Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.06.1995, Qupperneq 5

Bæjarins besta - 08.06.1995, Qupperneq 5
Guðjón Brjánsson, fulltrúi f félagsmálaráði ísafjarðar skrifar Um vinnulagog yiðhorfí féiagsmáiaráðiisaiiarðar - opið bréf tii Magnúsar Reynis Guðmundssonar, formanns ELSKULEGUR Magnús Reynir, minn góði formaður, ég þakka þér fyrirgreinina ísíðasta BB. Mérfannst fremur hlýlegur tónn í henni mestan part, allt að því föðurlegur á köflum. Raunar hálf leiðist mér að fara að skrifa þér bréf á þessum vettvangi en ég gat ekki setið á mér. Það hefur enginn fyrri klifað svo oft á nafni mínu í einni grein á prenti, án þess að ég verðskuldaði það og ég varð nú satt að segja bara feiminn, þú veist hvað ég er mikið til baka. Eftir lesturinn var ég orðinn býsna glaður í sálinni, þetta virkaði vel. Ég fór á kvöldgöngu og gekk niður á bátahöfn til að anda að mér fersku sjávarloftinu sem við báðir metum svo mikils með öllum sínum tilbrigðum - rétt eins og við metum fólkið mikils sem hér býr. Eftir ákvörðun félagsmálaráðs um ráðningu nýs félagsmálastjóra í fyrra mánuði sló á þig tveggja vikna grafar þögn af tillitsemi við allt og alla. Það er því ekki að undra nú að vænst hafi verið góðra svara eftir leguna undir feldinum, þ.e. staðreynda í málinu, rökstuðnings fyrir umdeildri ákvörð- un, án útúrsnúninga. Og svo kom grein og yfirskriftin er í spurnarformi, “Vísvitandi rangar upplýsingar eða getgátur frétta- manna?”. I þessu bréfkorni mínu ætla ég að leitast við eins og himna- kóngurinn framast gefur mér styrk til, að forðast getgátur, dylgjur eða mis- sagnir, svo ég nefni nú ekki vísvitandi að gefa rangar upplýsingar. Þetta allt hefðir þú lfka átt að gera í greinar- gerðinni til bæjarbúa í stað þess að leggjast lágt og grípa til skýringa sem ekki eru sæmandi þér, dánumaðurinn. Þér hefði verið sæmst að halla þér að staðreyndum málsins og staðreyndum eingöngu en ekki falla í þann sama fúlapytt og virtur bæjarfulltrúinn gerði í ræðustól á bæjarstjórnarfundi 18. maí s.l. Þarvarþetta umræddamálendan- lega afgreitt að viðstöddum metfjölda áheyrandi bæjarbúa. Hann mælti þrunginni röddu að mikil leiksýning hefði verið sviðsett og lét að því liggja að ég væri sjálfur leikstjórinn. Þetta viðhorf endurspeglar ekki ýkja mikla virðingu fyrirfrjálsri skoðanamyndun og réttlætiskennd meðal bæjarbúa. Þetta sama virðist skína í gegn hjá þér, hin ásækna hugsun um að einhver einn með horn og hala standi að tjalda- baki og vilji illt. Minn elskulegi formaður. Magnús, ég er ekki frum- kvæðisaðili og gerandinn í þessu máli - áttaðu þig á því. Undir hvaða stjórn var allt þetta mál unnið til enda og hvaða sakir er ég að bera á félaga mína og hver hefur gert allt ráðið afar tortryggilegt, eins og þú fjallar um í greininni? Hvað með þann tug blaðagreina sem ritaður hefur verið í kjölfar þessarar ákvörðunar? Hvað með undirskriftalista sem hafa verið í gangi og þessi bylgja óánægju í bænum? Er þetta ég? Ætlarðu mér einum að stýra skoðunum bæjarbúa í þennan farveg og skipa til um rétt- lætistilfinningu fólksins? Ég er nú víst ekki mikill fyrir mann að sjá og víst er að engan kraft hef ég til þess að klára svona dæmi, og kannski veistu það nú líka innst inni í hjarta þinu, Magnús minn. Það sem ég hef hinsvegar til unnið er að hafa myndað mér sjálfstæða skoðun í nefnd sem ég var kjörinn til að sitja í fyrir fólkið í bænum og með hagsmuni þeirra og velferð í huga og það eingöngu. Ég hef ekkert annað að verja í þessu máli en samviskuna og það er létt verk fyrir mig. Þess vegna fannst mér lítið leggjast fyrir þig í þessari bæjarmála- umræðu að draga mína persónu inn í málið undir tvíræðum formerkjum og nefna á nafn starf mitt og ráðningu að Fjórðungssjúkrahúsinu. Þarna er langt til seilst og mér finnst þetta vera þér til minnkunar í stöðunni - en þér er kannski vorkunn, kæri Magnús, ég skal ekkert um það segja. í viðtalinu í BB sem vitnað er til, datt mér raunar síst af öllu í hug að líkja vinnuferlinu í félagsmálaráði að undanförnu við það þegar þú varst ráðinn sem forstöðumaður fyrir sér- hæfðu útgerðarfyrirtæki á sínum tíma eftir áratuga ritarastörf hjá bænum. Einhverjum hefði eflaust þótt sam- líkingin nærtæk og sýna hvernig skipað hefur verið með ýmsu móti í stjórnunarstöður hjá opinberum og hálf opinberum fyrirtækjum og stofnunum. Og ætli hafi ekki aftur munað um starfsreynsluna, persónuleikann og almennu mannkostina? Leið þín í starfið var enda greið og þar hefur þér farnast vel og megi svo verða um alla framtíð. En persónulegur starfs- vettvangur okkar kemur þessu máli bara alls ekkert við og þú hefðir betur látið vera að skjóta þessari ör af boga þínum, Magnús minn í varnarræðu þinni fyrir hönd meirihluta félags- málaráðs. I greininni gerir þú því skóna að ég hafi átt meira en lítinn þátt í um- fjöllun BB um þetta vandræðamál þitt. Skilja má sem svo að ég sé höfundur viðtalsins sjálfur, að hluta eða í heild, a.m.k. fóðrað blaðamann með upp- lýsingum, vísvitandi röngum ístórum dráttum. Enn og aftur ítreka ég það að þér væri sæmst í stöðu þinni að leita sannleikans og fara eingöngu með staðreyndir. Ég geri ráð fyrir að BB haldi trúnað við sína heimildarmenn. Ég skal þó greina þér frá því hér að blaðamaðurhringdi til mín þegardags- krá bæjarstjórnarfundar nr. 587 lá fyrir prentuð og komin í dreifingu. Hann spurði mig um tilgreinda bókun á félagsmálaráðasfundi 11. maí. Það sem eftir mér er haft er satt og rétt og við það stend ég að sjálfsögðu. Að ég hafi kannski gefið upp eitthvað fleira til blaðsins eru þínar getgátur og ímyndun, nema að þú staðfestir annað. Skýringa á því sem blaðið fjallar um í formála viðtalsins eða annars staðar ættirðu fremur að leita hjá öðrum ná- tengdum félagsmálaráði en ekki brigsla samráðsmanni þínum nánast um brot á trúnaði á opinberum vettvangi, minn góði formaður, það er ekki fallegt. I greininni er eitt atriði sem mér fellur síst við, eins og mér finnst nú annars þessi ritsmíð þín huppleg að mörgu leyti. Þetta er fullyrðingin um að enginn á félagsmálaráðsfundinum örlagaríka 11. maí hafi verið því mót- fallinn að taka gilda umsókn sem dag- sett var þann sama dag, innkomin mánuði of seint. Þetta er alls ekki rétt. Þú stýrðir fundinum, Magnús og veist hvaða umfjöllun málið fékk. Ég var Guðjón Brjánsson. mótfallinn því að fleiri umsóknir væru teknar inn og rökstuddi það með hóg- værri bókun. Vegna reynsluleysis lét ég ekki í þetta sinn bóka nákvæmlega hvernig atkvæðin féllu, en hitt stendur eftir að samþykkt var að taka um- sóknina gilda. Starf félagsmálastjóra á ísafirði er löngum starf einyrkjans, eins og það var svo oft orðað á fundum ráðsins á meðgöngutímanum. Starfið gerir miklar kröfur til viðkomandi sem vinnur mikið sjálfur og einn, þarf að takast á við mjög persónuleg vanda- mál, vera til þess þjálfaður að greina vanda einstaklinga sem oft liggur ekki á yfirborðinu, hafa til þess þekkingu að ganga inni í fjölskylduráðgjöf, taka á viðkvæmum barnaverndarmálum og skipuleggja almenna félagsþjónustu í byggðarlaginu til framtíðar svo fátt eitt sé nefnt. Gerð er krafa til þess að viðkomandi sé vammlaus og njóti trausts samborgaranna til orðs og æðis. Ég skoðaði minn hug vandlega á um- sóknartímanum, fór yfir gögn um- sækjenda, kynnti mér hagi þeirra, velti fyrir mér hvert framlag þeirra gæti orðið hér á staðnum og síðast en ekki síst hlustaði á óm af viðhorfum samborgaranna. Val mitt var auðvelt en skoðanir ráðsmanna virtust þó ekki samhljóða. Ég fékk aldrei skýringu á því allt ferlið vegna hvers besta um- sóknin var sett til hliðar. Þögnin ein ríkti um það, athyglin beindist strax að öðrum. Mér hefði þótt eðlilegt að komið hefðu fram athugasemdir um veikleika umsækjanda úr því svona fór, einhverjar vísbendingar til skýringa, t.d. að hann væri óábyrgur í meðferð fjármála, hann væri þekktur af erfiðu samstarfi, hann tæki ekki tilmælum, færi sínar eigin leiðir o. s. frv. ef um slík atriði var að ræða. Ég hefði fagnað skoðanaskiptum af þessu tagi, nei kæri Magnús. Eftirminni- legustu ummælin á fundum ráðsins í sambandi við þennan umsækjanda komu frá þér, “þetta er prýðis piltur” - punktur. Það er sannfæring mín að sá einstaklingursemég studdi til starfans er enginn já maður, hvorki gagnvart mér né öðrum. Hann hefði eflaust tamið sér ákveðin vinnubrögð sem við hefðum þurft að vega og meta og taka afstöðu til - brjóta til mergjar, skoðaoníkjölinn. I þessufelasteinmitt möguleikar framfara og þróunar, ekki stöðnunar og afturhalds. Um var að ræða vel menntaðan mann á þessu sérsviði, mann með framhaldsmenntun að auki, með ágætar umsagnir frá fyrri vinnuveitendum og þekkingu og reynslu sem nýst hefði fullkomlega í starfinu. Hann hefði flutt með sér fersk viðhorf sem ríkja íkringum okkur úr félagslegu- og efnahagslegu um- hverfi sem er sambærilegt við okkar. Það er fyrirsláttur af ódýrustu tegund að telja það helstu hindrunina fyrir ráðningu að hann skorti reynslu sem félagsmálastjóri. Nei, kæri Magnús, þetta vildir þú ekki. Þú vildir eitthvað annað. Hvað vildirþúoghvers vegna? Það er hörmulegt til þess að vita að þau vinnubrögð sem viðhöfð voru í félagsmálaráði við ráðningu félags- málastjóra hafi leitt til þess að einstaklingar sem málinu tengjast hafi orðið fyrir ónæði, aðkasti og jafnvel hótunum ef skilja má umræðuna rétt. Jafnvel svo að makar ráðsmanna og afkomendur eiga í vök að verjast. Það er óafsakanleg framkoma og hreinasta óhæfa að láta skaphita og tilfinningar hlaupa með sig í gönur í tilvikum sem þessum. Öllum berað virða lýðræðis- lega niðurstöðu. Ég veit, Magnús minn að við erum sammmála um þetta og að í menningarsamfélagi eins og við teljumst búa í, þá gera menn ekki svona. Um allt þetta mál hefur verið fjallað í persónulegum stíl og mér finnst það óréttlátt. Þú elurþóenn á þessu íþinni grein, elskulegur með umfjöllun í þröngum skilningi. Frá mínum bæjar- dyrum séð er hér ekki fyrst og fremst um afstöðu til einstaklinga að ræða, alls ekki - heldur um vönduð vinnu- brögð og eðlilega málsmeðferð, mark- mið og hagsmuni íbúanna í byggðar- laginu til langs tíma og síðast en ekki síst, siðareglur. Þú manst, Magnús hver voru mín orð á síðasta félagsmálaráðsfundi áður en ég gekk út. Þau voru ekki bókuð en ég treysti á stálminni þitt. Ég stend við þau og vona að samráðsmenn mínir allir og starfsmaður geri það einnig. Nýráðinn félagsmálastjóra tel ég hafa starfað af samviskusemi og atorku í afleysingum og skilað starfi sínu vel og ég treysti henni til að gegna því áfram með sóma. Þetta hef ég sagt við hana sjálfa og stend á því fastar en fótunum, þó svo að þú upplýsir í grein þinni að auk hennar hafi einungis einn af tuttugu og níu félagsmálastjórum á landinu sömu menntun og núverandi félagsmálastjóri Isafjarðar. Það eru mörg rök sem hníga í átt til þess að eðl i legt og sjálfsagt hefði verið að ráða þann starfsmann sem fyrir valinu varð. Höfuð rökin voru auðvitað þau að hún hefur gegnt þessu starfi í eitt ár og gegnt því með þeim hætti að félagsmálaráð telur fullan sóma að. Þetta er eðlileg afstaða, þótt ekki megi skoða hana sem bindandi og sem einhlítt viðmið. Það kom einmitt fram hjá þér, Magnús í um- ræðunum um þetta mál að það væri ekki fáguð framkoma af okkar hálfu að hafna starfandi félagsmálastjóra ef hún sækti um, það væru kaldar kveðjur sem hún ætti ekki skilið að fá. A bak við þetta felst kristileg og kærleiksrík hugsun, það verð ég að segja. Sigríður Jóhannsdóttir sækir um starf forstöðu- manns í Hlíf á sama tíma. Hún hefur gegnt því starfi mánuðum saman með prýði , og lengur í þessari óvissu en hún hafði gert ráð fyrir vegna beiðni ráðsins. En þegar kom að því að ráða til frambúðar í starfið sem verður raunar viðameira en áður, þá dugðu ekki sömu rök og í hinu fyrra tilvikinu - kristilegi kærleiksandinn var á bak og burt og kveðjurnar heldur kaldar. En hvað um það. Ráðinn hefur verið nýr félagsmálastjóri og ég var fyrstur manna til að óska henni til hamingju með ákvörðun meirihluta félagsmálaráðs. Félagsmálastjóri hverju sinni erstarfsmaður félagsmála- ráðs og vinnur í umboði þess og á ábyrgð ráðsins. Félagsmálastjóri fær inn á sitt borð margvísleg verkefni sem þafnast jafnt skammtíma- sem langtímalausna, sumar eru jafnvel bindandi um ár og síð. Nú ber svo við að í síðasta tbl. BB er upplýst að búið sé að ráða sumarafleysingamann úr Reykjavík fyrir félagsmálastjóra ísa- fjarðar. Það hefur aldrei gerst fyrr og ekki verið samþykkt á fundi félags- málaráðs. Afleysingamál fyrirfélags- málastjóra bar einmitt á góma snemma í vor á fundi ráðsins. Þá bauð frá- farandi félagsmálastjóri fram krafta sína í sumar eftir þörfum, en það var pent afþakkað og engin þörf talin á því þá. Hann ítrekaði síðan boð sitt, þetta veistu Magnús minn - enn var afþakkað. Svo lesa ráðsmenn í frétta- blaði staðarins að á þeirra vegum sé væntanlegur til starfa maður í bæinn. Hefur þú fulltingi til þess að gera svona, Magnús minn eða eru þetta siðareglurnar sem mér hefur sést yfir? Ég tilkynni þér það hér með að á meðan starfsmaður sem ráðinn ermeð svona bolabrögðum vinnur í nafni félagsmálaráðs mun ég ekki sam- þykkja gjörðir þess eða sitja fundi. Og er nema von að ég spyrji í fram- haldinu: Hefur þú upp á þitt eindæmi ráðið fleiri aðila til starfa á vegum félagsmálaráðs til lengri eða skemmri tíma eða til annarra verka, hvað með Hlíf? Ég leyfi mér að spyrja hér, Magnús vegna þess að nú er senn liðinn mánuður frá því að síðast var haldinn fundur í félagsmálaráði og ég tel óviðunandi að búa við þann kost einan að lesa í fréttablöðum um ákvarðanir sem tilheyra þessu mikil- væga ráði þar sem gagnkvæmt traust og samstaða þarf að ríkja, eins og þú hefur réttilega bent á. Þessi bréfstubbur minn er orðinn lengri en ætlað var. Mér finnst til- efnið hvimleitt og ég eróvanur því að standa í ritdeilum. Þær eru ekki af persónulegum toga, minn kæri Magn- ús. Ég virði þig sannarlega fyrir þín fjölmörgu góðu verk og þakka góðar stundir með þér, bæði fyrr og nú. En forherðingin í ákvörðunum í þessu máli er slík að ekki verður um kyrrt setið, embættisfærslan og vinnubrögð- in eru aðfinnsluverð. Það táknar ekki að traust á milli aðila í samvinnu um góð verk sé ekki lengur fyrir hendi. Samstarfið í félagsmálaráði hefurverið með ágætum og fullur trúnaður ríkt í hinum viðkvæmumálum. Þaðervissa mín að svo verður áfram og að þessir hnökrar sem til umræða hafa verið þoka fljótt fyrir gróandanum og sumrinu sem er á næsta leiti. Þinn samstarfsmaður í félagsmáiaráði, Guðjón S. Brjánsson. UifJq 141 §■ jjMTT Reykiausir bekkir verð- iaunaðir Krabbameinsfélagió og Tóbaksvarnarnefnd veittu nú nýlega 19 bekkjum grunnskóla á Vestfjörðum, vióur- kenningar fyrir aó vera reyklausir bekkir. Jafnframt veittu Krabbameinsfélagið og Tóbaksvarnarnefnd 60 nemendum ein- staklingsverðlaun og komu tvö þeirra í hlut vestfirskra nemenda. Klara Berglind Hjálm- arsdóttir í 10. bekk grunnskóla Bíldudals fékk bókina „Lífsmynd skálds” og Haukur Gylfason í 10. bekk grunnskólans á ísafirði fékk háskólabol. Ljósmynda- maraþon- inu frestað Ljósmyndamaraþoni Bókaverslunar Jónasar Tómassonar, Hans Petersen hf., og BB, sem haldið hefur verið árlega undanfarin ár og til stóð að halda á laugardaginn kemur, hefur verió frestað til laugardagsins 1. júlí nk. Þrátt fyrir frest- unina er hægt að skrá sig strax í Bókaverslun Jónasar Tómassonar, að Hafnarstræti 2. Sigur og , tap hjá Bi Boltafélag ísafjarðar sigraði sinn fyrsta leik í 3. deildinni í knatt- spyrnu er liðið heim- sótti Ægi frá Þorláks- höfn um miðja síðustu viku. Lokatölur leiksins urðu 2-1 fyrir BÍ. Liðið er nú í 4.-5. sæti ásamt Dalvík með 5 stig eftir 3 leiki. Á mánudagskvöld lék liðið á móti Breiðablik, undir 23 ára, í bikar- keppni KSÍ og tapaði BÍ meó þremur mörk- um gegn einu og er því úr leik í bikarkeppn- inni. Sendum vestfirskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra kveðjur og árnaðaróskir á sjómannadaginn íVok-rafdndavörur fif. Sindrayjötu 10, ísafirði UmBoð ‘Eims/q.p -jöffai Slðafstrczti 24, ísafirði FIMMTUDAGUR 8. JUNI 1995 5

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.