Bæjarins besta - 19.04.2017, Qupperneq 5
MIÐVIKUdagUr 19. APRÍL 2017 5
180 milljóna króna afgangur
af rekstri Ísafjarðarbæjar
Samkvæmt samanteknum
rekstrarreikningi A og B hluta
Ísafjarðarbæjar var rekstrar-
niðurstaðan jákvæð um 179
milljónir króna en samkvæmt
fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir
um 18 milljóna króna afgangi.
Ársreikningur Ísafjarðarbæjar
fyrir árið 2016 var lagður fram
til fyrri umræðu í bæjarstjórn
fyrir helgi.
„Þarna er um afbragðs góðan
árangur að ræða – á sama tíma
og rík áhersla hefur verið lögð
á að bæta þjónustu við íbúa og
sinna mikilvægum framkvæmd-
um.,“ segir í fréttatilkynningu
Ísafjarðarbæjar.
Skuldaviðmið Ísafjarðarbæjar
er nú komið niður í 114% og
hefur ekki verið lægra frá því
löngu áður en reglur um skulda-
viðmið sveitarfélaga voru settar
árið 2011, en sveitarfélögum er
í dag ætlað að vera undir 150%
í skuldaviðmiði.
Samkvæmt reglum um reikn-
ingsskil sveitarfélaga skiptist
ársreikningur í tvo hluta, annars
vegar er A-hluti, sem er almennur
rekstur – að mestu fjármagnaður
með skatttekjum, hins vegar er
B-hluti sem eru stofnanir í eigu
sveitarfélagsins og eru reknar
sem fjárhagslega sjálfstæðar
einingar. Undir B-hluta fellur
Hafnarsjóður, Vatnsveita, Frá-
veita, þjónustuíbúðir á Hlíf,
Fasteignir Ísafjarðarbæjar, að-
staðan í Funa og fjármögnun
Hjúkrunarheimilisins Eyrar.
Tap vegna Eyrar er um 38
milljónir króna og liggur skýr-
ingin grunnvísitölu sem heil-
brigðisráðuneytið lagði til grund-
vallar leigu hjúkrunarheimilisins
að lokinni byggingu þess. Að
mati stjórnenda Ísafjarðarbæjar
er þessi grunnvísitala óréttmæt
en vísitalan er frá á miðju ári
2015, en öll grunnverð í samn-
ingnum eru frá árinu 2009. Tap
Ísafjarðarbæjar af þessum sökum
vegna framkvæmdarinnar nemur
um 2-300 milljónum króna.
Rekstrarafkoma A hluta var
jákvæð að fjárhæð 130 milljón-
um króna en fjárhagsáætlun gerði
ráð fyrir um 43 milljóna króna
halla. Eigið fé sveitarfélagsins
í árslok nam 1.162 milljónum
króna samkvæmt efnahagsreikn-
ingi, en eigið fé A hluta nam 944
milljónum króna.
Rekstrartekjur sveitarfélagsins
á árinu námu um 4.403 milljón
króna samkvæmt samanteknum
rekstrarreikningi fyrir A og B
hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð
fyrir rekstrartekjum um 4.196
milljónum króna. Rekstrartekjur
A-hluta námu um 3.735 millj-
ónum króna en fjárhagsáætlun
gerði ráð fyrir rekstrartekjum um
3.540 milljónum króna. Munar
þar mestu um að framlag Jöfn-
unarsjóðs var um 160 milljónum
kr. hærra en fjárhagsáætlun gerði
ráð fyrir.
Laun og launatengd gjöld
sveitarfélagsins og stofnana
námu um 2.092 milljónum króna
en starfsmannafjöldi sveitarfé-
lagsins var um 288 stöðugildi í
árslok. smari@bb.is
700 þúsund í
menningarstyrki
Atvinnu- og menningar-
málanefnd Ísafjarðarbæjar hef-
ur afgreitt vorúthlutun menn-
ingarstyrkja. Til ráðstöfunar
voru 700 þúsund krónur. Eft-
irfarandi verkefni hlutu styrk:
Eyþór Jóvinsson, Arnbjörn
– handrit að kvikmynd í fullri
lengd, kr. 50.000,-
Gláma kvikmyndafélag,
Gaman myndahátíð Flateyrar,
kr. 200.000,-
Kvenfélagið Von, Dýrafjarða-
daganefnd, Dýrafjarðadagar
– barnadagskrá, kr. 100.000,-
Listasafn Ísafjarðar, ljós-
myndasýning á verkum Þor-
valdar Arnar Kristmundssonar,
kr. 50.000,-
Byggðasafn Vestfjarða, sýn-
ing á hljóðfærum safnsins,
landsmót harmonikkuunnenda
og útgáfu á geisladisk, kr.
250.000,-
Byggðasafn Vestfjarða, opn-
un sýningarinnar „Ég var aldrei
barn“ í tilefni af 75 ára afmæli
safnsins, kr. 50.000,-
smari@bb.is
Harmonikkusafn Byggðasafnins fékk hæstu úthlutun að
þessu sinni.
Auglýsingasími
bb.is er
456 4560