Bæjarins besta - 03.02.1999, Qupperneq 2
uwz:
Vtgefandi: Ábyrgðarmenn:
H-prent ehf. Sigurjón J. Sigurðsson
Sólgötu 9, 400 ísafjörður Halldór Sveinbjörnsson
•B 456 4560 Ritstjóri:
0456 4564 Sigurjón J. Sigurðsson
Netfang prentsmiðju: Blaðamaður:
h.prent@snerpa.is Hlynur Þór Magnússon
Stafræn útgáfa: Netfang ritstjórnar:
http://www.snerpa.is/bb bb@snerpa.is
Bæjarins Þesta er í samtökum öæjar- og héraðs-
fréttahlaða. Eftirprentun, hijóðritun, notkun Ijósmynda
og annars efnls er óheimil nema heimilða sé getið. L. A
Með bros á vðr
Þegar hinir ríkisvöldu eigendur óveidda fisksins á mið-
unum úti fyrir ströndum landsins ræsa flugskeyti sín til
varnar kvótakerfinu bera varnarflaugarnar oft þrjá stóra-
sannleika til stuðnings sérhagsmunakerfinu, sem þeir telja
sig og sína borna til að sitja að um ókomna tíð.
Fyrsta skeytinu er ætlað að sanna fávísum að fiskveiði-
stjórnunin hafi leitt af sér mikilvæga verndun fiskistofna.
Um þetta eru menn engan veginn sammála. Efasemdarmenn
eru jafnvel meðal þeirra sem neyðst hafa til að taka upp
hanskann fyrir kerfið af einni eða annarri ástæðu. I umræð-
unni um verndun fiskistofna forðast varnarliðið jafnan að
minnast einu orði á það gífurlega magn af fiski sem hent er
daglega aftur í sjóinn vegna þess að menn mega ekki undir
neinum kringumstæðum koma með hann að landi þar sem
þá vofir yfir þeim refisvöndur kerfisins. Menn forðast að
nefna snöru í hengds manns húsi. Eins þegir varnarliðið
þunnu hljóði yfir glæpnum.
Önnur eldflaugin ber með sér smyrsl á sárin sem öfund
hins illa upplýsta fjölda veldur þeim, sem Gróusögurnar
segja að fari með fullar hendur fjár út úr atvinnugreininni
þegar þeir ákveða að hætta og selja kvótann sinn fyrir
smáaura til að eiga til elliáranna.
Þriðja skeytið á svo að taka af allan vafa um hvaðan pen-
ingarnir til kvótakaupa koma: „Því er haldið fram að pen-
ingana hafi þessir menn tekið frá almenningi, því auðlindin
sé sameign þjóðarinnar.” (Tilvísun í blaðagrein fyrir
skömmu síðan) „Eg er sjálfur í útgerð”, sagði greinarhöf-
undur „og hef keypt aflaheimildir. Sá sem fékk mína pen-
inga tók þá ekki af þjóðinni. Hann fékk þá hjá mér. Eg
fékk fyrirgreiðslu í bankanum mínum.”
Það er ekki ný frétt að bankar komi við sögu útgerðar á
Islandi. Til þess eru þeir m.a. og ekki nema sjálfsagt að
þeir styðji við bakið á sjávarútvegi líkt og öðrum atvinnu-
greinum, enda munu þeir hafa gert það um langan tíma og
stundum kannske ótæpilega. í tilvitnaðri grein var þess
hvergi getið hvernig seljandi aflaheimildanna hafði komist
yfír þær. Hafði bankinn hans lánað honum til að kaupa
þær á sínum tíma? Og hann síðan lent í vanskilum og
neyðst til að selja? Yfir höfuð: Hvernig „eignaðist” hann
kvótann?
Kjarni málsins er auðvitað sá að seljendur aflaheimilda
-hlutdeildar í sameign þjóðarinnar- fá þær ókeypis á silf-
urfati stjórnvalda. Eina ómak þeirra er að selja gjöfína
fyrir fjármuni, sem þá hefur áreiðanlega sjaldan dreymt
um að hafa handa á milli. Að peningar til þessara kaupa
komi frá bankanum kemur málinu ekkert við og er einungis
aumlegt yfirklór.
Er nema von að menn taki við slíku ríkisframlagi með
bros á vör. Það er líka eitthvað allt annað en menn eiga al-
mennt að venjast þegar ríkið er annars vegar.
-s.h.
OKD VIKUNNAD
Helga
Það er með mannanöfnin eins og mannfólkið sjálft -
þau geta flust til framandi landa, dvalist þar lengi og verið
nær óþekkjanleg þegar þau koma aftur. Þegar germanskir
menn gengu í bland við Slava í Austurvegi forðum var
nafnið Helga gott og gilt eins og það er enn. Eftir langdvalir
í Garðaríki sneri Helga aftur heim en heitir nú Olga.
Hróbjartur heitir Róbert og þannig mætti lengi telja.
Hitt er svo annað mál, að svín fór yfir Rín og kom aftur
svín. Það eru víst undantekningar frá öllu.
2 MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999
Andey ÍS 440 komin úr lengingu og gagngerri klössun
Burðargetan meira en tvfi-
fnlduð ng skipið eins ng nýtt
Andey ÍS 440 kom frá
Póllandi til heimahafnar í
Súðavík um síðustu helgi
að lokinni lengingu og svo
gagngerum endurbótum, að
heita má að unt nýtt skip sé
að ræða. Andey er í eigu
Hraðfrystihússins hf. Hnífs-
dal og kom inn í fyrirtækið
þegar Frosti hf. í Súðavík sam-
einaðist því.
Skipið var lengt unt 12
metra, sandblásið allt hátt og
lágt, innandekks og utan, og
síðan að sjálfsögðu ntálað upp
á nýtt. Vélbúnaður var endur-
nýjaður að verulegu leyti og
settar voru í skipið nýjar 35
tonna rafdrifnar togvindur frá
Ibercisa. Lestin vareinangruð
sérstaklega fyrir kör. Nýr
ásrafall var settur í skipið og
aflstýribúnaður sem gerir
kleift að samkeyra ásrafal og
rafal hjálparvélar, eins og nú
er farið að tíðkast í skipurn til
að aukaaflið út í skrúfu. Kæli-
kerfi aðalvélar var allt endur-
nýjað. Verulegar endurbætur
voru gerðar á vistarverum
áhafnar, eldhúsi og stakka-
geymslum, og borðsalur
stækkaður og innréttaður upp
á nýtt. Hér mun þó ekki allt
upp talið.
Kostnaður við þessar frarn-
ísafjörður
Leki á trún-
aðarmálum
fráfelags-
málanefnd?
Laufey Jónsdóttir, for-
maður félagsmálanefndar
Isafjarðarbæjar, greindi
frá því á fundi nefndar-
innar fyrir skömrnu, að
henni hefði borist til
eyrna, að á fundi bæjar-
stjórnar hefði ótilgreindur
bæjarfulltrúi sagt í ræðu-
stól, að hugsanlega hefðu
trúnaðarmál lekið frá fé-
lagsmálanefnd.
I bókun segir að nefndin
líti mál þetta „mjög alvar-
legum augum“ og var
ák veðið að óska eftir fundi
með viðkomandi bæjar-
fulltrúa til að ræða um-
mæli hans.
Skáiavík
Landsmnt í
júlímánuði
Ráðgert er að halda
Landsmót unglingadeilda
Slysavarnafélags íslands
í Skálavík dagana 8.-11.
júlí í sumar.
Leitað hefur verið til
landeigenda í Skálavík
eftir leyfi til afnota af
svæðinu. Bæjarsjóður
Bolungarvíkur á þar
stærstan hluta en að öðru
leyti er landið í einkaeign
í mörgunt litlum pörtum.
Bæjaryfirvöld hafa tek-
ið vel í þessa málaleitan.
Bolungarvík
Sigrdn ráðin
Sigrún GerðaGísladótt-
ir hefur verið ráðin hjúkr-
unarforstjóri við heilsu-
gæslusvið Heilbrigðis-
stofnunar Bolungarvíkur.
Hún tók við starfinu nú
um mánaðarmótin.
Aftciri röð: Gamlingjarnir Magnús, Veigar, Pétur, Guðjón, Halldór, Guðni, Kristinn, Gísli
og Róbert. Fremri röð: Guðjón framkvœmdastjóri KFI og glötuðu snillingarnir Jón,
Örnólfur, Gautur, Lúðvík, Gunnar og Albert. Reyndar hefur Gautur ekki ennþú aldur til
þess að komast í lið gamalmenna en það œtti að lagast með tímanum.
Fyrsta jarntefli sfigunna
Síðasta helgi var mikil
körfuboltahelgi hjá KFI, bæði
hjá konum og körium og allt
fráhinumyngstu leikmönnum
til hinna elstu.
KFI-stelpurnarfengu tvölið
í tilefni af opnun Ijós-
myndasýningar sem helguð
er þýska rithöfundinum og
leikstjóranum Bertolt Brecht
(1898-1956) verður þýskt
kvöld á Hótel Isafirði á
föstudagskvöldið. Þar verð-
ur boðið upp á þýskt hlað-
borð ásamt skemmtiatrið-
unt og menningarefni sem
tengist Brecht.
Sif Ragnhildardóttir flytur
lög eftir Brecht og nernend-
ur í Framhaldsskóla Vest-
fjarða lesa úr verkunt hans.
Þýska sjónvarpsstöðin Arte
verður á staðnum ásamt
fólki frá sendiráði Þýska-
lands og Goethe Zentrum í
Reykjavík.
Meðal rétta á hlaðborðinu
í heimsókn á Torfnesið. Þær
unnu Borgnesinga 43-42 eftir
hnífjafnan leik en töpuðu með
ellefu stiga mun fyrir efsta
liðinu í deildinni, Tindastóli,
46-57.
verða þýskar pylsur, reykt
svínakjöt, síld, schnitzel,
kjötbollur, Sauerkraut,
kartöflusalat, kartöfluklattar,
cplamauk, berlínarbollur,
eplastrudel, þýskur bjór,
þýsk vín og margt fleira.
Kvöldverðurinn hefst kl.
19 en dagskráin kl. 21.
Matargestir hafa forgang í
bókanir.
Meðal þekktustu verka
Brechts má nefna leikritið
Túskildingsóperuna, en Kurt
Weill samdi tónlistina við
það og fleiri verk Brechts.
Leikritin Mutter Courage og
Góða sálin í Sesúan hafa
einnig verið þýdd á íslensku
og flutt í Þjóðleikhúsinu.
Meistaraflokkurgerði góða
Karfan
Nýr liðs-
maður KFÍ
KFÍ hefur bæst nýr iiðs-
maður, Ray Carter, sem er
enskur landsliðsmaður,
1,90 áhæð.
Hann var kominn til
landsins en beið eftir fyrsta
flugi vestur þegar þetta var
ritað í gær. Carter er hrein
viðbót hjá KFÍ því að eng-
inn er að hætta í liðinu.
Reyndar hefur ekki tíðk-
ast þar á bæ að reka leik-
menn eins og mjög algengt
er hjá öðrum íslenskum
körfuboltafélögum.
Vestfirðir
Listi Sam-
fylkingar
kynntur
Listi Samfylkingar á
Vestfjörðum verðurkynnt-
ur á opnun fundi á Hótel
ísafirði nk. sunnudag kl.
17.
A fundinum munu fram-
bjóðendur flytja ávörp,
svara fyrirspurnum og taka
þátt í umræðum. Boðið
verður upp á tónlist og
upplestur rnilli atriða.
Skattframtöl
Framtalsaðstoð einstaklinga. Önnumst
einnig færslu virðisaukabókhalds og fram-
talsgerð rekstraraðila og minni fyrirtækja.
Bjarni K. Jóhannsson, Guðrún K. Guð-
mannsdóttir, Hafraholti 46, ísafirði, símar
456 4176 og 894 2433.
Hótei ísafjörður
Þýskt menningarkvöld