Bæjarins besta - 04.01.1995, Síða 1
OHAÐ FRETTABLAD
A VESTFJORDUM
STOFNAD U. NÓVEMBER 1984
BÆJARINSBESTA • MIÐVIKUDABUBí. JANÚAB1995 • 1. TBL. • 12. ÁBB. • VEBÐKB. 170M/VSK
ísafjörður
Golfari
íþróttamaður
Isafjarðar
&
FSÍ
Metár í
fæðingum
&
Gam/a árið
krufið
KÍ
Hugmyndir
um opnun
nýrrar versi-
unar
Skiði
„Aðdáenda-
kjúbbur
Ástu“ veitir
peningagjöf
ísafjörður
Róleg
áramót
ÁRAMÓTIN á ísafirði voru
mjög róleg og þarf að leita mörg
áraftur í tímann lil að finna jafn
róleg áramót. Lítið var um ölvun
og engin útköll voru vegna
óspekta. Klukkan sex á nýárs-
morgun fór lögreglan til Suður-
eyrar vegna kvartana yfir ölvuð-
um manni og var honum ekið
til síns heima. El'tir því sem
blaðið kemst næst var lítið um
óhöpp vegna flugelda og blysa
og virðist sem Vestfirðingar
hafi gætt sín vel erhinum ýmsu
flugeldum varskotið upp í nátt-
myrkrið. Hið besta veður var
víðast hvar á Vestfjörðum um
miðnættið á Gamlárskvöld og
var meðfylgjandi mynd tekin á
Isafirði er nýja árið gekk í garð.
Fyrsta barn ársins
Fyrsta barnið sem fæddist á Fjórðungssjúkra-
húsinu á ísafirði á þessu ári kom í heiminn ki.
09.20 í gærmorgun, þriðjudaginn 3. janúar.
Barnið er drengur, reyndist vera 3.840 g. að
þyngd og 54 sm. að iengd. Foreidrar barnsins
eru þau Margrét Bjarney Jensdóttir og Kristinn
Ebeneserson, Múiaiandi 14 á ísafirði. Með-
fyigjandi mynd var tekin af þeim mæðginum á
FSi um miðjan dag í gær.
Fimm fyrirtæki gera tiiboó í meiri-
hiuta bæjarsjóðs Boiungarvíkur í
útgerðarféiaginu Ósvör
Bæjarsjóður hefur
gefið grænt Ijós
- gert er ráð fyrir að samningar verði undirritaðir undir lok
þessa mánaðar
SAMNINGAVIÐRÆÐUR
utn kaup á meirihluta hlutafjár
bæjarsjóðs Bolungarvíkur í út-
gerðarfyrirtækinu Ósvör eru á
lokastigi samkvæmt heimildum
blaðsins. Fimm fyrirtæki hafa
átt í viðræðum við Bolungar-
víkurkaupstað vegna þessa,
Gná og Þuríður í Bolungarvík
og Bakki, Miðfell og Hrað-
frystihúsið hf., í Hnífsdal. Við-
ræður hafa staðið yfir í um fjóra
mánuði og farið leynt en Bol-
ungarvíkurkaupstaður mun
liafa gefið grænt Ijós á kaupin
og á aðeins eftir að undirrita
samninga, samkvæmt heimild-
um blaðsins.
Fyrirtækin fimm munu stofna
fyrirtæki um kaupin og í fram-
haldi af því er gert ráð fyrir að
fyrirtækin þrjú i Hnífsdal kaupi
ásamt Gná, helmingshlut í
Þuríði hf., en þar með verður
Þuríður orðið eitt af öflugustu
sjávarútvegsfyrirtækjum lands-
ins. Hlutur bæjarsjóðs Bolung-
arvíkur í Osvör er tæp 64% og
er kaupverðið 35 milljónir
króna.
,.Það eru samningar í gangi á
rnilli þessara fyrirtækja um að
stofna félag til að kaupa meiri-
hluta bæjarsjóðs Bolungarvíkur
íÓsvör. Samningaviðræðureru
komnar langt á veg og það er í
burðarliðnum að undirrita sam-
ninga. Bærinn hefurgefiðgrænt
Ijós svo framarlega sem að
kvótinn fari til vinnslu hér
heima, sem er eðlileg krafa. Það
verður mikil samvinna á milli
þessara fyrirtækja auk þess sem
þau munu sjá um að auka við
þann kvóta sem fyrir er í
byggðarlaginu í dag. Eg geri
ráð fyrir að samningar verði
undirritaðir undir lok þessa
mánaðar. I framhaldi af þessu
er gert ráð fyrir að fyrirtækin
þrjú í Hnífsdal auk Gnáar kaupi
helmingshlut í Þuríði,” sagði
viðmælandi blaðsins.
Sami heimildarmaður sagði
að engin togarakaup væru fyrir-
huguð hjá hinum væntalegu
eigendum, enda væru skipin tvö
sem eru í eigu Ósvarar ágætis
rækjuskip. „Það er ekki verið
að hugsa um nein frystitogara-
kaup. Þetta á fyrst og fremst að
vera landvinnsla, vinna fyrir
fólkið á stöðunum tveimur. Við
munum heldur bæta við minni
skipum til að auka vinnsluna í
iandi. Þessi tvö byggðarlög eru
að efla hvort annað upp með
þessum kaupum,” sagði sami
maður.
RITSTJORN 'B 4560 • FAX tt 4564 • AUGLYSINGAR OG ASKRIFT 4570