, nemur átta mill-
jónum króna. íþróttahusinu
sviparmjög til íþróttahússins
sem Súðvíkingar reisa þessa
dagana, scm. er samskonar
límtrósbygging, en hús Bild-
dælinga er þó sjónarmun
stærra. Vélaleiga Hreins
Bjarnasonar hf. sá um jarð-
vegsvinnuna og Tréverk hf.
sér um þá steypuvinnu sem
nú er í fullum gangi.
I í Sþróttahúsinu verður
hægt að stunda allar helstu
innanhús íþróttagreinar, svo
scm körfubolta, fótbolta,
handbolta, blak, badminton
og flcira. Til þcssa hcfur
féiagsheimíli þeirra Bíid-
dælinga verið notað til
leikfímiskennslu og binda
heimamenn því miklar vonir
við nýja íþróttahúsið. .hþ,
ARNAR G. HINRIKSSON
Silfurtorgi 1 • ísafirði • Sími 4144
Sundstræti 24: Önnur hæð.
Rúmlega 120 m2 sérhæð. 3
svefnherbergi. Bílskúr fylgir.
Strandgata7: Nýuppgeri.tvílyft
einbýlishús úr timbri.
Hjallavegur 1: Einbýlishús,.
íbúðarhæðin er 120 m2. Bílskúr
oggeymslaeru um 60 m2. Húsið
er laust í haust.
Pólgata 4: 5 herbergja íbúð á
з. hæð.
Bakkavegur 23: Einbýlishús,
и. þ.b. 160 m2 ásamt bílskúr.
Aðalstræti 22b: 2jaog 3ja herb.
íbúðir á 2. og 3ju hæð.
Tangagata 20: 3ja herb. íbúð.
Laus eftir samkomulagi.
Lyngholt2:140m2einbýlishús
ásamt bílskúr. Laust eftir sam-
komulagi.
FASTEIGNAVIÐSKIPTI
Aðalstræti 20:3ja herb. íbúð á
2. hæð, u.þ.b. 95 m2.
Mjallargata 6: Norðurendi. 4ra
herb. íbúð ásamt tvöföldum
bíiskúr.
Fitjateigur4:U.þ.b. 151 m2ein-
býlishús á einni hæð ásamt
bílskúr.
Súðavík
Aðalgata 60: Lítið einbýlishús.
Bolungarvík
Hlíðarstræti 24: Tvílyft ein-
býlishús, 2 x75 m2.
Hólastígurö: Rúmlegafokhelt
raðhús. Selst á góðum kjörum.
Hlíðarstræti 21: Gamalt ein-
býlishús, 80 m2.
Traðarland 24: Tvílyft einbýlis-
hús, u.þ.b. 200 m2 með bílskúr.
Vitastígur 8: Tvílyft einbýlis-
hús, m.a. 4 svefnherbergi.
ísafjörður:
Sunnukórinn sexflugur
AÐALFUNDUR Sunnu-
kórsins á Isafirði verður
haldinn á morgun, fimmtu-
dagskvöld, klukkan níu ■
fundarsal Norðurtangans
við Sundahöfn.
Dagskrá fundarins erþríþætt,
auk venjulegra aðalfundar-
starfa og annara mála verður
sextugsafmæli kórsins rætt en
hann er stofnaður 25. janúar
1934. í tilefni af afmælinu hefur
verið ákveðið að halda veg-
Iegt afmæli Sunnukómum til
heiðurs og er undirbúningur
þess að komast á fullan gang.
Þess má geta aö Sunnu-
kórinn var stofnaður til að
viðhalda söng í ísafjarðar-
kirkju sem og almennum söng
við ýmis mannamót og er í
dag elsti starfandi blandaði
kórinn á Islandi.
Stjórn Sunnukórsins býður
alla söngelska bæjarbúa vel-
komna á aðalfundinn annað
kvöld og hvetur nýja sem eldri
söngmenn að koma til starfa í
vetur því stefnt er að því að
gera afmælið sem glæsilegast
úr garði.
fihþ.
Reykhólar:
Rcrfmagn lagt í jörð
vegna ísingarhættu
ORKUBÚ Vestfjarða leggur þessa dagana rafmagnsstreng
neðanjarðar í Reykhólasveit á 3,2 kílómetra löngum kafla.
Þessi aðferð, að leggja svona stóran rafmagnstreng í jörðu,
er að ryðja sér til rúms en fyrir um þremur árum var fyrst
farið að nota hana fyrir alvöru.
Tryggvi Ólafsson hjá Orku-
búi Vestfjarða á Hólmavík
segir að á þessu svæði hafi
staurar brotnað og loftlínur
slitnað vegna ísingar og því sé
þetta ágæt lausn. „Við höfum
lagt talsvert mikið af raflínum
neðanjarðar síðastliðin tvö
ár, bæði í Arneshreppi og
síðast á Snæfjallaströnd nú í
sumar. Það er stefnan að línur
sem eru undir nítján þúsund
voltum séu lagðar í jörð á
svona álagspunktum. Við
sjáum fram á lagningu fleiri
lagna sem þessara en engar eru
fastákveðnar ennþá,” sagði
Tryggvi. Jarðýtan sem notuð
er við lagninguna hefur sér-
útbúinn ripper sem plægir
strenginn í um eins meters dýpt
og áhald sem hristir fínt efni úr
jarðveginum ofan á kapalinn.
Tryggvi telur að með þess-
ari aðferð sé komin nokkuð
ábyggileg lausn á snjóflóða-
vandamálum Orkubúsins, þeg-
ar staurar brotna sem eldspýtur
í fjallshlíðum víðs vegar.
Hann bendir þó jafnframt á að
lagningin sé mjög háð jarð-
veginum og segir það einnig
vera helsta vandamálið. Víða
séu urðir, klappir og annað
stórgrýti sem erfitt sé að
plægja.
„Upphaflega voru svona
lagnir einungis framkvæmdir
á einfasa línum en nú er farið
að leggja þriggja fasa línur í
jörð. Meðal annars er talað
um að nýframkvæmdir á ís-
ingarsvæðum verði í fram-
tíðinni eingöngu í jörð en það
er.þó háð því hversu stórar
línurnar eru, ennþá. Sjálfsagt
verður hægt að leggja sverari
línur eftir nokkur ár,” sagói
Ólafur að lokum.
-hþ.
Hiutavelta fyrir Rauða krossinn
ÞESSAR ungu hnátur, Linda Dögg Þorbergsdóttir
og Arna Ýr Kristinsdóttir, héldu fyrir skömmu
hlutaveltu til handa Rauða krossi íslands, Salan var
ágæt og alls söfiiuðu þær 1.430 krónum.