Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.11.1993, Síða 4

Bæjarins besta - 10.11.1993, Síða 4
4 EÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 10. nóvember 1993 Óháð vikublað á Vestfjörðum, Útgefandi: H-prent hf. Sólgötu 9, 400 ísafjörðin? ® 94-4560 O 94-4564. Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson ® 4S77 &• 985-25362. Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbj örnsson ® 5222 & 985-31062. Blaðamaður: Hermann Þór Snorrason. Útgáfudagur: Miðvikudagur. Prentvinnsla: H-prent hf. Bæjarins besta er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfrétta- blaða. Eftirprentxm, hljóðritun, notkun ljós- mynda og annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið. Viðhorf bæjarbúa til okkar hafa breyst til hins betra LIFIÐ s í BÆJSTUM SORPHKEmSTfNARMAÐ URINN BB KYNNIR starf sorphreinsunarmanna í Lífinu í bænum þessa vikuna. Þeir eru tveir sem starfa á sorpbílnum, þeir Hafþór Halldórsson og Ari Sigurjónsson. Hafþór á og rekur sorpbílinn og hefur því verið eins konar verktaki hjá Isa- fjarðarkaupstað og Bolungarvíkurkaupstað í þau fimm ár sem hann hefur séð um sorphreinsunina í þeim kaupstöðum. „Við mætum klukkan átta á morgnana og vinnum oftast til að verða sex. Við tökum heim- ilissorpið á fyrstu fjómm dög- unum og á föstudögum förum við í gámalosun. Þetta er alltaf sami rúnturinn sem við fömm og við emm orðnir mjög „rútí- neraðir” í þessu. Með flokkun á heimilum og fullkomnari sorp- bíl eram við fljótari yfirferðar, en á móti kemur að magnið er orðið meira,” sagði Hafþór. Mikil hugar- farshreyting „Ég hef annast þessa starf- semi í eigin nafni undanfarin fimm ár en hef samtals unnið við þetta í tólf ár. Ég tók vió af föður mínum, Halldóri Geir- mundssyni, sem sá um sorp- hreinsunina í tuttugu og fimm ár og ég hef því tengst starfinu óbeint frá því ég var lítill strákur og hef um leið upplifað margar breytingar. Aðstaða okkar er öll orðin miklu betri, við eram komnirmeómjöggóðanbíl sem pressar mesta loftið úr sorpinu og þjappar því svo saman. Það gerir okkur kleift að losa bílinn helmingi sjaldnar en þegar við voram á gamla bílnum. Fólk er líka almennt orðið mjög dug- legt að flokka sorpið í brennan- legt og óbrennanlegt, þó auð- vitað séu alltaf „sleðar” inn á milli. En auk tæknibylting- arinnar hefur orðið mikil hu gar- farsbreyting. Hér áður fyrr lá við að pokunum væri hent í mann og það var lítil virðing borin fyrir okkur og starfi okkar. Öll sú umræða sem farið hefur fram í fjölmiðlum um mengunar- og sorpmál hafa valdið því að betur er gengið um sorp, hvort sem er á heim- ilimum sjálfum eóa í bænum. Fólki fannst raslið og allt sem því tengdist eitthvað svo ógeðs- legt og vildi ekkert nálægt því koma.” Höfum sloppið ótrúlega vel frá skakkaföllum „Við höfum verið ótrúlega heppnir á bílnum, hvað slys varðar. Til dæmis hef ég bara einu sinni lent í vandræóum á Óshlíðinni, það var í fyrraþegar ég var á heimleið úr Bolung- arvík. Þá hafði fallið snjóflóð Isafjarðarmegin við opið á lengri vegskálanum og ég gat ómögulega séð það og ók því beint inn í snjóflóðið. Helstu erfiðleikamir stafa einmitt af snjónum og veór- áttunni um veturtímann. Það er alveg rosalega þreytandi að vinna undir þeim erfiöu kringumstæðum sem oft era. Maður þarf ósjaldan að vaða skafla upp undir mitti og baslast marga metra í þeim til að komast að tunnunum. Það kom fyrir 1983 aðskaflamirvora svoháir, að maður náði upp fyrir sorp- kassann á bílnum og gat látið pokana detta ofan í hann. Svo getur þetta líka verið mjög gott yfir sumartímann, þá er nú fínt að geta unnið úti í sólinni. Þetta er líklega svipað þreytandi á vetuma og það er skemmtilegt á sumrin. Annars er ég ánægður í starfi, ég hef nóg að bíta og brenna og það er nú það sem gildir,” sagði Haf- þór Halldórsson að lokum. -hþ. Simdlaug Suðureyrar Qpnunartímar í vetur Mánudaga kl. 17:15-18:45 Almennur tími kl. 19:00-20:30 Fullorðinstími Þriðjudaga kl. 17:15-20:00 Almennur tími Miðvikudaga kl. 17:15-19:00 Pottatími Fimmtudaga kl. 17:15-18:45 Almennur tími kl. 19:00-20:30 Fullorðinstími Föstudaga kl. 17:15-20:00 Almennur tími Laugardaga kl. 13:00-16:00 Almennur tími Sunnudaga kl. 13:00-16:00 Almennur tími Sundlaugargestir fari upp úr ekki seinna en 15 mín. fyrir auglýstan lokunartíma. Leiðarinn: Verkalýóshreyfingin hvarf frá fyrirhugaðri uppsögn samninga. Þar með var launafólki foróað frá stórkostlegu áfalli, semóhjákvæmilega hefði fyl ft f kjölfaruppsagnarinnar. Vaxtalækkunin hjá bönkum og sparisjóöum, scm væntan- lega tekur gildi á morgun, mun færa flestu launafólkí meiri kjarabót en það sem hefði getað væi að ekki sé talað um langvinn átök. Til að greiða fyi'ir kjarasamning Iækkun viróisaukaskatts á matvæli. Verkalýðslueyfingunni var þá boðið upp á annan valkost. Hækkun persónuafsláttar í skatti. Þessu höfnuðu verkaljösforingjamir. Þegar þessi leið var í boði á ný fyrir nokkrum dögum var sama svariö. Nei. við viljum „matarskattslciðina." Hér skal ekki kveðinn upp dómur yfir vali verkalýös- forustunnar. Ýmislegt bendir þó til að þeir hafi veðjað á rangan hest. Nægir þar til að nefna, að það heftir sýnt sig, að þeim mun flóknari sem lög cru, þeim mu n andsnú nari eru þau venjulegu iaunafólki. Hriplek skattalög eru þar órækt vitni. Þó ekki væri nema af þessari ástæðu er hætt við að reikni- vonbrígðum með hlut launþegans þegar frammí sækir. Þáttur Seöiahankans í vaxtalækkuninni vekur athygli. Bankamir lýstu strax ylir aó þeir væru hlynntir vaxtalækkun, en þeir treystu sér ekki til að ákveða eitt né neitt fyir en afstaða þessa húsbóndavalds þeirra lægí fyrir. M.ö.o. þeir slakað yrði á járnklónni, sem Seðlabankinn hcfur á þeim. unni hjá viöskiptabönkunum. Bankamir fá vaxtauppbót á bindiskylduna, semþar að auki verður lækkuö. Hvort tveggja var og staðan cr í fjármálum þjóðarinnar. stjóra skiptir þessi fjárhæð ekki sköpum í aíkomu bankans, þótt auðvitað muni um þetta Íítilræði. Þessi blátt áfram yftrlýsing hins nýja seólabankastjóra staðfestir það sem margir hafa haldið frant, að Seðlabankinn hefur seilst æöi djúpt í vasa viðskiptabankanna á undan- var fyrir „eigið fé” bankans sannar þessa kenningu. síns? Já, eða færi sér hægar í skattheimtunni í framtíóinni. En hvaó sém vangaveltum af þessu tagi líður var okkur forðað frá hroðalegu slysi, sem uppsögn samninganna hefði haft í för með sér. Og þegar betur er aó gáó, þá verða tvö hundruð krónur til eða frá í launaumsiagi verkafólks ekki til að kollvarpa þjóófélaginu frekar en tvö hundmð milljónirnar af afkomu Seðlabankans. s.h.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.