Bæjarins besta - 08.06.1995, Qupperneq 8
Sendum vestfirskum sjómönnum og fjölskyldum þeirrn kveðjur og árnaðaróskir á sjómannadaginn
Bizza 67 ‘Mánagata 6, ísafiröi ESSO umúoð - Birfjr fif Bfafnarstrceti 8, isafirði
‘Básafetffif Sindragata 1, Isafirdi ‘Versfunarmannaféfag isafjarðar Bfafnarstrceti 14, isafirði
‘BíómaSúdin ‘Eíísa tHafnarstr(Zti9, ísafirdi ‘Véfbátaábyrgðarféfag isfirðinga Bfafnarstrceti 14, isafirði
‘ftugféíagið ‘Emir fif ísafjarðarfCugvetti ‘Ritur ff. Sincfragata 7, isafirði
HamraBorfl fif Hafnarstrceti 7, Isafirði Börtcefni fif. Siðafstrceti 7, isafirði
ísfang ff Suðurffötu, Isafirði Sfjpasmíðastöðin fif. Suðurtargi 6, isafirði
ísfúsféfafi ísfirðinga ff. ‘Eyrargötu 2-4, ísafirði Bfiffsmiðja ‘Erfencfar Bfnífscfafsvegi 27, isafirði
Lífeyrissjóður Vestfirðiryja ‘Brunryjötu 7, ísafirði (juffauga Bíafnarstrceti 4, isafirði
(junnvör ff. ‘Eyrarjjötu 2-4, ísafirði ‘tterfgfýðsféfagið Bafcfur Bóígötu 2, Ísafirði
‘TÆ-VÆ veitiryjastaður Aðafstrceti 22, ísafirði Sjómannaféfag Ísfirðinga Bóígötu 2, Ísafirði
Hrönn ftf Hafnarfmsinu, ísafirði Ágúst og fffosi íf. Ámagötu 3, isafirði
Hraðfrystifúsið ‘Jjorðurtanyi fif Suncfstrceti 36, ísafirði ‘Tcefnijjónusta ‘Testfjarða ff. Æusturvegi 1, isafirði
MjóÚqirsamfajj isfirðinga Sincfragötu 2, lsafirði ffrosti ff. JfarðarSraut 1, Súðavífj
Ofíuféfag útveysmanna Hafnarfúsinu, isafirði Áfftfirðingur ff. HjarðarSraut 1, Súðavíf
Flateyrarkirkja. 50 ára fermingarbörn færðu
kirkjunni gjafir á hvítasunnudag í tiiefni af
afmæiinu.
Fermingar í Önundarfirði
Fermingarbörn
færa gjafir
Á HVÍTASUNNUDAG
fermdust fimm drengir í Flat-
eyrarkirkju. Viðstaddir guðs-
þjónustuna voru fjórir ferm-
ingardrengir, sem nú héldu upp
á það, að 50 ár eru liðin frá
fermingu þeirra, en þeir fermd-
ust í Flateyrarkirkju á hvíta-
sunnudag fyrir hálfri öld, hinn
20. maí 1945.
Þeirsem vitjuðu kirkju sinnar
í tilefni af fermingarafmælinu
voru þeir Garðar Þorsteinsson,
Hallur Stefánsson, Oskar
Magnússon og Snæbjörn Ás-
geirsson, en þrjár fermingar-
systur þeirra voru fjarstaddar,
þær Dóróthea Guðmundsdóttir,
Guðbjörg Gunnarsdóttir og
Rakel Jónsdóttir, Einn úr hópn-
um er látinn, Guðmundur B.
Þorláksson, en hann var jarð-
settur í kirkjugarðinum á Flat-
eyri.
Fimmtíu árafermingarbömin
færðu kirkjunni umbúnað um
kaleik og patínu (velum og
bursa) að gjöf, og ferming-
ardrengjum vorið 1995 færðu
þau Passíusálmana áritaða.
Þennan sama dag fermdust þrír
drengir í Holtskirkju.
Umhverfisráðuneytið
gefurút
Reglugerð um
veiðikort og
hæfnispróf
veiðimanna
UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ hefur sett nýja reglugerð um
veiðikort og hæfnispróf veiðimanna. Hún er sett í samræmi við
lög nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og
villtum spendýrunt og hefur þegar tekið gildi.
Með reglugerðinni er öllum
sem stunda veiðar á villtum
dýrum, öðrum en rottum og
músurn, gert skylt að afla sér
veiðikorts. Þetta á jafnt við um
þá sem stunda veiðar og þá sem
nýta hlunnindi á eigin jörðum
eða í eigu sveitarfélaga. Gefin
verða út þrenns konar veiði-
kort; almennt veiðikort fyrir þá
sem stunda veiðar, hlunninda-
kort fyrir þá sem eingöngu ætla
að nýta hlunnindi sent þeir hafa
rétt á eða til þess að verjast
tjóni af völdum villtra dýra og
almennt veiði- og hlunninda-
kort, sent sameinar fyrri kortin
í eitt fyrir þá sem nýta hlunnindi
og stunda veiðar.
Gjald fyrir veiðikort er 1.500
krónur og fer það í sjóð til þess
að standa straum af kostnaði,
auk rannsókna og stýringar á
stofnum villtra dýra. Veiði-
kortin gilda í eitt ár í senn, frá 1.
apríl ár hvert.
Embætti veiðistjóra, sem
starfar á vegum umhverfisráðu-
neytisins, sér um útgáfu veiði-
korta. Þeir sem hyggjast stunda
veiðar eða nýta sér hlunnindi
geta fengið umsóknareyðublöð
og nánari upplýsingar þar.
Veiðistjóri mun á næstu dögum
senda skotleyfishöfum bréf með
upplýsingum um veiðikortin
ásamt umsóknareyðublaði. en
auk þess hafa lögreglustjórar
þegar fengið send umsóknar-
blöð til dreifingar.
I samræmi við lögin kveður
reglugerðin jafnframt á um að
þeir sem stundi veiðar skuli
skila veiðiskýrslu til veiðistjóra
þar sem skráð er eftir tegundum
öll veiði síðasta veiðiárs, sem
telst vera frá 1. janúar til 31.
desember. Skýrslum ber að
skila við endumýjun veiðikorta
og er það skilyrði fyrir endur-
nýjun. Rétt er að benda á að
skv. reglugerðinni er óheimilt
að skrá veiði þannig að hægt sé
að rekja saman nafn korthafa
og veiðiskýrslu hans.
Fram til 1. apríl á næsta ári er
þeim sem hafa skotvopnaleyfi
eða eru handhafar veiðiréttar
eða hlunninda gefinn kostur á
að sækja um veiðikort án þess
að fara á námskeið fyrir veiði-
menn. Þeir sem ekki nýta sér
þessa heimild fyrir þann tíma,
svo og nýir skotvopnaleyfis-
hafar, þurfa hins vegar að fara á
hæfnisnámskeið.
8
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1995