Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.02.1999, Síða 3

Bæjarins besta - 03.02.1999, Síða 3
Andey ÍS-440 í heimahöfn í Súðavík. kvæmdir allar var liðlega hundrað milljónir króna. Ekki liggur fyrir nákvæmur samanburður á mælingu fyrir og eftir lengingu. Samkvæmt gömlu mælingunni var skipið 211 tonn en er nú 596 brúttó- tonn samkvæmtnýju rnæling- unni. Stækkunin er því mjög veruleg, enda var metrunum tólf bætt í skipið þar sem það er breiðast og rýmið mest. Að sögn Ingimars Halldórs- sonar útgerðarstjóra Hrað- frystihússins hf. fer Andey á veiðar á ferskri rækju og land- ar í Súðavík. „Við veiðurn hana bara þar sem hún finnst - það er ekki flóknara en svo!“ sagði Ingimar. Það verður þó hér á íslandsmiðum, enda er skipið ekki með frystibúnaði oggeturþvíekki sóttáfjarlæg mið. Ingimar Halldórsson útgerðarstjóri Hraðfrystihússins hf, Konráð Jakobsson fram- kvœmdastjóri, Jónatan Ásgeirsson skipstjóri á Andey og Einar Valur Kristjánsson stjórnarformaður Hraðfrystihússins hf á kajanum í Súðavík. „Gömlu mennirnir“ hressa sig á snittum eftir leikinn. Frá vinstri: Hinir brottfluttu Lúðvík Jóelsson og Albert Guðmundsson („Lost Boys“ - mœtti ekki nefna þá glataða snillinga?) og heimamennirnir Pétur Guðmundsson og Guðjón Höskuldsson („Old Boys“ eða gamlingjar). |r í RörfubPlta? ferð til Stykkishólms og vann Snæfell með átta stiga mun, 69-77. Yngstu krakkarnir voru í Reykjavík og léku þrjá leiki, sem allir töpuðust með litlum mun. Gamlingjalið KFÍ („Old Boys“) fékk brottflutt gamal- menni („Lost Boys“) í heim- sókn til ísafjarðar og var það hnífjafn og skemmtilegur leikur sem endaði með jafn- tefli, 63-63. Jafntefli er annars ekki til í körfubolta en það var látið gilda í þetta sinn. Myndin er tekin um síðustu helgi, rétt áður en endar náðu saitian í Sundahöfn. landvinmngar í Sundaluifn Fyrir fáum dögum var takar frá Sauðárkróki önnuð- ætlunin að dæla um hundr- lokið við grjótgarð í Sunda- ust gerð garðsins. að þúsund rúmmetrum af höfn á ísafirði, sem á að Innantíðarverðurbryggju- efni úr Sundunum inn fyrir verða ytri mörk nýrra land- kanturinn í Sundahöfn lengd- téðan garð á einhverju ára- vinninga á svæðina Verk- ur um 75 metra en síðan er bili og búaþar til landrými. Myrkurflug um ísafjaröarflugvöll? Hreyfing virðist kornin á undirbúning þess, að hægt verði að stunda áætlunar- flug um Isafjarðarflugvöll þótt myrkur sé, en það er langþráður draumur og baráttumál margra ísfirðinga. Fyrr í vetur var komið upp fjórum leiðarmerkjum á Eyr- arhlíð og Seljalandsmúla. Fyrir skömmu kom vél Flug- málastjórnar vestur og prófaði aðstæður f myrkri. Reyndar stóð til að gera það í fyrra, en ekki varð af því þá af ein- hverjum ástæðum. Skátar voru fengnir til að lýsa upp leiðarmerkin og tlóðlýsa háls- inn framan við Kubbann. Vélin fór nokkrar ferðir um völlinn í báðar áttir og er ekki vitað annað en það hafi gengið mjög vel. Það er afar brýnt, að vænt- anlegir frambjóðendur til Alþingis í vor hafi þetta mál í huga og fylgi því í höfn. Eftir því mun verða tekið, hvernig menn standa sig í því efni. ísafjörður Rekstur Eló endur- skipulagður Starfsfólki verslunarinnar Eló á Skeiði á Isafirði hefur verið sagt upp störfum auk þess sem leigusamningi um verslunarhúsnæðið hefur verið sagt upp. Eigendur EIó staðfestu þetta í samtali við blaðið í gær. Þeir tóku jafnframt fram að verið væri að endur- skipuleggja reksturinn og að þessar aðgerðir þýddu engan veginn að þeir myndu hætta verslunarrekstri í Ljóninu. Uppsagnirnar taka gildi eftir þrjá mánuði. Auk verslunar í Ljóninu reka Eló-menn verslanir við Silfurtorg og í Hnífsdal. Hæstiréttur dæmir Básafeii hf. tii að greiða fimm miiijónir króna í skaðabætur Útgerðarfðagið Barð fdkk ekki nodð nðbátaraflahliitdeadar Hæstiréttur hefur dæmt Básafell hf. til að greiða Barði ehf. tæpar 5 milljónir króna í skaðabætur vegna þess að síð- arnefnda félagið fékk ekki notið viðbótaraflahlutdeildar á grundvelli laga nr. 105/1996 um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða. Barð hafði árið 1994 selt Eyrasparisjóði endurnýiunar- rétt bátsins ísborgar BA, sem hafði farist skömmu áður, og var tekið fram í afsalinu að honum fylgdu engar veiði- heimi ldir, en aflahlu tdei ld bát- sins hafði Barð flutt yfir á annan bát í sinni eigu. Sfðan heimilaði Barð sparisjóðnum að nýta endurnýjunarrétt bát- sins á togarann Hafrafell IS, sem er í eigu Básafells. Með fyrrgreindum lögum var lögfest heimild til að út- hluta viðbótaraflahlutdeild til skipa sem stundað höfðu línuveiðar á ákveðnum tíma- bilum, enda kæmi viðbótin í stað línutvöföldunar. Á grund- velli lagabreytinganna var Hafrafelli úthlutað viðbótar- aflahlutdeild sem grundvall- aðist á aflareynslu ísborgar. Þegar Básafell hf. neitaði að viðurkenna rétt Barðs til afla- hlutdeildarinnar krafðist síð- arnefnda fyrirtækið skaða- bóta. Hæstiréttur taldi Barð ehf. eiga réttmætt tilkall til við- bótaraflahlutdeildarinnar, þrátt fyrir að félagið ætti ekki fiskiskip þegar hún kom til úthlutunar og því hefði félagið bersýnilega orðið fyrir tjóni. Var því Básafell dæmt til að greiða bætur sem svöruðu til gangverðs aflahlutdeildarinn- ar í viðskiptum, eða kr. 4.988.284 með dráttarvöxt- um. Auk þessa var Básafell dæmt til að greiða stefnda, Barði ehf. kr. 600 þúsund í málskostnað. MIÐViKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999 3

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.