Bæjarins besta - 03.02.1999, Side 8
Bolvíkingar á heimave
um hvítabirnina á Grs
- þar sem menn fara í róður á hundasleðum og veiða grálúðuna
upp um ís og lifa á maddaki þangað til næsta skip kemur í júlí
s
Olafur Sigurðsson er liðlega þrítugur
Bolvíkingur, sem hefur að mestu alið
aldur sinn á sjó, lengst af á Júlíusi
Geirmundssyni sem háseti og eitthvað
sem annar stýrimaður, en er nú kominn
í land - Grænland. Hann starfar þar
sem framleiðslustjóri eða verklegur
framkvæmdastjóri frystihúss í litlum
bæ sem heitir Kuummiut, innst í Ang-
magssalikfirði á austurströndinni,
þráðbeint í vestur frá Bolungarvík.
Fyrirtækið sem hann vinnur hjá heitir
Nuka A/S, dótturfyrirtæki Royal
Greenland. Nuka er grænlenska og
þýðir litli bróðir eða litla systir og er
þar átt við skyldleikann við Royal
Greenland. Segja má, að á hvítabjarna-
landinu Grænlandi sé Bolvíkingurinn
Olafur Sigurðsson á heimavelli. Hann
er bróðursonur Jóns Péturssonar skip-
/
stjóra á Guðnýju IS, sem frægur er af
því að vinna hvítabjörninn ásamt
skipshöfn sinni hér um árið.
8 MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999
Sjómennskan á þessum
slóðum er með nokkuð öðrum
hætti en Vestfirðingar eiga að
venjast. A vetrum sækja menn
t.d. sjóinn á hundasleðum og
veiða grálúðuna upp um ís.
Engin þörf er að ísa aflann á
leiðinni heim því að hann
beinfrýs af sjálfu sér. Ahöfnin
ereinn maðurog tíu-tólfhund-
ar. Frá farkostum þessum berst
ekki annað vélarhljóð en gelt.
Eftir ísa brot á sumrin róa
menn hins vegar á smábátum.
Sumir þeirra eru upp í tíu
tonna plastbátar. Aðrir eru allt
niður í jullur eða fyrrverandi
árabáta með fjögurra hestafla
vélar og minna óneitanlega á
upphaf vélbátaaldar í Bolung-
arvík fyrir nærri hundrað ár-
um. Aflið í sleðunum er að
sjálfsögðu mælt í hundöflum
en ekki hestöflum.
Kuummiut er um 400
manna bær eða á stærð við
sjávarþorpin á Vestfjörðum.
Þar eru eintóm „spýtuhús“
eins og sagt er hér fyrir vestan
og í fæstum þeirra er rennandi
vatn. Ekkert bíó, enginn
skemmtistaður. Þar er hins
vegar einn bar í húsi sem
minnir helst á samkomuhúsið
á Flæðareyri í Jökulfjörðum.
Tvö vatnsklósett eru í bæjar-
félaginu. Bæjarbúum þykir
gott að fá sér í staupinu mörg-
um hverjum en þá nota þeir
að vísu hvorki staup né glös.
Nuka A/S yfirtók ekki alls
fyrir löngu reksturinn á 29
fiskfabrikkum í eigu Royal
Greenland víðsvegar á Græn-
landi. Nuka er undir stjórn
íslensks framkvæmdastjóra,
Gunnars Braga Guðmunds-
sonar, sem ráðinn var af Roy al
Greenland. „Hann er alveg
einstakurmaður“, segirOlafur
Sigurðsson.
Kom heim til
að skipta um föt
Olafur hefur nú verið í
Kuummiut í þrjá mánuði og
kom snögga ferð heim til að
fara í sturtu og skipta um föt
og opna póstinn. Tildrög þess
að hann fórtil Grænlands voru
þau, segir hann, „að karl faðir
minn fluttistþarnaútfyrirtæp-
um tveimur árum. Eg var eitt
sinn með honum á ferðalagi
frá Islandi og yfir til Nuuk á
vesturströndinni og þá hittum
við Gunnar Braga í stutta
stund í flugstöðinni í Kulusuk.
Ólafur Sigurðsson.