Bæjarins besta - 10.11.1993, Qupperneq 7
BíJARINS BBTA • Miðvikudagur 10. nóvember 1993
7
Skíðakolaport Skíðafélagsins:
Gekk von-
um framar
SKÍÐAKOLAPORT Skíðafélags ísafjarðar seni haldið
var um Inirð í Djúpbátiiuin Fagranesi síðastliðinn sunnu-
dag heppnaðist injiig vcl að sögn aðstandcnda þess. Skipið
fylltist strax við opnun kl. 14 og eftir það var jöfn uinferð
fólks allt til loka markaðarins.
Tólf til fjórtán aðilar buðu vörur sínar á Skíðakolaportinu
að þessu sinni og voru þeir allir ánægðir með móttökumar.
Að sögn Vigdísar Arsælsdóttur, eins af aðstandendum Skíða-
kolaportsins var nokkuð minni kaffisala að þessu sinni,
lieldur en í vor, en sala annarra aðila hefði gengið vonum
framar. Ráðgert er að halda næsta skíðakolaport í mars á
næsta ári.
Ljósmyndari blaðsins leit inn í skíðakolaportið og tók þá
meðfylgjandi myndir.
Vigdís Ársælsdóttir einn aðstandenda kannar hér vöruúrvalið hjá Svönu í Krismu.
Þær stöllur Halla Reynisdóttir og Friðgerður Ómarsdóttir
frá Vestfiski seldu eigin framleiðslu, herta vestfirska
ýsu.
Hjónin Bjarni Jóhannsson og Anna Sigríður Jörunds-
dóttir í Rafsjá í Bolungarvík voru með sölubás að þessu
sinni og létu vel að aðsókninni.
Ruth Tryggvason í Gamla bakaríinu var að sjálfsögðu
með bás um borð í Fagranesinu og bauð m.a. uppá
kókoslengjur, súkkulaðikossa og fleira góðgæti.
ísafjörður:
Bjórhátíðin lagðist
vel í bæjarbúa
SVO VIRÐIST sem ísfirðingar hafi tekið fjögurra daga
bjórhátíð Sjallans með stakri ró og spekt. Lögreglan þurfti
lítil afskipti að hafa af bæjarbúum sem fjölmenntu á barina
þar sem hálfur Iítri af bjór bauðst á aðeins 250 krónur.
Aðfaranótt laugardags gisti
einn Norðmaður fangageymslur
lögreglunnar og fékk að „sofa
úr sér” eftir slagsmál við heima-
menn. Sömu nótt var ökumaður
stöðvaður grunaður um ölvun
við akstur og fer mál hans
hefðbundna leið gegnum kerfi
dóms og laga.
Aðafaranótt sunnudags gistu
tveir menn fangageymslumar
vegna ölvunar og óláta, sá fyrri
1 var fluttur inn klukkan fjögur
og hinn seinni kom tíu mínútum
síðar.
Að sögn lögreglunnar var
þetta annars mjög róleg helgi
og lýsir hún ánægju sinni yfir
því hve vel hún gekk fyrir sig.
-hþ.
ísafjaröardjúp:
Rækjuaflinn
kominn í tæp
677 tonn
ALLS bárust 108 tonn af rækju á land úr ísaQarðardjúpi í
síðustu viku. Heildaraflinn er því kominn í 676,9 tonn, sem
er rúmlega 1/4 hluti heildarkvótans á þessari vcrtíð.
Mestur afli hefur borist til
Rits hf., eða 237,5 tonn, í öðru
sæti er Bakki hf., með 155,2
tonn, þá Þuríður hf. í
Bolungarvík með 126,2 tonn,
Frosti hf., í Súðavík kemur
síðan með 86 tonn og hjá Bása-
felli hf., á ísafirði hafa verið
71,9 tonn, það sem af er þessari
vertíð.
Afiahæsti báturinn til þessa
er Valur ÍS-420 með 42,4 tonn,
þá kemur Halldór Sigurðsson
IS-14 með 38,7 tonn, Haukur
ÍS-195 með 36,3 tonn og í fjórða
sæti er Sigurgeir Sigurðsson IS-
533 með 34 tonn.
-s.
RAFIÐNAÐARSAMBAND
ÍSLANDS
HÁALEITISBRAUT 68, 103 REYKJAVÍK, SÍMI (91) 681433, FAX (91) 39097
Til hvers erum við með öll
þessi verkalýðsfélög?
Rafiðnaðarsamband íslands boðar til
fundar á Isafirði föstudaginn
12. nóvember kl. 20:30
í Súðinni á rafmagnsverkstæði Pólsins.
A fundinn mæta forystumenn
Rafiðnaðarsambands Islands og ræða
starfsemi sambandsins, tilgang
verkalýðsfélaga, félagsaðild, stöðuna í
kjaramálum, starfsmenntamál og önnur
mál, er upp kunna að koma á fundinum.
Allir rafiðnaðarmenn eru eindregið
hvattir til þess að mæta og taka þátt í
umræðu um starfsemina og mótun stefnu
Rafiðnaðarsambands Islands.