Bæjarins besta - 17.11.2016, Blaðsíða 6
6 FIMMTudagur 17. NÓVEMBER 2016
Í nægu er að snúast þessa
dagana hjá Erni Elíasi Guð
mundssyni, manninum að baki
Mugison, en í lok síðustu viku
kom út ný plata frá tónlistar
manninum, Enjoy! Óhætt er að
segja að hennar hafi verið beðið
með eftirvæntingu þar sem hann
hefur ekki gefið út plötu síðan
að metsöluplatan Haglél kom
út fyrir fimm árum síðan. Líkt
og lög gera ráð fyrir er mikil
vinnutörn hafin hjá Mugison og
er hann búinn að vera mikið í
höfuðborginni upp á síðkastið, en
er nýkomin heim í Súðavíkina til
að jarðtengja sig að eigin sögn.
Það má segja að fyrsti í kynn
ingaratrennu hafi átt sér stað
er tónlistarhátíðin Icelandic
Airwaves fór fram í Reykjavík á
dögunum og spilaði Mugison þar
meðal annars á vel heppnuðum
tónleikum í Fríkirkjunni þar sem
nýja platan var kynnt ásamt því
sem gamlir slagarar fengu að
óma. Örn segist hæstánægður
með hvernig til tókst: „Þetta er
svolítið eins og að vera nýbúinn
að fara í klippingu, vera í nýjum
fötum og búinn að meika sig án
þess að vita alveg hvernig það
fer svo, en mér fannst viðbrögðin
alveg stórkostleg. Við ákváðum
að taka nýtt í bland við gamalt.
Ég hugsaði hvað virkaði fyrir
mig sem tónleikagest og ég get
alls ekki hlustað á of mikið nýtt í
einu. Þrjú, fjögur ný lög og ég er
dottinn út.“ Hann segir þetta hafa
verið fínt tækifæri fyrir hljóm
sveitina að finna saman taktinn
í nýja efninu og fyrir vikið hafi
verið enn skemmtilegra að spila
gömlu lögin.
Óhræddur við breytta tíma
Ásamt því að vera að spila
hér og þar í borginni á meðan
á Airwaves stóð var nóg að
gera hjá Mugison í allra handa
viðtölum: „Þetta er náttúrulega
bransahátíð og maður er mikið
í því að hitta samstarfsaðila og
vinna í tengslanetinu.“ Hann
segir bransann vera að breytast
mikið og flestir í raun að þreifa
fyrir sér í nýju umhverfi: Disk
urinn er í útrýmingarhættu líkt
og framköllunarþjónusta fyrir
nokkrum árum, en á sama tíma
hefur neysla á tónlist sennilega
aldrei verið meiri og aldrei ver
ið hlustað jafn mikið á tónlist.
Vandinn er hinsvegar að það er
ekki alveg vitað hvernig maður
á að sækja peningana, en það
hlýtur að finnast leið og ég er
ekkert hræddur.“
Örn segir líka á sama tíma mik
ið búið að breytast í því hvernig
tónlist verður til: „Þegar ég tók
upp fyrstu og aðra plötuna mína
á eitt hljóðkort og einn míkrófón,
þá var það í raun alveg nýtt.
Núna er Rúna (Esradóttir, kona
hans) að kenna námskeið á Sónar
hátíðinni fyrir krakka þar sem
þau eru að læra að gera slíkt og
tæknin ekkert minni. Það þarf því
ekkert einhverja risaframleiðslu
til að gera frábært stöff sem mér
finnst alveg geggjað.“
Enjoy! – Kominn í föstu formi
Þrátt fyrir tal um útrým
ingarhættu geisladisksins er
Enjoy! þó mættur til leiks í föstu
formi og fer dreifingarvinna fram
um þessar munir og diskurinn
fáanlegur í æ fleiri verslunum
með degi hverjum, jafnframt
verður öllum þeim sem kaupa
miða á útgáfutónleikana afhentur
diskur er þeir mæta á staðina sem
þeir verða haldnir.
Enjoy! fer vel í þá sem á hlýða
og í plötudómi eftir Kolbrúnu
Björt Sigfúsdóttur á menningar
vefnum Starafugli segir meðal
annars: „Mugison hefur sett
saman plötu sem er fyrir fólk
með athyglisbrest og ofvirkni,
og ég meina það á góðan máta.
Hvert einasta lag gæti verið
eftir mismunandi hljómsveitir
með sama söngvarann. Enjoy
er þannig eins og „best of“ eða
safndiskur, býður alltaf upp á
eitthvað nýtt, níu sinnum í röð.“
Tónlistarspekúlantinn Dr. Gunni
fer einnig um hann fögrum orð
um á heimasíðu sinni og segir
hann meðal annars að lögin vinni
á við hverja hlustun og skríði inn í
taugaendana eins og feitur köttur
sem leggst í bæli með rjómaskál.
Útgáfutónleikar í Edinborg
Fyrstu opinberu útgáfutónleik
arnir verða í Edinborgarhúsinu á
Ísafirði þann 25.nóvember næst
komandi og spilar Mugison þar
ásamt hljómsveit lögin af nýju
plötunni í bland við eldri slagara.
Hljómsveitin leggur síðan upp í
ferð um landið og spilar á Akra
nesi, í Reykjanesbæ, á Akureyri
og Egilsstöðum, ásamt því að
spila á tvennum tónleikum í
Eldborgarsal Hörpu sem þegar
er uppselt á.
Óhræddur Mugison
kominn á fullt skrið
Örn Elías og hundurinn Skuggi.