Bæjarins besta - 21.12.1994, Page 3
Stórt snjóflóó féll á
bæinn Saura við
Súöavfk
Ellilífeyrispegi
missti allt
sitl í snjó-
flóðinu
- stofnaður hefur verið söfnunarreikn-
ingur til handa honum
..jfc ^
STÓRT snjóflóð féll úr Traðargili fyrir ofan Súðavík og á
bæinn Saura kl. 1 i á sunnudagsmorgun og eyðilagði íbúðarhús
auk tveggja fjárhúsa. Einn maður, Karl Georg Guðmundsson, 76
ára ellilífeyrisþegi, bjó að Saurum og var hann innandyra þegar
snjóflóðið féll á íbúðarhúsið. Honum var bjargað mjög köldum
stuttu síðar og mátti litlu muna að verr færi. Karl Georg mun hafa
hlotið mar um allan líkamann auk skurða en virtist við fyrstu
athugun, óbrotinn. Hann var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á
Isafirði á mánudag, þar senr hann gekkst undir læknisrannsókn.
Fimm kindur sem voru í fjárhúsunum drápust, sem og hrútur en
sjö kindur fundust á lífi.
„Karl Géorg var að tala í
símann við frænda sinn er snjó-
flóðið féll á húsið. Allt í einu
slitnaði sambandið og var þá
þegar farið að athuga h vað hefði
gerst. Ég fékk hringingu frá
björgunarsveitinni umkl. 11.30
þar sem mér var sagt að talið
væri að snjóflóð hefði fallið á
bæinn Saura. Hafði ég þegar
samband við lögreglustjóra og
Almannavarnir ríkisins og
boðaði til fundar í almanna-
varnanefnd,” sagði Sigríður
Hrönn Elíasdóttir, sveitarstjóri
í Súðavík í samtali við blaðið.
„Karl Georg sagði mér sjálfur
að hann hefði verið búinn að
sjá að allt væri búið, hann var
búinn að ákveða að sofna, en
Eins og sjá má er íbúðarhúsiö að Saurum mikið skemmt eftir snjófióðið.
Traðargii, þar sem fióðið féii úr er tii hægri á myndinni.
þegar hann heyrir í björgunar-
mönnunum ákvað hann að
kalla. Þetta var bara spurning
um mínútur,” sagði Sigríður
Hrönn.
Ibúðarhúsið sem er ein hæð
Stutt er frá þeim stað þar sem húsið stöóvaðist og niður að næstu húsum í
þorpinu.
og ris færðist um 15 metra frá
grunninum. Þegar snjóflóðið
féll á húsið var Karl Georg að
tala í síma eins og áður sagði,
og var hann því staddur neðan
til í húsinu. Talið er að það hafi
orðið honum til lífs. „Þegar
hann fannst var hann í snjó upp
undir klof og hafði fallið fram
fyrir sig og lá því á grúfu. Hann
var berhandleggjaður og því
orðinn mjög kaldur. Björgunar-
mennirnir tóku í axlirnar á
honum og drógu hann niður að
næsta húsi þar sem hann fékk
aðhlynningu. Hann var orðinn
það kaldur og stífur að klippa
þurfti fötin utan af honum,”
sagði Sigríður Hrönn.
Ibúðarhúsið að Saurum sem
var elsta hús staðarins var
ótryggt sem og allt innbú og er
því tjón Karls Georgs mikið.
Stofnaður hefur verið söfnunar-
reikningur til handa Karli Georg
og er hann nr. 1000 við Spari-
sjóð Súðavíkur. Sigríður Hrönn
sagðist aldrei hafa heyrt um
svona stórt snjóflóð á þessum
slóðum en flóðið skipti sér í
Kari Georg Guómunds-
son.
tvennt eftir hryggnum fyrir
neðanTraðargil og fórhluti þess
inn á svæði sem ekki hefur verið
talið til hættusvæða og þaðan
niður á Aðalgötuna. Ibúar úr
fimm húsum voru fluttir úr
híbýlum sínum og gistu fjórar
fjölskyldur á heimili sveitar-
stjórans urn nóttina enda um
náið skyldfólk að ræða. Hættu-
ástand var enn viðvarandi í
Súðavík um hádegi á mánudag
en þá átti að meta aðstæður að
nýju.
ísafjaröarflugvöllur
Vindhraðinn komst í 82 hnúta
í VEÐURHAMNUM sem
gekk yfir Vestfirði um helgina
komst vindhraðinn í 82 hnúta á
ísafjarðarflugvelli sem svarar
til 14-15 vindstiga. Sömu sögu
er að segja frá Bolungarvík en
þar var mun jafnari vindur eða
um 40-45 hnútar.
„Það var mjög hvasst á milli
kl. 10-12 á sunnudagsmorgun.
Þá sló mælirinn a.m.k. tíu
sinnum í 74 hnúta og í eitt skipti
fór hann í 82 hnúta. Fárviðri er
64 hnútar eða meira þannig að
þetta hafa verið svona 14-15
vindstig. Það hefur mælst hér
90 hnúta vindur, þannig að þetta
er ekki það versta sem komið
hefur,” sagði Slurla Páll Sturlu-
son, flugumsjónarmaður á Isa-
fjarðarflugvelli sem var á vakt í
flugturninum um helgina.
Næsta tölublað BB kemur út
fimmtudaginn 29. desember.
Skilafrestur efnis ogaugiýsinga
er hádegi þriðjudagsins 27. des.
Þakpiötur
iosnuöu f
Vfkinni
Líkt og á ísafirói, var
mjög hvasst í Bol-
ungarvík um helgina
og þá sérstaklega
aðfararnótt sunnu-
dags. Þakplötur fuku
af geymsluhúsnæði
við Hafnargötu og lenti
ein þeirra á rúðu í
nærliggjandi húsi. Þá
hafði lögreglan og
björgunarsveitin Ernir í
nógu að snúast við að
binda skip í höfninni
sem losnuðu jafnóóan
og þau voru fest. Þá
var björgunarsveitin í
fólksflutningum með
gesti Víkurbæjar fram
eftir nóttu en lögreglan
gat ekki sinnt þeim
flutningum sökum
þess aó bifreið hennar
er ekki búinn til akst-
urs í svo miklum snjó
og er í Bolungarvík í
dag.
Mokaö
aiian sói-
arhringinn
Starfsmenn áhalda-
húss ísafjarðarkaup-
staðar hafa haft í nógu
að snúast frá því
síðdegis á sunnudag
við að opna götur
bæjarins en nánast
allar göturnar lokuðust
í óðveðrinu um helg-
ina. Þorbjörn Jó-
hannesson, verkstjóri
hjá áhaldahúsinu
sagði í samtali við
blaðið á mánudag að
mokstur hefói hafist kl.
22 á sunnudagskvöld
og hefði verið unnið
alla nóttina, sem og
allan mánudaginn.
Ráðgert er að sögn
Þorbjörns að hreinsa
allar göturnar vel fyrir
jólahátíðina.
Vfötæk
ieit aö
ísfiröingi
VÍÐTÆK leit hefur
staðið yfir á Siglufirði
frá því á sunnudag af
61 árs gömlum ísfirð-
ingi, Theodóri Sigurjóni
Norðkvist, matsveini á
rækjutogaranum
Hafrafelli frá ísafirði.
Að sögn lögreglunnar á
Sigiufirði er skilyrði til
leitar erfið vegna
slæms skyggnis og
kviku í höfninni en á
mánudag beindist öll
athygli leitarmanna að
því svæði. Fjórir kafar-
ar voru við leit við erfió
skilyrði í höfninni á
Siglufirði á mánudag
en þá hafði ailur
grunur beinst frá
íbúðarhúsum á stað-
num. Lögreglunni barst
tilkynning um að Theo-
dórs væri saknað um
kl. 15.20 á sunnudag
en síðast sást til hans
nóttina áður.
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1994
3