Bæjarins besta - 10.11.1993, Side 3
BtfARINS BETA • Miðvikudagur 10. nóvember 1993
3
ísafjöröur:
Ráðherra hefur ákveðið að friða
húseignina að Aðalstræti 16
MENNTAMÁLARÁÐHERRA, Ólafur G. Einarsson tók í
gær ákvörðun um að húscignin að Aðalstræti 16 á ísafirði
skyldi vera friðuð. Tók ráðherra ákvörðunina að ósk Húsa-
friðunarnefndar ríkisins, sem áður hafði beitt ákvæðum 38.
gr. þjóðminjalaga um skyndifriðun svo ekki yrði farið út í
niðurrif á húsinu eins og Póstur og sími á ísafirði hafði
fyrirhugað.
Bæjarráð Isafjarðar mótmælti
ákvörðun Húsafriðunamefhdar
um skyndifriðunina og fór þess
á leit við menntamálaráðheiTa,
að hann staðfesti ekki þessa
ákvörðun nefndarinnar og benti
í því sambandi á að Húsa-
friðunamefndhefði ekki svarað
erindi byggingarfulltrúa um
niðurrif hússins innan tilskilins
frests. Byggingarnefnd og
bæjarráð höfðu samþykkt sam-
hljóða niðurrif hússins og
bæjarstjóm gerði ekki athuga-
semdir við þær samþykktir.
Bæjarráð beindi því þeim til-
mælum til ráðherra að hann virti
rétt bæjaryfnvalda til að taka
ákvarðanir um sitt nánasta um-
hverfi. Ráðherra tók hins vegar
ákvörðun um að friða húsið eins
og áður sagði og virðist því
geta tekið fram fyrir ákvarðanir
bæjaryfirvalda víðs vegar um
landið, sýnist honum svo.
Tilskipunarvaldið er greinilega
í höndum manna eða nefnda
fyrir sunnan.
„Með þessari ákvörðun ráð-
herraermáliðkomiðútaf okkar
borði. Bæjarráð bókaði mót-
mæli við þessari hugmynd
Húsafriðunamefndar og því er
ekki að leyna að þessi ákvörðun
veldur okkur vonbrigðum,”
sagði Smári Haraldsson í morg-
un.
„Við vitum ekki ennþá hvað
við megum gera, vió höfum ekki
séð friðunarskjalið ennþá. Mér
þykir þó líklegt að við megum
ekki hreyfa við húsinu en þar
sem við höfum ekki fengið
gögnin í hendumar er erfitt að
segja til um málið. Við höfum
ekki metið stöðuna, en við
komum til með að meta hvaða
kostir em í stöðunni. Allt okkar
húsnæði er fullnýtt í dag og við
þurfum því aukið pláss. Þetta
var hagkvæmasti kosturinn fyrir
okkur. Húsið var uppmnalega
Aðalstræti 16 á ísafirði. Menntamálaráðherra í gær ákvörðun um að friða húsið samkvæmt beiðni Húsafriðunar-
nefndar rikisins.
keypt til að geta rýmkað um
okkur og því veldur þetta okkur
vonbrigðum. Okkur finnst það
einnig skrýtið að ráðherra eða
einhver nefnd í Reykjavík getið
tekið fram yfir hendur bæjar-
yfirvalda um sitt nánasta um-
hverfi, það er umhugsunarvert
og hvar endar þetta,” sagði
Erling Sörensen, stöðvarstjóri
Pósts og síma.
-5.
Núpur hf. og Gásar hf.
HÉR og NU
kynna
eldhús- og baðinnréttingar
Sérfræðingur frá Reykjavík kemur og
kynnir frábærar innréttingar á verði
sem kemur þægilega á óvart.
Komið og fáið tilboð í nýtt eldhús og
bað fyrir jólin.
Opið laugardag kl. 10-15
Skeiði 1, ísafirðijr sími 3114- verslun sem býður betur