Bæjarins besta - 17.11.2016, Blaðsíða 4
4 FIMMTudagur 17. NÓVEMBER 2016
Útgefandi: Athafnagleði ehf., kt. 690715-0740
Afgreiðsla og ritstjórn: Mánagötu 2, Ísafirði, sími 456 4560
Ritstjóri BB og bb.is: Bryndís Sigurðardóttir, 896 9838, bb@bb.is
Ábyrgðarmaður: Bryndís Sigurðardóttir.
Blaðamaður: Smári Karlsson, 866-7604, smari@bb.is
Auglýsingar: Sími 456 4560, auglysingar@bb.is
Prentvinnsla: Litróf ehf.
Upplag: 2.200 eintök
Dreifing: Íslandspóstur. Dreift án endurgjalds inn á öll
heimili á norðanverðum Vestfjörðum
Stafræn útgáfa: www.bb.is / facebook.com/pages/bbis
Önnur útgáfa: Á ferð um Vestfirði
ISSN 1670-021X
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið bb@bb.is.
Auglýsingar þurfa að berast fyrir kl. 17 á mánudögum
fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum.
Ritstjórnargrein
Jóskar heiðar
Þær eru ófáar skýrslurnar um vanda Vestfjarða, fólksfækkun og
almenn eymd og volæði og vér sem vestur hafa slæðst eða fæðst
upplifum bæði skömm og leiðindi yfir að vera baggi á samfélaginu,
vera hluti af þessu stóra byggðavandamáli. Hinn almenni Vest
firðingur og verkamaður ber ábyrgð á að þær lukkulegu sálir sem
eignuðust kvóta hér fyrir áratugum skuli hafa selt góssið norður
eða niður og skilið hér allt eftir í kalda koli, rétt eins og óbreyttur
almúginn hafi ráðið því.
Eftir stendur tannlaus valdaskoltur íbúa hér á hjaranum, á miðun
um sveima nú afkastamikil skip og verðmætin um borð koma okkur
lítið við. Auðlindin var af okkur tekin.
Grunnþjónusta er skorin svo við nögl að vegir milli bæja á
sunnanverðum kjálkanum líkjast meira hestatroðningum en nýtísku
vegum og ekki er lengur forsvaranlegt að koma nýjum Vestfirðing
um í heiminn nema skondrast suður á troðningunum. Þar er ungum
fjölskyldum boðið upp á að liggja uppi á vinum og vandamönnum,
jafnvel svo vikum skiptir, með hinkrað er eftir ungviðinu.
Flugsamgöngur eru nú með þeim hætti að það er kominn tími á
allsherjar mótmæli, hér er flugvallarónefna inni í firði sem er svo
hættulegur að honum er lýst í kennslubókum flugmanna í veröldinni
víðri. Ekki er fyrir nokkurn mun hægt að treysta á flugsamgöngur ef
til dæmis á að mæta til læknis í höfuðborginni, þeir sem ekki hafa
önnur ráð til að koma sér suður þurfa að koma sér á áfangastað með
nokkurra daga fyrirvara til að hafa borð fyrir báru.
En nýjustu fréttir af þjónustufyrirtækinu Flugfélagi Íslands eru
svo móðgandi og svo mikil vanvirðing við lífskjör okkar fyrir vestan
að engu tali tekur. Hagsmunir okkar voru gróflega fyrir borð bornir
þegar verslaðar voru vélar sem ekki geta lent á Ísafirði og notast átti
við tvær skitnar vélar til að koma okkur til og frá. Ítrekað hefur ekki
verið tiltæk vél til að sinna flugi og það er algjörlega óásættanlegt,
svo ekki sé tekið dýpra í árinni. Nú þarf að hefja vinnu við að finna
nýtt flugvallarstæði sem fækkað getur messufalli vegna veðurs en
þangað til þarf að finna flugfélag sem treystir sér til að meðhöndla
Vestfirðinga á pari við aðra Íslendinga.
Umfram allt eiga Vestfirðingar rétt á sömu þjónustu og aðrir
landsmenn. Þá, og aðeins þá, er hægt að gera ráð fyrir sjálfbærni
samfélagsins.
Einu sinni stóð til að bjarga íslenskri þjóð frá kulda og hungri og
flytja á frjósamar jóskar heiðar og ef það er opinber stefna að flytja
Vestfirðinga hreppaflutninga suður í sollinn er rétt að samfélagið
allt segi það bara upphátt og geri klárt í 101 Reykjavík nú eða í
Breiðholtinu.
BS
Forsvarsmenn Stöndum
saman Vestfirðir kalla eftir
keppnisskapi Vestfirðinga til að
safna fyrir nýju sjúkrarúmi fyrir
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
á Patreksfirði og benda á að ef
hver sá sem líkað hefur við hóp
inn á Fésbókinni leggi til 250
krónur þá sé komin sú fjárhæð
sem þarf til kaupa sjúkrarúm
og dýnu. Rúmin sem fyrir eru
við stofnunina eru komin til ára
sinna og á meðfylgjandi mynd
má sjá Lilju Sigurðardóttur
Safna fyrir nýju sjúkrarúmi
hjúkrunarfræðing á HVEST á
Patreksfirði við eitt þeirra rúma
sem er í notkun við stofnunina
en talið er að það hafi verið
tekið í notkun í kringum 1980
og stenst ekki samanburð við
það sem best gerist í dag, en
sjúklingar geta ekki stjórnað
því sjálfir líkt og öllum betri
sjúkrarúmum og þarf starfsfólk
að breyta stillingum þess með
handafli. Vilja forsvarskonur
söfnunarinnar í það minnsta geta
fært stofnuninni eitt nýtt rúm
og segja svo oft hafa sýnt sig
í verki að þegar við leggjumst
öll á eitt og stöndum saman þá
getum við allt.
Er þetta önnur söfnun félags
ins, en í vor færði það HVEST
á Ísafirði barkaþræðingatæki
og sprautudælur. Fyrir þá sem
vilja leggja söfnuninni lið eru
reikningsupplýsingar félagsins
eftirfarandi: Kt. 4102160190
Banki 15626216
annska@bb.is
Lilja Sigurðardóttir við eitt af gömlu rúmunum.