Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.12.1994, Qupperneq 21

Bæjarins besta - 21.12.1994, Qupperneq 21
skin og skúrir. Það er ekki alltaf auðvelt að vera gift sjómanni, en hann hefur staðið og fallið með öllu sem ég hef gert í gegnum tíðina. Sjómans-hjóna- böndum fylgir spenna. Eg hlakka alltaf jafn ntikið til þegar hann er á leiðinni í land og ég elska þennan sjómann minn þrátt fyrir allt. Hann er mér miklu meira en eiginmaður því við kynntumst svo ung, að við ólumst í raun upp saman líka. Við höfum átt því láni að fagna að eiga góð börn: Helgu Kristínu sem er hárgreiðslu- meistari í dag, Gunnar Hólm sem er smiður og Sigurð Frið- geir sem er enn í skóla. Ég á þrjá yndislega vini þar sem þau eru. Þegar ég var í unglinga- starfinu voru þau alltaf með mér, og ég er sannfærð um að þau hafi haft gott af því. Barnabörnin eru orðin þrjú og ég finn fyrir sterkum tengslum við þau öll. Mérþykirtil dæmis ægilega vænt um að verakölluð „amma í fjöllunum” af einu þeirra.” Á öðru gelgjuskeiði með stóra drauma Hvernig augum skyldi Sigga Maja h'ta framtíðina? „Ég er ennþá að hugsa um hvort ég hafi breytt rétt í lífinu. Ég er enn að reyna að finna það út hver ég er. Ég hef alltaf unnið úti með akróba- tíkinni, uppeldi barna minna og heimilis- störfunum. Frá 1987 og allt þar til sl. sept- ember vann ég sem aðstoðarstúlka tann- læknis, en í dag er ég í fyrsta skipti orðin heimavinnandi húsmóð- ir. Mérfinnst þettavoða- lega notalegt - en ég hef það ennþá á tilfinning- unni að ég sé að skrópa einhvers staðar. Ég nýt þess ekki ennþá að vera heima. Aldurinn sem ég hef náð núna, er eins og annað gelgju- skeið. Mér finnst þetta ofsalega spennandi tími, og það þarf engin kona að kvíða fyrir honum. Maðtir þarf bara að þora að láta sig blómstra. Ég hef til dæmis tekið upp á því að fara að mála myndir í seinni tíð, sem gefur mér mikið. Ég þjálfa litlu börnin á skíðum og hlakka alltaf til sumranna á Núpi. Mínar bestu stundir núna eru þegar ég labba héðan innan úr firði niður að smá- bátahöfn og fylgist með þegar bátarnir koma að landi. Migdreymiroft stóra drauma í þessum göngu- ferðum. Mig langar til að sjá dalina okkar tvo byggða upp sem skíðasvæði á heimsmæli- kvarða, og skógi vaxna. Ég veit að Martinus Simson hefði verið mér sammála þar. Ég vil líka sjá Edinborgarhúsið sem lifandi menningarmiðstöð fyrir fólk á öllum aldri. Við getum gert svo margt ef við bara tökum hönd- um saman, og hættum að velta okkur uppúr eymd og volæði, og leyfum sérkennum hvers einstaklings að njóta sín.” Þegar ég stíg út í skamm- degissortann að loknu spjallinu við Siggu, uppgötva ég hversu hratt tíminn hefurflogið meðan við töluðum saman. Þar sem ég stend og horfi út yfir Skutuls- fjörðinn fyllist ég einhverri óútskýranlegri þrá til að kalla stórt JA! út milli fjallanna...og það er eins og fjöllin heyri til mín... Ungliðadeild LL á ísafiröi Frumsýnir nýtt unglingaleikrit - um 30 unglingar á öllum aldri koma nálægt uppfærslunni Kertaskreytingar frá kr. 1.200,- Hýacinthuskreytingar frá kr. 1.100,- Leiðisgreinar kr. 790,- Fallegir jólatréstoppar Bitra hf. ■ Sundstræti 34 400 isafiröi • Simi 94-4013 EKKI er langt um liðið frá því Ungliðadeild Litla leik- klúbbsins (U.L.L.), eða Pínu- litli leikklúbburinn eins og krakkarnir kalla hana, var stofnuð. Nú milli jóla og nýárs frumsýna þau glænýtt íslenskt leikrit með söngvum sem kall- ast Bleikir fílar á inniskóm. Leikritið gerist í kommúnu ungs fólks, og áhorfendur fá að kynnast ýmsum skrautlegum persónum og atvikum. Inn í þetta fléttast svo alvarlegri mál eins og eiturlyfjaneysla og af- leiðingar hennar. Mikið er sungið í stykkinu - en lögin og textarnir eru allir eftir leikrita- höfundinn sjálfan, Jónas Friðrik Steinsson. IJann er aðeins tvítugurað aldri og skrifaði leik- ritið upphaflega fyrir hóp ung- linga í heimabæ sínum Fá- skrúðsfirði. Þar náði það því þó aldrei að vera sýnt fyrir áhorfendur, og því er um frum- flutning hjá U.L.L. að ræða. Leikarar eru alls sextán talsins, en að sýningunni stend- ur annar eins fjöldi tæknifólks, sem nánast allt eru fólk innan við tvítugt. Leikstjóri er Vigdís Jakobsdóttir, sem hefur nýlokið fjögurra ára háskólanámi úti í Kantaraborg á Englandi í leik- listarfræðum og leikstjórn. Bleikir fílar verða sýndir í sal Grunnskólans á Isafirði, og frumsýnt er miðvikudaginn milli jóla og nýárs, 28. des- ember. Onnur sýning verður á föstudeginum 30. desember. Miðapantanir fara fram í síma 3856 milli klukkan 8 og 10 á kvöldin. Þorláksmessuskata ÓsÍQitn ‘Vestfirdingum öííum, tUsjós og (anás, gíediíegm jóía, drs og friðar, og pölfum góðar viðtötjur ú ííðandi dri. Opnunartími: Virka daga kl. 09-18 Þorláksmessu kl. 09 - 23 Aðfangadag kl. 09-12 MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1994 21

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.