Bæjarins besta - 06.10.1993, Page 10
10
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 6. október 1993
Laugi
Baldurs
SPAUGARI síðustu
viku, Halldór Jónatansson
verkstjóri innanbæjarkerf-
is Orkubús Vestfjarða í
Bolungarvík skoraði á
Sigurlaug Baldursson
vörubifreiðarstjóra á ísa-
firði að koma með næstu
sögu og hér kemur fram-
lag hans:
Vörubílstjóri einn um
fimmtugt sem hafði verið í
vegavinnu í um þrjátíu ár,
þar að auki í um tuttugu til
sjós, þótti kaupið orðið fjári
lélegt og því stundum talið
að hann þyrfti ekki að keyra
mjög hratt. Það var svo fyrir
nokkrum árum þegar hann
var að keyra möl ofan í
bratta brekku, að verk-
stjórinn tekur eftir því að
vörubíllinn fer mjög hægt
upp brekkuna. Hleypur verk-
stjórinn því til bílsins og spyr
bilstjórann hvort ekki sé til
nema fyrsti gir á druslunni?
„Ef ég ætti annan lægri,”
sagði kappinn fúllyndur, „þá
væri ég í honum!” og skellti
hann hurðinni við svo búið.
- Og hér er ein önnur;
Einu sinni var vörubíl-
stjóri við vegavinnu í Djúp-
inu. Einn daginn var hann
fenginn til aðflytja tvo vega-
vinnuskúra. Annar þeirra var
á hjólum og átti vörubillinn
því að draga hann en hinn
skyldi faraávörubílspallinn.
Þegar bilstjórinn hafði
ekið um stund datt annað
hjólið undan skúrnum sem
hann dró án þess að verða
þess var. Menn sem óku á
eftir vörubílnum reyndu að
stoppa manninn en hann
hvorki heyrði til þeirra né
sá þá fyrr en þegar loks
hægði á bílnum í brekku
einni. Þeir eftirtektarsömu
sem fylgdu bílnum tjáðu bíl-
stjóranum að annað hjólið
vantaði á skúrinn. „Nú hver
skrambinn, það var undir
þegar ég fór af stað!” svar-
aði bílstjórinn snöggur.
Eg skora á Þorbjörn Jó-
hannesson bœjarverkstjóra
að koma með nœstu sögu.
Bessinn kláraði 30%
af þorskkvóta sínum í tveimur túrum
SKUTTOGARINN Bessi frá Súðavík kom til heimahafnar sinnar á sunnudag með
37 tonn eftirfimm dagaveiði. Bessinn kom íland vegna brælu, þeirrar fyrstu áþessu
hausti.
Mjög lítill afli hefur fengist á Vestfjarðamiðum undanfarna daga, ölíkt því sem var í
byrjun september er togaramir fylltu sig á tveimur til þréfriur dögum. í þeirri adalin>tu
fékk Bessirm 150 tonn í öðrum túrnurn og 180 tonn í þeim síðari sem svarar til um 30%
af heildarþorskkvóta skipsins, sem er um 900 tonn.
Ósvör í Bolungarvík:
Bolungarvík:
Bylgjan óskar
eftir afriti af samningum
Skipstjóra og stýrimannafélagið Bylgjan hefur sent for-
ráðamönnum útgerðarfyrirtækisins Ósvarar hf., í
Bolungarvík bréfþar sem óskað er eftir afriti af samningum
fyrirtækisins við sjómenn á togurunum Heiðrúnu og Dag-
rúnu, ef slíkir samningar hafa verið gerðir eða að gerð
verði grein fyrir samkomulagi við þá sé um munnlegt
samkomulag að ræða.
Björgvin Bjarnason, framkvæmdastjóri Ósvarar hf., sagði
í samtali við blaðið að sjómenn á togurum félagsins fengju
sambærileg kjör og tíðkuðust á Vestfjörðum en ef hagnaður
y rði af fyrirtækinu kæmi sá hagnaður til sjómannanna og þá
jafnvel í formi hlutafjár. Hvað varðar fyrirspurn Bylgjunnar
um að veikindadagar væru ekki greiddir sagði Björgvin það
vera rugl.'„Eg var afar óhress með þessa spurningu og ég
veit af hverju þetta er til komið. Það er vegna þess að ég
sagði einhvern tímann að við hefóum ekkert efni á að hafa
annað en heilsuhrausta menn,” sagði Björgvin.
Þingevri:
Sléttanesið
komið með 11 milljónir
Sléttanesið hefur að undanförnu verið við veiðará karfa
í Skeijadýpinu og hefúr veiðin gengið heldur illa að sögn
útgerðarmanns skipsins AndrésarGuðmundssonar. Skipið
hefúr verið 19 daga á veiðum og er búið að fá 100 tonn
upp úr sjó að verðmæti um 11 milljónir króna.
Sléttanesið kom til Reykjavtkur í gærdag og skipti um
troll. Það er væntanlegt í land aftur um miðjan mánuðinn.
Framnesið landaði 30 tonnum afkarfa á sunnudaginnoger
nú á veiðum. Línubátar staðarins fengu samtals 4,5 tonn í
síðustu viku og var Bibbi Jóns aflahæstur með 1,4 tonn í
einni ferð. Dragnótabátarnir fengu 7,2 tonn í þremur róðrum
og var Mýrarfell aflahæst með 3,9 tonn í einni ferð. Einn
Þingeyrarbátur hefur hafið veiðar á hörpudisk og fékk
báturirin Máni 9 tonn í sfóustu viku. Aflinn fékkst í þremur
veiðiferðum.
Lítill afli hjá
togurunum
í Víkinni
Skuttogarar Bolvíkinga
komu með lítinn afla að
landi í síðustu viku eða rétt
rúm 50 tonn til samans.
Heiðrúnin hefur landað
tvisvar frá því sögðum
síðast fréttir frá aflabrögð-
um í Bolungarvík, samtals
13 tonnum auk þess sem
sett var í einn gám.
Dagrúnin hefur á sama
tíma landað 18,5 tonnum
auk eins gáms og fór aíli
beggja togaranna til vinnslu
hjá Djúpfangi og hjá fisk-
verkun Magnúsar Snorra-
sonar. Eitt loðnuskip landaði
í Bolungarvík í síðustu viku.
Kap VE kom með 356 lestir
en gera má ráð fyrir að þau
verði fleiri næstu daga því
þokkaleg loðnuveiði er nú á
Halanum og á Kögurgrunni,
fjögurra klukkustunda sigl-
ingu frá Bolungarvík.
Einn rækjubátur landaði í
Bolungarvík í síðustu viku.
Flosi IS kom með 17 tonn.
Þrír netabátar komu með 2,5
tonn úr átta róðrum og var
Hafrún aflahæst með 1,5
tonn í fimm róðrurn. Tólf
línubátar komu með 25,1
tonn úr 33 róðrum og var
Snorri afi aflahæstur með 6,6
tonn í þremur róðrum. Tíu
færabátar lönduðu samtals
4,3 tonnum og var Guð-
mundur Einarsson afla-
hæstur með 600 kg. í tveimur
róðrum. Fjórir dragnóta-
bátar komu með 24,5 tonn í
tíu róðrum og var Páll Helgi
aflahæstur með 11,7 tonn í
fjórum róðrum.
Vestfirðir:
Guðbjörgin með 238 milljóna
króna aflaverðmæti
Aflaskipið Guðbjörg IS-46, var með 2.604 tonn upp úr
sjó fyrstu átta mánuði ársins og var meðalskiptaverðmæti
á úthaldsdag 690 þúsund krónur, en brúttóverðmæti 238
milljónir króna.
Bessi IS-410 var með 2.569 tonn og var meðalskiptaverð-
mæti á úthaldsdag 670 þúsund krónur og heildarverð-
mætið nam 202 milljónum króna. Sé miðað við sama tímabil
í íýrra er töluverður samdráttur hjá Guðbjörgu sem þá var
með 3.362 tonn upp úr sjó og 261,3 milljónir króna
brúttóverðmæti. Bessi er hins vegar með sem nemur 8,5
milljónum hærra brúttóverðmæti í ár þrátt fyrir að aflinn sé
100 tonnum minni en í fyrra. Þessar upplýsingar koma fram
í nýjasta tölublaði Fiskifrétta.
Súðavík:
Haffari tapaði trollinu
Líkt og Bessinn, komu rækjuskip Súðvíkinga inn á
sunnudag vegna brælu. Haffari var með 1,5 tonn en
skipið hafði verið tæpan sólarhring úti er það tapaði
trollinu.
Haffari kom þó ekki alislaus í land því skipið kom með
rækjuskipið Guðmund Péturs í togi eftir að síðarnefnda
skipið hafói fengið trollið í skrúfuna. Ofrinn kom einnig
inn á sunnudag með 16 tónn af rækju og Kofrinn kom
með 35; tonn af rækju. Haffari landaði aftur á móti 37
tonnunr af rækju á laugardag og kotn inn aftur á sunnu-
dag eins og að frarnan greinir.
ísafjörður:
Guðbjörgin með 55 tonn
Isfirsku togararnir hafa fengið lítinn afla að undan-
förnu líkt og önnur skip á Vestfjörðum. 1. október síðast-
liðinn kom Hálfdán í Búð með 35 tonn af blönduðum afla
og daginn eftir kom Guðbjörg með 55 tonn, mestmegnis
þorsk.
A sunnudag komu síðan Páll Pálsson með 30 tonn, Guð-
bjartur með 15 tonn og Stefnir með 15 tonn. Hálfdán í Búð
kom einnig inn á sunnudag vegna brælu og var afli skipsins
rétt fimm tonn.
Á föstudag kom Sigurður Þorleifsson með 25 tonn af
rækju. Daginn eftir kom Hersir með 23 tonn og sama dag
kom Gissur Ár með 50 tonn af frystri pokarækju sem fór til
vinnslu hjá Bakka. Hafbergið kom síðan á mánudag með 19
tonn af rækju og Guðmundur Péturs landaði 17 tonnum af
rækju á sunnudag.