Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.04.2017, Side 2

Bæjarins besta - 19.04.2017, Side 2
2 MIÐVIKUdagUr 19. APRÍL 2017 Útgefandi: Athafnagleði ehf., kt. 690715-0740 Afgreiðsla og ritstjórn: Mánagötu 2, Ísafirði, sími 456 4560 Ritstjóri BB og bb.is: Bryndís Sigurðardóttir, 896 9838, bb@bb.is Ábyrgðarmaður: Bryndís Sigurðardóttir. Blaðamaður: Smári Karlsson, 866-7604, smari@bb.is Auglýsingar: Sími 456 4560, auglysingar@bb.is Prentvinnsla: Litróf ehf. Upplag: 2.200 eintök Dreifing: Íslandspóstur. Dreift án endurgjalds inn á öll heimili á norðanverðum Vestfjörðum Stafræn útgáfa: www.bb.is / facebook.com/pages/bbis Önnur útgáfa: Á ferð um Vestfirði ISSN 1670-021X Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið bb@bb.is. Auglýsingar þurfa að berast fyrir kl. 17 á mánudögum fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Sýslumaðurinn á Vestfjörðum Staða skrifstofumanns / innheimtufulltrúa á Ísafirði Laus er til umsóknar staða skrifstofumanns/innheimtufulltrúa á skrifstofu Sýslumannsins á Vestfjörðum á Ísafirði. Um fullt starf er að ræða. Helstu verkefni: Vinna við undirbúning álagningar og innheimtu vanrækslugjalds, sem embættið sér um á landsvísu, almenn afgreiðsla auk tilfallandi verkefna hverju sinni. Sjá má upplýsingar um helstu verkefni embættisins á vef sýslumanna, www.syslumenn.is. Óskað er eftir skipulögðum einstaklingi sem býr yfir góðri almennri tölvu- og íslenskukunnáttu. Nauðsynlegt er að umsækjandi sé jákvæður, þjónustulundaður, eigi gott með samskipti og geti unnið undir álagi. Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf sem fyrst og helst ekki síðar en um miðjan maí nk. Starfskjör fara eftir kjarasamningi ríkisins og SFR - Stéttarfélag í almannaþjónustu. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um. Frekari upplýsingar um starfið veita Jónas Guðmundsson, sýslumaður, netfang jg@syslumenn.is og Helga Dóra Kristjánsdóttir, starfsmannastjóri, netfang hdk@syslumenn.is, bæði í s. 458 2400. Umsóknir ásamt ferilskrá skulu berast embættinu í síðasta lagi 25. apríl nk. annað hvort með pósti eða í ofangreind netföng. Öllum umsækjendum verður tilkynnt þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði ef önnur staða hjá embættinu losnar. Embætti Sýslumannsins á Vestfjörðum var stofnað við sameiningu fjögurra embætta sýslumanna á Vestfjörðum 1. janúar 2015 og er starfssvæði þess allir Vestfirðir. Starfsmenn eru 19 og skrif-stofur þrjár frá og með 1. júní nk. Ísafirði, 5. apríl 2017, Sýslumaðurinn á Vestfjörðum, Jónas Guðmundsson. Úthlutunarnefnd Íbúðalána- sjóðs hefur samþykkt umsókn Ísa- fjarðarbæjar um stofnframlög fyrir leiguhúsnæði. Gísli Halldór Hall- dórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæj- ar, segir að strax verði hafist handa við að undirbúa framkvæmdir. „Það er búið að grófhanna húsið en það verður við Sindragötu 4a, á gamla sláturhúsplaninu. Næsta skref er að fullhanna húsið,“ segir Gísli Halldór. Ísafjarðarbær byggir fjölbýlishús Alls verða 13 íbúðir í húsinu, en tvær þeirra verða seldar á frjálsum markaði. Stofnframlag ríkisins er vegna 11 leiguíbúða. Þar af verða 5 sem ætlaðar eru fötluðu fólki og 6 sem ætlaðar eru fólki undir tekju- og eignamörkum. Stofn- framlagið skiptist í þrennt, 18% er grunnframlag ríkisins, 6% við- bótarframlag vegna markaðsbrests á svæðinu og 4% vegna þeirra íbúða sem ætlaðar eru fötluðum. Alls er stofnframlagið metið á 57 milljónir króna. Að sögn Gísla Halldórs verður húsið byggt af Fasteignum Ísa- fjarðarbæjar. Ekkert hefur verið byggt af íbúðarhúsnæði á Ísafirði í áratug eða meira. „Þetta orðið allt of langur tími og mikil þörf hefur safnast upp,“ segir bæjarstjórinn sem stefnir að því að húsið verði fullbúið á næsta ári. Hér mun húsið rísa. Brúðkaups- afmæli Sunnudaginn 9. apríl áttu þau Þráinn Eyjólfs- son og Gréta Gunnars- dóttir 40 ára brúðkaups- afmæli. Það þótti þeim ekki merkilegt og hafa ekki í hyggju að halda sérstaklega upp á tíma- mótin. Afkomendur og viðhengi þeirra senda þeim þó baráttukveðjur.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.