Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.12.1994, Qupperneq 8

Bæjarins besta - 21.12.1994, Qupperneq 8
HÁTÍÐARMATSEÐILLINN að þessu sinni er líkt og á síðasta ári settur saman af matarklúbbi einum á Isafirði. Klúbburinn sem ber nafnið „Pakksaddir - Glaðværir” samanstendur af fernum hjónum, þeim Þórdísi Jónsdóttur og s Olafi Helga Kjartanssyni, Sigrúnu Sig- valdadóttur og Kristjáni Jóakimssyni, / Margréti Osk Jónsdóttur og Sævari / •. / Oskarssyni og Onnu Kristínu Asgeirs- dóttur og Gísla Jóni Hjaltasyni. Eins og venja er með matarklúbba hafa ýmsar tilraunir verið í gangi við matar- gerðina og hefur útkoman í flestum tilfellum verið eftir væntingum. ,,Pakksaddir - Glaðværir” tóku erindi blaðsins um hátíðarmatseðil vel og er þeim hér með þökkuð aðstoðin. Njótið vel! Þorláksmessa: Kæst skata með kartöflum, mörfloti, rúgbrauði og hveiti- kökum. Skolað niður með „snafs”. Hveitikökur: 500 g hveiti 160 g smjörlíki 80 g sykur 1 egg 1 tsk. lyftiduft. 2.5 dl. mjólk Allt hnoðað saman og flatt út í frekar þunnar kökur í pönnu- kökustærð og steiktar á pönnu. Á eftir er drukkið kaffi með konfektmolum. Konfekt: Döðlur lagðar í púrtvín. Daginn eftir eru þær settar í matvinnsluvél og hnoðaðar saman við konfektmarsipan. Búnar eru til litlar kúlur sent eru hjúpaðar í suðusúkkulaði. Skreyttar með sneið af rauðum kirsuberjum. Aðfangadagur: FORRÉTTUR: Skelfisksalat á grapealdin f. 6 3 grapealdin, skorin í tvennt og holuð að innan. Fylling: 200 g majones 0,5 dl. rjómi safi úr hálfri sítrónu 1 msk. kókosmjöl 1/2 tsk. karrý Blandað saman og út í þetta bætt: 1 söxuðu epli 600 g rækjur 400 g hörpufisk (soðnum) Skreytt með sítrónubát, tómat- bát og smjördeigshálfmána. AÐALRÉTTUR: Jóla-kalkún 100 g sntjör 1 flaska hvítvín (t.d. Bláa nunnan). Salti nuddað vel á kalkúninn og innyflin soðin. Um það bil 4 kílóa kalkún bakaður í ofni í u.þ.b. tvær og hálfa til þrjár klukkustundir við 160 til 180 gráðu hita. Fylling: 500 g svínahakk 200 g sveppir Salt, pipar og mirjiam 2egg 1,5 dl. rjómi Öllu blandað vel saman, sett í kalkúninn, fætur bundnir upp, fuglinn nuddaður vel upp úr smjöri og hann síðan settur á ofnskúffuna og hvítvíninu og soðinu af innyflununum hellt yfir og allan tímann meðan á steikingu stendur. Sósan er uppbökuðog sýrðurrjómi settur í að endingu. Borið fram með Waldorfsalati, brúnuðum kart- öflurn, sýrðum gúrkum og títuberjasultu. Ef kalkúninn ætlar að verða of dökkur er gott að væta klút úr olíu og breiða yfir fuglinn. Waldorfsalat 3-4 stilkar stöngulsellerí eða 1 lítil sellerírót 2 epli 1/2 sítróna 50 g ntajónes 1 dl. rjómi 36% 25-50 g valhnetukjarnar Nokkur blá eða græn vínber Undirbúningur 10-15 mínút- ur. Skolið selleríið. Sé hvíti hlutinn notaður þarf að brjóta stilkana og taka seigu trefjarnar. Skerið stilkana sniátt. Flysjið og rífið sellerírótina og vætið hana í sítrónusafa. Flysjið eplin, skerið þau í femt og svo í þunnar sneiðar. Vætiðþærí sítrónusafa. Geymið nokkra valhnetukjarna, saxið hina. Blandið léttþeyttum rjóma og söxuðunt hnetum í majónessósuna og hellið yfir selleríið og eplin. Blandið salatið með tveimur göfflum svo sósan samlagist sítrónu- safanum. Látið salatið í skál og skreytið með heilum kjörnum og hálfum vínberjum. Waldorf- salat er ákjósanlegt með villi- bráð en einnig með köldu borði með niðursneiddu kjöti. EFTIRRÉTTUR: Ris a la mand með kaldri karamellusósu Hvít hrísgrjón soðin í léttsöltu vatni með einni vanillustöng. 0,5 ltr. rjónti þeyttur. Kældur. Hrísgrjónum blandað varlega saman við rjómann. Vanillu- sykur bætt út í eftir srnekk. U.þ.b. 1/2 bolli af muldum möndluflögum sett út í. 1 einni skálinni er að sjálfsögðu heil mandla og einhver heppinn fær möndlugjöf. Karamellusósa: 250 g. sykur 1 1/4 dl. heitt vatn 1/4 ltr. þeyttur rjómi Pannan hituð og sykurinn látinn áog brúnaður. Hræralítið í á meðan - hristið heldur pönnuna. Þegar þétt hvít froða er komin á sykurinn er 1 1/4 dl. af heitu vatni hellt á pönnuna og hrært þar til jafnast. Gott er að taka pönnuna af hellunni á meðan vatnið er sett í svo það gufi síður upp. Hellt í leirskál og kælt alveg. Þegar hún er alveg köld er þeytta rjómanum bætt saman við. Jóladagur: AÐALRÉTTUR: Hangikjöt með uppstúf Hangikjöt með kartöflum, uppstúfi, grænum baununt, heimalöguðu rauðkáli, laufa- brauði eða hveitikökum. Sjá uppskriftir að rauðkáli og hveitikökum annars staðar. Omissandi drykkurnteð hangi- kjötinu er blanda af maltöli og appelsíni. Rauðkál: I kg rauðkál 1 bolli vatn I dl edik sykur eftir smekk Soðið þar til rauðkálið er mjúkt í gegn EFTIRRÉTTUR: Heimalagaður ís með heitri Mars-súkkulaðisósu ís: 4 eggjarauður 1 egg 120 g sykur Þeytt ljóst og létt. Hálfunt lítra af þeyttum rjónta bætt varlega saman við ásaint 1-2 tsk. af vanilludropum. Fryst. Mars-súkkulaðisósa: Tvö Mars eru hituð og brædd saman í potti við einn pela af rjóma. 2. dagur jóla: Jólahlaðborð Á annan í jólum höfum við jólahlaðborð þar sem marga rétti er hægt að útbúa fyrirfram. A ppelsín uleginn lax með karrí- appelsínusósu f.15 1 beinl. laxaflak, u.þ.b. 800 g safi af 1/2 appelsínu 0,5 dl. salt 0,5 dl. sykur 1/2 tsk. ferskmalaður hvítur pipar safi úr einni appelsínu Leggið laxinn á fat. látið roðið snúa niður. Hellið safa af 1/2 appelsínu yfir laxinn. Blandið saman saltinu, sykr- inurn og piparnum í skál og stráið yfir laxinn. Breiðið plast yfir laxinn og látið hann standa í ísskáp í fimm klst. Skafið salt og sykurblönduna af laxinum og hellið safa af einni appelsínu yfir hann. Skerið laxinn í þunnar sneið- ar og leggið á framreiðslufat. Skreytið laxinn með salat- blöðum og appelsínusneiðum og berið fram með karrí-appel- sínusósu. Karrí-appelsínusósa 150 g sýrður rjótni 3 msk. majones 1 tsk. karrí safi úr einni appelsínu 2 tsk. sojasósa cayenne-pipar á hnífsoddi eða nokkrir dropar Tabasco-sósa Blandið öllu saman í skál og kælið. Brauðflétta með Brieosti H veitideig: 50 g ferskt pressuger (eða 1 bréf þurrger) 1 msk. sykur 2 dl. volgt vatn 1 msk. mjúkt sntjör 1/2 tsk. salt 4 dl. hveiti Myljið gerið í skál og stráið sykrinum yfir. Hitið vatnið í 37 gráður og hellið því yfir gerið. Hrærið vel með sleif þar til gerið er uppleyst. Bætið smjöri, salti og 1 dl. af hveitinu í vökvann og hrærið vel þar til deigið er slétt og án kekkja. Bætið þá því sem eftir er af hveitinu við og hrærið þar til deigið er slétt og sprungulaust. Breiðið klút yfir deigskálina og látið standa á volgum stað þar til það hefur lyft sér um helming. 8 MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1994

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.