Bæjarins besta


Bæjarins besta - 16.03.1994, Síða 9

Bæjarins besta - 16.03.1994, Síða 9
MJARINS BESTA • Miðvikudagur 16. mars 1994 9 hljóðum og við fórum beinustu leið inn í eldhús. Þar var mér sagt til verka og ég hófst strax handa. Skömmu síðar hafði ég verið kynnt fyrir öllum vinnufélögum mínum, sem fljótlega urðu mínir bestu félagar. Að loknum fyrsta vinnu- deginum spurðu þeir hvar ég byggi og ég sagðist hvergi búa og mundi að öllum líkindum bara sofa út í skógi. Þau tóku það auðvitað ekki í mál og for- stöðukonan kom mér fyrir heima hjá systur sinni. Viku seinna fékk ég svo varanlegt gistihúsnæði í kofa sem nefndur var „Rotna húsið“ skammt frá úti í skógi. Þar bjó ég hjá ein- fættum, rosknum trommara, ásamt tveimur svörtum köttum hans.“ Eftirminnilegt afmælisteiti - Og þá liggur beinast við að spyrja, hvernig líkaði þér að vinna í sænsku fangelsi með einfættan trommara fyrir sam- býlisfélaga? „Sá einfætti var mér mjög góður og ég átti afar vingott við kettina hans. Reyndar hafði ég öllu meiri afskipti af nágranna okkar í næsta kofa, sextugum hundaljósmyndara og -þjálfara. Við elduðum oft saman, ég fór með honum á hundasýningar og hann kenndi mér góða sænsku og ensku. En hvað fangelsið varðar, þá kynntist ég þarna í fyrsta sinn „vondu" fólki á ævinni. Þarna var samankominn hluti af helstu krimmum Svíþjóðar, eða um fimm hundruð fangar. Þetta var fjölbreyttur hópur afbrota- manna og svindlara og ég skynjaði alltaf óttann og hræðsl- una í augum flestra starfs- mannanna og þá sérstaklega varðanna." - Þú hefur þá ekki náð að kynnast sjálfum föngunum af neinu ráði? „Jú og nei. Ég hafði smá- vægileg afskipti af alveg indælis náunga þama sem annars var í heimspekinámi, því að þar sem um tilraunfangelsi var að ræða, var sumum leyfilegt að stunda nám. En svo voru þarna líka menn sem virtust ekki vilja manni neitt gott og þá er mér efst í huga einn ófrýnilegur maður sem hugsaði um það eitt að sleppa út úr fangelsinu og fá sér vel að borða. Hann var eigin- lega sá eini af öllum föngunum sem við starfsfólkið hræddumst verulega við. Og ein finnsk starfsstúlka í eldhúsinu stóð í voða spennandi og skemmtilegu bréfasambandi við einn fanganna og af þeim sökum fékk þessi fangi alltaf sérstakan mat og betri að- hlynningu af hálfu finnsku stúlkunnar en aðrir fangar. Svo var það á afmælisdegi fangans, að við stúlkumar í eldhúsinu bökuðum fyrir hann dýrindis köku og fengum leyfi til að færa honum hana sjálfar. Þetta til- stand kostaði sérstakan fylgdar- vörð sem gekk með okkur til hans og við fengum að halda smá afmæliskaffi í einu her- bergja varðanna. Svo tók vörð- urinn hníf upp úr læstri skrif- borðsskúffu sinni og skar kök- una í sneiðar fyrir okkur. Þessi óvenjulegi vinur finnsku stúlk- unnar reyndist hið mesta Ijúf- menni og við skemmtum okkur vel og áttum ánægjulega sam- verustund. En í öllum glaumn- um þaut skyndilega stór og mikill fangi inn um rimladymar, sem vörðurinn hafði til allrar óhamingju gleymt að læsa, og þreif hnífinn af borðinu án þess að við kæmum neinum vömum við. Okkur brá auðvitað alveg óskaplega við þetta og skildum á augabragði að hér var mikil hætta á ferð. Fanginn hélt hnífnum á lofti yfir verðinum sem stóð aðgerðarlaus af undr- un og hræðslu. Hann otaði hnífnum í sífellu að verðinum og gleðisvipurinn sem fyrir ör- fáum augnablikum var á andliti varðarins hafði nú breyst yfir í skelfingarsvip. Þegar fanginn hafði loks sýnt okkur óskorað vald sitt yfir okkur, skellti hann upp úr, lagði hnífinn á borðið og gekk út. Hann var einungis að sanna getu sína fyrir verðinum. Eftir þennan atburð var ég öllu meðvitaðri um að það var ekki að ástæðalausu sem þessir menn voru hafðir þama á bak við lás og slá.“ Vann á heimili fyrir vangefna „Ég vann í fangelsinu fram á vor og kom þá aftur heim til íslands, skrapp svo stuttu síðar til New York í heimsókn til bandarísks vinar míns, kom heim aftur og eftir stutta við- dvöl hér á landi fór ég á ný til Svíþjóðar í leit að atvinnu.“ - Þú notar orð eins og að „skreppa“ þegar þú talar um heimshornaflakk þitt eins og þaðséekkerttiltökumál. Hvem- ig gekk þér að fjármagna þessa „skreppitúra“ á unglingsár- unum? „Ég náði alltaf að vinna mér inn góðan pening í ferðum mínum enda tilkostnaður nánast enginn, ég borgaði til dæmis engaleigu í „rotna húsinu", svo dæmi sé nefnt. Og þegar ég flutti öðru sinni til Svíþjóðar, ákvað ég að fara aftur til Ákersberga og þar beið rúmið mitt enn í „rotna húsinu“. Hins vegar fékk ég aðra vinnu, ég starfaði á heimili fyrir vang- efna. Þetta var mér ótrúleg lífs- reynsla og þarna lærði ég meira að segja ýmislegt um sjálfa mig. Þessi dvöl mótaði mína eigin persónu meira en ég gerði mér grein fyrir þá, og um leið opnuðust fyrir mér nýjar dyr að sjálfu lífsgildinu og tilverunni almennt. Maður getur auðveldlega séð á vangefnu fólki hvort því líður vel eða illa og okkar markmið var að gera þeirra daglega líf sem gleðilegast og auðveldast. Ég man sérstaklega vel eftir einum manni, sem átti erfitt með allar líkamshreyfingar og tján- ingu. Hann vissi ekkert þægi- legra og unaðslegra en að láta blása í andlit sér, sem ég og stundum gerði til að gleðja hann. Á þeim stundum sýndi hann mér þá mestu gleði sem ég hef nokkurn tímann orðið vitni að hjá nokkurri manneskju eftir það. Hann sýndi okkurekki þakklæti því að hann vissi ekki hvað það var, þetta var aðeins óskert gleði.“ Forðast hættur „Ég vann á heimilinu fram á vor, kom þá aftur lieim til Is- lands og næsta vetur var ég á flakki um alla Evrópu með einum útúrdúr til Bandaríkj- anna.“ - En nú ferðast þú alltaf ein, er það ekki hættulegt? „Nei, það hefur ekki verið hingað til. Frænka mín spurði eitt sinn hvort ég væri virkilega svona hugrökk en þá hafði ég aldrei hugsað út í það. Núna í seinni tíð hef ég áttað mig betur á því, að líklega hefur þurft hugrekki til. Af því fólki sem ég á annað borð kynntist náið í ferðum mínum, var ekki nema um ein- stök Ijúfmenni að ræða. En ég hafði líka vit á að halda mig fjarri þeim stöðum þar sem möguleiki var á að lenda í vandræðum. Þannig að ég get því ekki sagt þér neinar sögur af þess háttar ævintýrum, þó svo að ógrynni eftirminnilegra atvika hafi komið upp. En að loknu alþjóðlegu ferða- ári mínu lét ég loks verða af þeim gamla draum að flytjast til Bandaríkjanna og New Y ork varð fyrir valinu, en þó reyndar ekki af neinni tilviljun því þar átti ég fyrir nokkra ameríska vini, og einum þeirra giftist ég eftir skamma dvöl úti. Ég gerðist ráðsett húsmóðir, stund- aði ýmsa vinnu og nam nútíma- dans. Ég var reyndar orðin allt of gömul til að fara út í dans- námið af einhverri alvöru en mér fannst það bara svo gaman að ég varð að halda áfram. Við skildum eftirfjögurra ára hjónaband og aftur varð ég að treysta eingöngu á sjálfa mig. Ég gerði mér grein fyrir að ég yrði að ná einhverjum tökum á mínum atvinnumálum til fram- búðar. Ég ákvað því að fara í háskóla, með það að leiðarljósi að eygja síðar möguleika á vinnu sem fullnægði mínum óskum. Ég sótti um skólavist í Hunter College sem er hluti af stærri, borgarreknum háskóla, New York City University. Ég hafði ekki stúdentspróf og tók því svokallað undirbúningspróf og komst þannig inn í skólann en það er kallað að „fara inn bakdyrameginn“.“ - Hvernig er hægt að ná árangri í erlendum háskóla með einungis gagnfræðaskólapróf að baki? „Það kostaði mig alveg gífur- lega vinnu, sérstaklega fyrsta árið þar sem við „bakdyra- nemendumir“ þurftum bókstaf- lega að læra allt frá grunni. I fyrstu hafði ég ekki hugmynd um hvað mig langaði að læra og reyndi því við dansnám, svo stjómmálafræði og að lokum fann ég mig íþjóðhagfræði. Þar lærði ég nýja og klassíska hag- fræði eins og venjan er í al- mennri hagfræði. En náms- deildin mín starfaði í samvinnu við aðra deild að nafni Black and Puerto Rican Studies og þar kynnist ég fyrst mínum „mentor", eða ráðgjafa, sem svo leiddi mig inn á braut þróunar- hagfræðinnar og ég verð honum ævinlega þakklát fyrir það. Hann sýndi mér nýjar víddir í hagfræði og jafnframt að til eru aðrar kenningar en hinar nýju og klassísku. Og undir hans leiðsögn, sleppti ég mér gjör- samlega í þróunarhagfræði- kenningum og sökkti mér á kaf í námið. Eitt af verkefnum mínum var rannsóknir á einu landa Afríku, Tanzaníu, og á meðan að ég vann við það verk- efni rann það ljós upp fyrir mér, að Island væri þróunarland. Þessi uppgötvun mín varð meðal annars til þess að ég hélt áfram í námi, enn ákveðnari en áður.“ - Þannig að það þróunarverk- efni sem þú hefur unnið að áVestfjörðum í vetur í tengslum við atvinnumál kvenna er þá íraun beint framhald af störfum þínum erlendis? „Já, það mætti eiginlega segja það. Og ég hef alveg haldið áfram mínu sjálfstæða námi síðan ég útskrifaðist, fyrst í þróunarhagfræði og síðar í um- hverfishagfræði. En ég stundaði nú ekki sam- fellt nám við háskólann því ég veiktist alvarlega á næst síðasta skólaárinu og varð því að taka mér hlé sem lengdist upp í tvö ár. Ég reyndi margar tilraunir til að hefja nám á ný en þær misheppnuðust allar vegna veikindanna. Og á þessu tveggja ára tímabili bjó ég lengst af hér heima á Islandi og starfaði fyrst hjá Kredit-kortum hf. og síðar hjá Hagstofu Is- lands. Námið gekk svo eins og í sögu þriðja veturinn á eftir.” - Fannstu aldrei fyrir heim- þrá í dvölum þínum erlendis? „Nei, ég fann sárasjaldan fyrir henni. Ég er nefnilega þeim skemmtilega kosti búin að þar sem ég er hverju sinni, finnst mér ég allt eins eiga heima. Enda sest ég hvergi að nema mér líki vel í upphafi. Sama gilti um það að flytjast til Vestfjarða síðastliðið haust. Ég á auðveldara en ella með að flytjast hingað vestur, því það á svo vel við mitt lífsmynstur að flytjast búferlum á nýja staði. I gegnum tíðina hef ég kynnst fjölda fólks og þessir sífelldu flutningar hafa kennt mér að meta fólk öðruvísi að verð- leikum. Ég hef notið sambanda minna við fjarlæga vini til hins ýtrasta, því ég hef alltaf gert mér grein fyrir að ég muni ekki hafa þá ævilangt hjá mér, nema í hjartanu. Svo hef ég líka verið dugleg við að heimsækja þá um víða veröld.“ - Hélstu alltaf sambandi við ættingja þína á heimaslóðum? „Já, en í fyrstu gerði ég nú lítið af því. En vitneskja mín af ömmu minni og móður heima á íslandi gerðu líf mitt bærilegra á erfiðum tímum. Einungis það, að vita af þessum tveimur konum í sínu óbilandi öryggi, var mitt lífsakkeri úti.“ New York, New York - Fyrir sumum er New York heimili frægu stjarnanna, fyrir öðrum borg fjármálanna og enn öðrum jafnvel heimur ævin- týranna, í hvaða mynd birtist borgin þér? „Mér finnst borgin óskaplega skemmtileg vegna þess aðal- lega að hún er svo ögrandi; mannlífið er sífellt á hreyfingu og borgin lætur mann aldrei í friði. Ég bjó í henni í tíu ár og ég náði að upplifa mjög skemmtilegt tímabil í sögu hennar, þegar kraftur borgar- búa var hvað mestur og sköp- unargáfan í hámarki. En það er tvennt ólíkt að koma til New York sem ferðamaður eða að búa þar. Of margir ferðamenn hafa mikla fordóma gagnvart henni, og þá andúð byggja þeir aðallega á vitneskju sinni úr afbökuðum heimi kvikmynd- anna. En ég vann eitt sinn í Harlem hverfinu á námsárum mínum og upplifði þá hið sannagötulíf af eigin raun. Þannig var, að ég og nokkrir skólafélagar mínir fengum námsleyfi til að starfa í öðrum háskóla í borginni við að tölvuvæða skrifstofu skólans sem og að koma á fót sérstakri tölvudeild, ætlaðri kennslu. Þessi litli skóli. sem á hefur að skipa á þriðja hundrað nem- endum, er einungis fyrir spænskumælandi innflytjendur. Þar gefst nemendum kostur á að ljúka fyrstu tveimur náms- árunum á spænsku og læra um leið ensku til að vera undirbúin fyrir síðari helminginn í hinum almenna háskóla. Ég bjó alltaf í minni eigin íbúð hjá Hunter skólanum og tók lestina daglega til Harlem á meðan að tölvuvæðingunni stóð, eða í níu mánuði. Og í þessu svarta hverfi ríkir sérstök menning sem er engri annarri lík. Ibúarnir koma svo sann- arlega til dyranna eins og þeir eru klæddir og eru mjög til- finningaríkir og hika ekki við að láta skoðanir sínar í Ijós. Og ég, sjálfur Islendingurinn, sem þyki öfgakennd og afar „óís- lensk“ í mér hér heima, þótti mjög stíf og köld að eðlisfari meðal ameríkananna í Harlem, sérstaklega á meðal þeirra af

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.