Bæjarins besta - 04.01.1995, Qupperneq 2
Hvernig
verður
Þrettánda
gieðin
Anna?
Anna G. Edvards-
dóttir, formaður
íþrótta- og æskulýðs-
ráðs Bolungarvíkur:
„Þrettándagleðin verð-
ur með hefðbundnu sniði
og hefst kl. 20 á föstudag
á Hreggnasavellinum.
Gleðin tókst svo vel fyrir
tveimur árum að ákveðið
var að halda hana á sama
stað. Þar mun álfakon-
ungur og álfadrottning
koma ríðandi á svæðið og
þeim mun fylgja yfir fjöru-
tíu furðuverur af öllum
gerðum og litum. Það er
töluverður undirbúningur
fyrir slíka skemmtun og
felst hann aðallega í æf-
ingu dansa sem og gerð
búninga en kvenfélagið á
staðnum sér um þá hlið.”
ísfirðingar og Boivík-
ingarhafa skipst á að sjá
um hina áriegu Þrettánda-
gieði, semjafnan erhaidin
á síðasta degi jóia. í ár
munu Boivíkingar sjá um
framkvæmd gieðinnar
sem verður án efa hin
giæsiiegasta ef að iikum
iætur.
Hvað
ætiar þú
að gera á
heiginni?
Bergmann Ólafs-
son, framkvæmda-
stjóri Bílatanga:
„Á föstudagskvöldið
ætla ég á Þrettánda-
gleðina í Bolungarvík. Ég
verð síðan að vinna fyrir
hádegi á laugardag og
eftir hádegi slappa ég
af. Líkt og undanfarnar
helgar vinn ég fyrir há-
degi á sunnudag og það
sem eftir lifir dagsins
mun ég slappa af í faðmi
fjölskyldunnar. Það er
eini frídagurinn.”
/ hófinu fengu viðurkenningu fyrir árangur sinn, þau Ásta S. Haiidórsdóttir, sem tiinefnd var af
Skíóaféiagi ísafjarðar, Pétur P. Grétarsson, sem tiinefndur var af Goifkiúbbi ísafjarðar, Aðaiheiður Ýr
Gestsdóttir, sem tiinefnd var af Sundféiaginu Vestra og Haukur Benediktsson, sem tiinefndur var af
knattspyrnudeiid Boitaféiags ísafjarðar.
Kjör íþróttamanns ísafjarðar
Golfari varð fyrir valinu
- aðeins fjögur aðildarfélög af tíu sendu inn tilnefningar
PÉTUR Þór Grétarsson, golf-
ari varkjörinn IþróttamaðurIsa-
fjarðar fyrir árið 1994 í hófi
sem bæjarstjórn Isatjarðar hélt
á Hótel Isafirði milli jóla og
nýárs. Pétur vann sér það til
frægðar á árinu að verða Vest-
fjarðameistari í íþrótt sinni auk
þess sem hann er með lægstu
forgjöf vestfirskra golfara. Þá
þjálfaði hann fjölmarga ísfirska
unglinga í íþróttinni og var valið
byggt m.a. á því starfi hans.
Athygli vakti í hófinu að
aðeins fulltrúar fjögurra íþrótta-
greina af tíu skiluðu inn til-
nefningum um íþróttamann
ársins. Fulltrúar Skíðafélags
Isafjarðar, knattspyrnudeildar
Boltafélags Isatjarðar. Golf-
klúbbs ísafjarðar og Sund-
félagsins Vestra voru þeir einu
sem skiluðu inn tilnefningum.
„Það sem mestu máli skiptir
og það sem liggur að baki valinu
er að Pétur Þór hefur æft hér
heima auk þess sem hann hefur
lagt mikla rækt við að aðstoða
yngri kylfinga og stutt þá fyrstu
sporin. Valnefndin setur sér
sjálf vinnureglur og við á-
kváðum það núna að líta ekki
einvörðungu á afrekalista
íþróttamannsins, heldurað hafa
með það félagslega uppeldi sem
íþróttir eiga að vera. Það hefur
þessi einstaklingur,” sagði Þor-
steinn Jóhannesson, forseti bæj-
arstjórnar Isafjarðar sem afhenti
Pétri Þór viðurkenningu bæjar-
stjórnar.
Auk Péturs Þórs fengu þrír
aðrir íþróttamenn viðurkenn-
ingu frá bæjarstjórn Isafjarðar
fyrir árangur sinn á árinu en
það voru þau Ásta S. Halldórs-
dóttir, skíðakona, Haukur Bene-
diktsson, knattspyrnumaður og
Aðalheiður Ýr Gestsdóttir,
sundkona. Iþróttafólkinu er
óskað til hamingju með viður-
kenningarnar um leið og því er
óskað velfarnaðar á nýbyrjuðu
ári.
Pétur Þór Grétarsson,
kyifingur, var kjörinn
íþróttamaður ísafjarðar
í hófi sem bæjarstjórn
ísafjarðar héit miiii jóia og nýárs.
Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði
Metár í fæðingum
EITT HUNDRAÐ og fimm
börn fæddust á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Isafirði á nýliðnu ári
og er hér því um metár að ræða.
Árið 1992 fæddist 101 barn á
FSI, sem var metár a.m.k. hin
síðari ár en nú hefur það met
verið slegið, eins og áður segir.
Stúlkur voru í naumum meiri-
hluta eða 54 á móti 51 dreng.
Flestar voru fæðingamar í júní
en þá fæddust 14 börn. Þrettán
börn komu í heiminn í október
og 12 í apríl. Þegar við birtum
lista yfir allar fæðingar á FSI á
árinu í jólablaðinu, sem út kom
21. desember, voru slétt hundr-
að börn kominn í heiminn. Hér
að neðan birtist síðan listi yfir
þau börn sem fæddust frá 20.
desember til áramóta.
20. deseinber: Stúlka, 4.310
g. og 56 sm. Foreldrar: Sigur-
veig Björg Harðardóttir, Hlíðar-
vegi 26, Isafirði og Rögnvaldur
Ólafsson, Skólastíg 22, Bol-
ungarvík.
22. deseinber: Drengur,
4.520 g. og 58 sm. Foreldrar:
Brynhildur Höskuldsdóttir og
MarsellíusGuðmundsson, Vita-
stíg 7, Bolungarvík.
23. desember: Drengur,
3.410 g. og 54 sm. Foreldrar:
Hildur Kristín Einarsdóttir,
Hjallastræti 16. Bolungarvík og
GunnarTorfason, Hjallavegi 6,
Isafirði.
23. desember: Drengur,
4.230 g. og 53 sm. Foreldrar:
Dagný Viggósdóttir og Óskar
Rúnar Samúelsson, Engjavegi
31, ísafirði.
26. desember: Drengur,
4.750 g. og 58 sm. Foreldrar:
Þorgerður Karlsdóttir og Arnar
Guðmundsson, Hjallavegi 23,
Suðureyri.
Aidrei hafa fæðst fieiri
börn á FSÍ en á síðasta
ári.
Magnúsí
innheimt-
una
Magnús Ólafs Hans-
son frá Bolungarvík
hefur verió ráðinn til
starfa á bæjarskrif-
stofunum á ísafirði og
hóf hann störf þar um
áramót. Magnús mun
leysa Matthildi Helga-
dóttur af, en hún hefur
séó um innheimtumál
bæjarins. Matthildur er
á leið í barneignarfrí og
sömu sögu er að segja
af öórum starfsmanni
bæjarins, Álfheiði
Kristínu Arnórsdóttur,
gjaldkera. Hefur starf
hennar verið auglýst
laust til umsóknar. Þá
hefur starf skrifstofu-
stjóra bæjarins og
staógengils bæjar-
stjóra verið auglýst til
umsóknar og rennur
umsóknarfrestur um
þaó starf út á morgun,
fimmtudag.
Formieg
opnun
Funa
Sorpbrennslustöðin
Funi í Engidal verður
formlega tekin í notkun
aó viðstöddum um-
hverfisráðherra og
ráðuneytisstjóra nk.
föstudag kl. 17. Stöðin
hefur verið í notkun frá
því um mánaðarmótin
ágúst-september á
síðasta ári og hefur
starfsemin gengið vel.
Auk ráðherra og ráðu-
neytisstjóra verða
sveitarstjórnarmenn og
þingmenn viðstaddir
athöfnina.
Óiafur G.
afhendir
Það eru fleiri bygg-
ingar en Funi sem
veróa formlega teknar í
notkun í þessari fyrstu
viku ársins 1995. Á
morgun, fimmtudaginn
5. janúar kl. 14 mun
Ólafur G. Einarsson,
menntamálaráðherra,
afhenda Framhalds-
skóla Vestfjaróa,
verkmenntahúsið til
afnota. Húsió hefur
verió í byggingu frá því
í haust og er nú tilbúió
til notkunar.
Ásta eina
skíða-
konan
Ásta S. Halldórsdóttir
frá Bolungarvík var
eina skíðakonan sem
komst inn á lista þeirra
íþróttamanna sem
Samtök íþróttafrétta-
manna, þóttu skara
fram úr á síóasta ári.
Ásta hafnaói í 13. sæti
meó 34 stig.
2
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1995