Bæjarins besta - 16.03.1994, Page 16
Fljúgiö
meö elsta
starfandi áætlunar■
flugfélagi á íslandi
FLUGFÉLAGIÐ
ERNIRf
ÍSAFJARÐARFLUCVELLI
© 4200 • □ 4688
Á ÍSAF/RÐ/
SÍM/5267
BÍLALEIGAN (ærnir
— Fyrir hann...
Þor sem bílornir skipto ... og hana
um eigendur 44 JÖNGB
SKEIÐI 5 • ÍSAFIRÐI /lÍGUNNA
© 4300 • © 4448 Ljóninu, Skeiði, ísafirði, sími 3464
Bolungarvík:
BæjarsQprnin vill samvinnu
á milli Osvarar og Þuríðar
- bréf þess efnis hefur verið sent forráðamönnum fyrirtækjanna
BÆJARSTJORN Bolungarvíkur hefur sent forráða-
mönnum Osvarar hf„ og Þuríðar hf., bréf þar sem farið er
fram á að fvrirtækin hefji viðræður um hugsanlegt samstarf
fvrirtækjanna eða jafnvel sameiningu. Segja heimildir blaðsins
að bréfið hafi verið sent er Ijóst varð að Bolvíkingar fengju
ekkert af hugsanlegum fjármunum sem ríkisstjórnin hyggst
veita til Vestfjarða, þar sem þeir uppfylltu ekki þau ströngu
skilyrði sem þar kunna að verða sett, en þar kveður mest á um
samstarf eða sameiningu fyrirtækja og sveitarfélaga.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins virðist ekki vera mikill vilji
hjá Ósvararmönnum fyrir við-
ræðum sem þessum en Þuríðar-
menn segjast alltaf tilbúnir til
að ræða málin. „Við hljótum
að skoða þetta og meta. Við
erum ekkert yfir það hafnir en
ég sé ekki hvað málin hafa
breyst frá því í október þegar
þessi mál voru til umræðu nema
að menn séu að bera víumar í
þessa fjármuni frá ríkisvaldinu
sem er reyndar lán sem veitt er
með ströngum skilyrðum eftir
því sem fjármálaráðherra segir.
Það er svo að þegar silfrinu er
útdeilt, þá vilja margir fá,” sagði
Björgvin Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Ósvarar hf., í
samtali við blaðið.
Jón Guðbjartsson, einn eig-
enda Þuríðar hf., sagðist ekki
hafa séð umrætt bréf en hann
kvaðst hafa heyrt af því og sagði
þá Þuríðarmenn tilbúna í við-
ræður. „Við svöruðum þessu
bréfi játandi. Við erum tilbúnir
{viðræður um samvinnu og það
hefur alltaf legið fyrir hjá okkur.
Við vorum í viðræðum við odd-
vita bæjarstjómar um eins og
hálfs mánaðar skeið í haust um
allskonar uppfærslur sem þeim
datt í hug og við svöruðum alltaf
játandi og það svar stendur
ennþá. Þá vorum við reyndar
bara tveir eigendumir að fyrir-
tækinu en síðan þá hefur það
verið gert að almenningshluta-
félagi og hluthafarnir því fleiri
en við erum tilbúnir í viðræður
: :
g p§ |
■
■ : ■
r
f.. - :
■ .
Hraðfrystihús Þuríðar hf., í Bolungarvík. Bæjarstjórn Bolungarvíkur hefur sent
forráðamönnum fyrirtækisins bréf þar sem farið er fram á að þeir helji viðræður við
Osvararmenn um hugsanlega samvinnu milli fyrirtækjanna eða jafnvel sameiningu.
við. Við viljum gera hlutina
hagkvæmari fyrir bæinn, sem
og okkur.
Eg hef ekki leitt hugann að
því, hvaða leiðir væru til sam-
einingar og hver útkoman yrði.
Það verður mjög erfitt mál og
ég get ekki séð hvernig það
getur gerst því að alveg eins og
lá fyrir strax í upphafi þá var
það ljóst að togararnir þurftu
meiri tekjur en eitt íshús gat
látið þá hafa og það er það sem
Ósvararmenn skyldu ekki í
haust þegar þeir sögðu okkur
að hypja okkur út en virðast
vera farnir að skilja núna, því
þeir eru á kafi í því að reka
fyrirtækið á hæsta verði,” sagði
Jón Guðbjartsson.
-s.
ísafjörður:
Kvennalistinn hættir við
sameiginlegt framboð
FULLTRUAR kvennalistans á Isafirði tilkynntu
fulltrúum Alþýðubandalags og Alþýðufiokks á sunnudags-
kvöld að frekari viðræðunt unt sameiginlegt framboð fvrir
bæjarstjórnarkosningarnar
Kvennalistans og virðist því
listar verði í kjöri í vor en ekki
uppi unt í síöustu viku.
Eins og sagt var frá hér í
blaðinu í síðustu viku, ritaði
Kvennalistinn Alþýðuflokki.
Alþýðubandalagi og Fram-
sóknarflokki bréf þar sem
boðið var upp á viðræður um
sameiginlegt framboð þessara
flokka við bæjarstjórnarkosn-
ingarnar í vor. Framsóknar-
rnenn ákváðu strax að taka ekki
þátt í viðræðunum þar sem
framboðslisti þeirra var til-
búinn en flokkarnir þrír sem
í voru væri lokið að hálfu
allt benda til þess að fimm
tveir eins og hugntyndir voru
eftir voru hittust einu sinni á
sameiginlegum fundi þar sem
málin voru rædd. Áður en
boðað var til annars fundar
hætti Kvennalistinn frekari
þátttöku í viðræðunum og mun
afstaða Framsóknarflokksins
til málsins hafa ráðið mestu
um ákvörðun kvennanna.
„Þetta rann allt út í sandinn.
Þeir sáu uni það Framsóknar-
menn. Við rituðum bréf til
flokkana þriggja sem nefndir
hafa vcriðog þegar afsvar barst
frá Framsóknarflokknum
ákváðum við að hitta fulltrúa
hinna flokkanna tveggja og
það gerðum við á föstudag.
Eftir að hafa rætt máiin aftur
innan okkar hóps kom í 1 jós að
þar var ekki áhugi fyrir þriggja
flokka samstarfi og því var
niðurstaðan sú að við til-
kynntum flokkunum tveintur
að frekari viðræðum væri lokið
frá okkar hendi,” sagði Ágústa
Gísladóttir, Kvennalistakona í
samtali við blaðið.
Agústa sent skipaði efsta
sætið á iista Kvennalistans
fyrir síðuslu kosningar sagðist
ekki geta sagt til á þessari
stundu hvenær listi Kvenna-
listans yrði gerður opinber en
hún sagðist ekki eiga von á að
vera sjálf á listanunt.
„Það er komin upp sú staða
hjá mér að ég er að fara af
landinu íhaustoghefþvt lítinn
tíma til að sinna þessutn
málum. Ég hef verið beðin um
að fara til Namíbíu t Afríku en
þar á ég að vera með starfs-
fræðslu í frystihúsamálum í
haust. Ég mun þurfa að nota
sumarið til að undirbúa
kennsluefni og síðan fer ég út
í september og því gefur það
auga leið að tíminn er lítill til
að sinna bæjarmálum,” sagði
Ágústa.
-s.
Súðavík:
Vélsleða-
maður
ávítaður
íyrir ofsa-
akstur
Á ÁTJÁNDA tímanum
síðastliðinn föstudag bárust
lögreglunni á Isafirði kvart-
anir frá íbúum í Súðavík
vegna glæfralegs aksturslags
vélsleðamanns um allan bæ-
inn. Lögreglan fór á vettvang
og veitti manninum duglegt
tiltal.
Að sögn Súðvíkinga ók mað-
urinn vélsleða sínum marg-
sinnis á ofsahraða um götur
bæjarins og náði lögreglan
honum fljótlega eftir að hún
kom í bæinn. Eftir ávítur lög-
reglunnar um athæfi sitt, fór
maðurinn frjáls ferða sinna á
ÓHÁÐ
FRÉTTABLAÐ
r
A
VESTFJÖRÐUM
ísaljörður:
Ók á deilu-
mann sinn
KL. 02:34 aðfararnótt
laugardags kom maður inn
á lögreglustöðina á ísafirði
og tilkynnti að hann hafi
látið sig hafa það að aka á
mann í bræði sinni.
Skönnnu síðar kom sá sein
varð fvrir bílnum einnig inn
á lögreglustöðina og kærði
ökuþórinn.
Viðskýrslutökurkom íljós
aðmennimirtveirhöfðudeilt
úti á götu stuttu áður en
áreksturinn varð. Eigandi
bílsins gafst upp á orða-
skakinu og hugðist yfirgefa
andstæðing sinn ásamt félaga
sínum. Þetta vildi hinn að-
ilinn ekki samþykkja og fór
þrjóska hans svo mikið í
taugarnar á bíieigandanunt.
að hann stökk upp í bflinn og
keyrði deilumann sinn niður.
Hinn síðamefndi slapp án
teljandi meiðsla og kærði
ökumanninn sem fúslega
játaði verknaðinn.
Málið er að fullu rannsakað
af hálfu lögreglunnar á Isa-
firði og verður sent Ríkis-
saksóknara til umsagnar.
-hþ.
ísafjörður:
Sprautað
inn um
bréfalúgu
SPRAUTAÐ var inn um
bréfaltigu í húsi einu á ísa-
firði aðfaranótt síðastliðins
sunnudags, en tilkynning
þessefnis barst lögreglunni
kl. hálf tíu að morgni sama
dags.
Ekki er vitað hverjir voru
að verki, en skemmdarvarg-
amir sprautuðu úr ókunnu
duft-handslökkvitæki inn í
forstofu íbúðarinnar. Uppi-
staðaefnisinserkolsýra, sent
er afar erfitt að þrífa og ekkcrt
í líkingu við hveiti þó að
margur gæti haldið það sam-
kvæmt útliti efnisins.
RITSTJORN 4560 • FAX « 4564 • AUGLYSINGAR OG ASKRIFT ** 457C