Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.12.1994, Blaðsíða 5

Bæjarins besta - 21.12.1994, Blaðsíða 5
ísafjaröarhöfn Hurð skall nærri hælum LITLU munaði að ekki yrði stórslys við ísafjarðarhöfn í síðustu viku þegar verið var að hífa40 feta gám með 20 tonnum af fiskimjöli um borð í flutn- ingaskipið Mælifell. Bóma skipsins féll niður og skall gámurinn stuttu frá starfs- mönnum hafnarinnar á bryggj- una eftir að hafa hafnað á stoðum við lestarlúgu og á öðrum gámi. Gámurinn stöð- vaðist á hliðinni og urðu tölu- verðar skemmdir á honum. Starfsmenn voru að undirbúa næsta gám til hífingar þegar óhappið varð. Skipið átti að lesta 15 gáma af mjöli og var það þriðji gámurinn sem fór til baka á bryggjuna. Eins og sjá má skemmd- ist gámurinn mikið við faiiið. Gámurinn á hafnarkant- inum á ísafirði. Vestf/rskur Ske/fiskur á Flateyri býður Lífeyrissjóöi Vestfirðinga Hlutabréf fyrir væntan- legum skuldum fyrir- tækisins við sjóðinn - „höfum ekki heimild til að kaupa hlutabréf í fyrirtækinu þar sem þaö er ekki skráð á Verðbréfaþingi íslands", segir Guðrún Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Vestfirðinga VESTFIRSKUR Skelfiskur hf., á Flateyri hefur sent Lífeyris- sjóði Vestfirðinga bréf, þar sem sjóðnum eru boðin hlutabréf í fyrirtækinu til kaups fyrir andvirði væntanlegrar iðgjaldaskuldar fyrirtækisins við sjóðinn, sem í dag eru um tvær milljónir króna en verða væntalega um 2,5 milljónir um áramót eins og segir í bréfi fyrirtækisins til Lífeyrissjóðsins. Til vara óskar fyrirtækið eftir því að sjóðurinn sjái sér kleift að breyta væntanlegri skuld um áramót til fimm ára og styðji þannig við bakið á þeirri nýsköpun sem Vestfirskur Skelfiskur er að hefja á Vestfjörðum. I bréfi Vestfirsks Skelfisks fylgirgreinargerð um fyrirtækið og framtíðaráætlanir þess þar sem segir m.a. að í júlí síðast- liðnum hafi verið gerður samn- ingur, með milligöngu Cold- water Seafood Inc. í Banda- ríkjunum, um sölu á 2.721 tonni af hökkuðum kúfiski næstu þrjú árin við stórt fyrirtæki í Banda- ríkjunum auk þess sem fyrir liggi drög að samningi um sölu á allt að 35 milljóna stykkja af tómum skeljum til trausts kaup- anda í Bandaríkjunum. ,,Það er rétt að við höfum fengið bréf þetta en við höfum ekki heimild til að kaupa hlut í fyrirtækinu þar sem það er ekki skráð á Verðbréfaþingi en ég reikna nreð að seinni ósk fyrir- tækisins verði samþykkt þó svo að það mál hafi ekki verið af- reitt endanlega,” sagði Guðrún Guðmundsdóttir, framkvæm- dastjóri Lífeyrissjóðs Vest- firðinga í samtali við blaðið. Vestfirskur Skelfiskur var stofnaður 18. nóvember á sl. ári af Hjálmi hf., á Flateyri og Mið- nesi hf., í Sandgerði. Fyrirtækið var stofnað í kjölfar tveggja ára þróunarstarfs í veiðum, vinnslu og markaðsathugunum á kúskel hjá Hjálmi og var stofnhlutafé 47 milljónir króna, sem skiptist þannig að Hjálmur átti 45 milljónir og Miðnes 2 milljónir. Hlutafévaraukiðí 1 10 mi lljónir á aðalfundi fyrirtækisins sem haldinn var 9. september sl., og hækkaði Miðnes hlutafé sitt þá um 8 milljónir króna. Haf hf., Þróunarfélag Islands hf., og Eignarhaldsfélagið Alþýðu- bankans hf., kornu einnig inn í fyrirtækið á aðalfundinum með 8milljónakrónahlut, hveraðili auk níu annarra aðila. Þann 24. nóvember sl. höfðu aðeins þrír þeirra sem höfðu lofað hlutafé ekki greitt það inn þ.e. Kristján Erlingsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, sem skráður er fyrir einni millj. króna, en hans greiðsla mun koma í formi skuldabréfs, Kam- bur hf., sem er skráður fyrir tveimur millj. en greiðsla frá fyrirtækinu verður að hluta til í formi skuldajöfnunar vegna þjónustu og Jöklar hf., sem er skráð fyrir fjórum millj. króna en greiðsla frá þeim verður í fornri skuldajöfnunar vegna flutningsgjalda. Oseld hlutabréf eru að andvirði 10 millj. króna. Jóiaannrfki hjá starfsf Álagið svipað og undanfarið - segir Berta Guðmundsdóttir, fulltrúi stöðvarstjóra STARFS FÓLK Póst og síma víðsvegar um land hefur haft í nógu að snúast undanfarna daga og er pósthúsið á ísafirði þar engin undantekning. Að sögn Bertu Guðmundsdóttur, fulltrúa stöðvarstjóra Pósts og síina á Isafirði hefur álagið verið svipað í ár og undanfarin ár en mest var það um síðustu helgi en þá var aukaopnun á sunnu- dag. ,,Þetta hefur verið ósköp svipað og undanfarin ár og há- markinu var náð um síðustu helgi. Við höfum opið ámorgun og á föstudag til kl. 16.30, svo framarlega sem að okkur berst pósturinn á réttum tíma. Verði um seinkun að ræða verður haft Mikið annríki hefur verið hjá starfsfóiki Pósts og síma á ísafirði undanfarið. opið lengur svo allir geti fengið sinn póst fyrir jólin. Við lokum ekki á nefið á fólki,” sagði Berta. Póstur og sími getur ekki ábyrgst að póstur sem kemur í dagogámorgun komist til skila fyrir jól en til þess að af því geti orðið varð pósturinn að berast til stofnunarinnar síðastliðinn sunnudag. Magnús Reynir vill sameina í viðtalí við Verið, sjávarútvegsblaó Morgunblaósins í síðustu viku, segist Magnús Reynir Guð- mundsson, fram- kvæmdastjóri Togara- útgeróar ísafjarðar viija sjá róttækar breytingar á högum Landhelgis- gæslunnar og leggur hann til að Gæslan og Hafrannsóknastofnun verói sameinaðar og skipakostur þeirra og starfsmenn nýttir betur en nú gerist. Honum finnst einnig eðlilegt að taka Fiskistofu með, því erfitt getur verið að finna réttar boðleiðir á milli þess- ara aðila. Sjúkrafiug viö erfiöar aðstæöur Flugmenn Flug- félagsins Ernis á ísafirði fóru í sjúkraflug til Bíldudals og Reykja- víkur um klukkan 23.30 á laugardags- kvöld. Ágætur vindur var á ísafirði þegar farið var í flugið en skyggni nánast ekkert og tafðist flugvélin í um fimmtán mínútur á brautarenda vegna þessa. „Þá kom smá glenna yfir bænum og vélin komst í loftið. Flugið vestur, sem og suður gekk eins og best verður á kosið enda flugveóur hið ágætasta á leiðinni,” sagði Sturla Páll Sturluson, sem var á vakt í flugturninum á ísafirði. Á Bíldudal var veik kona sótt og hún flutt á sjúkrahús í Reykjavík. Vélin kom aftur til ísafjarðar á mánudag. Hættu- ástand í Hnífsdai Snjóflóðahættuást- andi var lýst yfir í tveimur götum í Hnífs- dal á sunnudag, við Fitjateig og Smárateig auk þriggja húsa við Heimabæ. Samtals voru fjórtán hús rýmd í Hnífsdal og var íbú- unum komið fyrir hjá ættingjum og vinum en nokkrir þurftu að gista i félagsheimilinu í Hnífsdal og í heimavist Framhaldsskóla Vestfjaróa. Þá var lýst yfir hættuástandi viö Seljaland á ísafirði og fluttu íbúar þess út í rúman sólarhring. Jafnframt var Brúar- nesti lokað. Hættuást- andi var aflýst á fundi almannavarnanefndar snemma á mánudags- morgun. MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1994 5

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.