Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.02.1999, Qupperneq 8

Bæjarins besta - 10.02.1999, Qupperneq 8
Keppt var um Grænagarðsbikarinn í svigi í Tungudal sl. sunnudag. í flokki karla 15 ára og eldri voru í keppendur sjö og luku sex þeirra keppni. Sig- f urvegari varð Hávarður Olgeirsson, í öðru sæti : varð Stefán Þór Ólafs- : son og f þriðja sæti varð f Eiríkur Gíslason. Tveir keppendur voru í kvennaflokki 15 ára og eldri og lauk : annar þeirra keppni, : Elín MartaEiríksdóttír. j Einnig voru tveir kepp- endur í flokki 13-14 ára: stúlkna.AldísTryggva- dóttir sigraði en Guðný Ósk Þórsdóttir var ekki langt á eftir. Bikarmót Skíða- sambands íslands þar : sem 15 ára og eldri keppa í svigi og stór- svigi verður haldið í ; Tungudal dagana 14. j og 15. febrúar. Keppni hefst báða ; dagana kl. 31:30. ísfirðingar sigursælir ísfirðingar áttu sig- urvegara í átta af fjórt- án keppnisflokkum á : Bikarmóti Skfðasam- bands íslands scnt j haldiðvaráísafirðium ; fyrri helgi. í göngu með het'ð- bundinni aðferð áttu ís- firðingar fjóra sigur- ; vegara af sjö. í 5 km göngu stúlkna 15-16 ára sigraði Sandra Steinþórsdóttir. í 7.5 km göngu drengja 15- j 16 ára sigraði Jakob Einar Jakobsson, f 10 j km göngu pilta 17-19 I ára sigraði Ólafur Th. Árnason og í 7,5 km göngu kvenna 16 ára og eldri sigraðí Stella Hjaltadóttir. í göngu með frjálsrí ; aðferð sigraði Katrín Árnadóttir í flokki 15- 1 ISSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSM 16 ára, í 5 km göngu drengja 15-16 ára stgr- aði Jakob Einar Jak- obsson, í 10 km göngu pilta 17-19 ára sigraði ÓlafurTh. Árnason og j göngu kvenna sigraði ; Stella Hjaltadóttir. Jónína Ó. Emi/sdóttir, aöstoðarskólastjóri skrifar Skipulag lestrarkennslu Eins og allir vita er góð lestrarkunnátta lykill að góð- um námsárangri. Það sem ein- kennir lestrarnám umfram annað nám er sú mikla þjálfun og endurtekning sem á sér stað. Það er með lesturinn eins og íþróttir - hann krefst stöð- ugrar þjálfunar á ákveðnu stigi lestrarferilsins til þess að skila þeim árangri sem við setjum okkur. Hvað varðar lestrarnám nemenda verður samstarf heimila og skóla aldrei ofmet- ið. Samstarfið krefst tíma og vilja, ekki aðeins á meðan barnið er á fyrstu árum grunn- skólagöngu sinnar, heldur einnig, og ekki síður, á seinni stigum hennar. Það að fylgjast náið með árangri eykur metn- að nemenda, kennara og for- eldra. Það stuðlar að skjótari framförum nemandans í lestri og annað nám verður auðveld- ara og ánægjulegra. Veturinn 1996-1997 var staða lesturs og lesskilnings til endurskoðunar í 1 .-10. bekk Grunnskólans á Isafirði, í þeim tilgangi að gera lestrar- nám nemenda markvissara og samfelldara og bæta námsár- angur nemenda. Þann vetur fólst aðalvinnan í því að safna gögnum og kanna fyrirkomu- lag lestrarkennslunnareins og hún var. Ut frá þessurn gögn- um ásamt viðtölum og vinnu með kennurum voru markmið lestrarkennslunnar ákveðin í hverjum árgangi, leiðir til að nálgast þau settar fram og staðan metin, bæði til skemmri og lengri tíma litið. Kom í ljós að of lítil áhersla var lögð á lestur eftir 4. bekk og áherslan var einkum á raddlestur. Almennt er talið að nemendur eigi að vera orðnir læsir við 10 ára aldur og eru það flestir. Þó á hluti nemanda (um 10%) við mikla lestrarörðugleika að etja og þeir nemendur þurfa sérstaka aðstoð. Þegar við prófuðum nem- endur á unglingastigi í lestri kom hins vegar í ljós að tölu- vert stærri prósenta náði ekki tilteknum lágmarksatkvæða- fjölda á mínútu. I lesskilnings- prófinu kom einnig fram ónógur skilningur á lesefninu. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að stór hópur nemenda las mjög lítið t.d. sögubækur eða annað lesefni. Um leið og eftirfylgni á lestri í skólanum minnkar, og þá að sama skapi eftirfylgni heima, dettur lestr- arhraðinn niður og lesskiln- ingur ásamt orðaforða fylgir með. Þörf var á endurbættu skipulagi til að auka lestrar- færni nemenda, sérstaklega á mið- og unglingastigi. En hvernig? Hvað getur skólinn gert og hvað geta foreldrar gert? Hvað er hægt að gera til að virkja nemendur á mið- og unglingastigi? Jú, lestrarefnið verður að höfða til þeirra, það þarf að vera mátulega þungt, Jónína Ó. Emilsdóttir. áhugavekjandi, markvisst og fjölbreytt. Þörf var á að leggja oftar fyrir reglulegar kannanir á lestrarfærni nemenda og kennsla síðan byggð á þeim könnunum. Þeir nemendur sem grunur leikur á að séu með dyslexíu eða mikla lestr- arörðugleika þurfa að fá nán- ari greiningu og aðstoð í fram- haldi á því. Lestrarskipulagið hófst svo skólaárið 1997-1998. Skipu- lagið fólst m.a. í því að fjölga hraða- og lesskilningsprófum frá 2. og upp í 10. bekk. Jafn- framt var aukin áhersla lögð á lestur á miðstigi og efsta stigi grunnskólans. I 9. bekk var haldið hraðlestrarnámskeið og nefnist námsefnið „Lestu nú". Það er svipað að upp- byggingu eins og námsefnið „Lestu betur" en það er kennt á framhaldsskólastigi. Þessi námskeið gefast mjög vel og eru dæmi þess að nemendur sem nú eru í 10. bekk hafi margfaldað lestrarhraða sinn. Mun þetta verða fastur liður í námi 9. bekkjar framvegis en námskeiðið nær yfir 6 tíma á viku í fjórar til fimm vikur. Eru allir íslenskutímar ár- gangsins teknir í lestrarátakið á því tímabili. Þó að foreldrar komi ekki mikið nálægt þessu námsefni, þá er engu að síður nauðsyn- legt að þeir fylgist með og hvetji börnin sín. Foreldrareru lykilpersónur og gegna afar mikilvægu hlutverki í lestrar- námi barna sinna. Börnin þurfa á öllum ykkar liðstyrk að halda til þess að viðunandi árangur náist. í öllu þessu ferli og í öllum bekkjum grunn- skólans verða foreldrar að að- stoða börn sín við lesturinn og fylgast náið með árangri þeirra. Það að hvetja börnin og hrósa þeim ef vel gengur er nauðsynlegt. Ef foreldrar lenda í erfiðleikum og vantar ráðleggingar þá er besta ráðið að hafa samband við umsjón- arkennara og/eða sérkennara um aðstoð. Með sameiginlegu átaki kennara og foreldra við að virkja nemendur í lestri með öllum ráðum og dáðum í öll- um bekkjum grunnskólans munum við geta aukið lestrar- færni nemenda og um Ieið minnkað lfkur á að þeir lendi í lestrarerfiðleikum. r~ ^ Raöleggingar til foreldra barna, sem eiga i lestr- arerfiðleikum * Gott er að foretdrar setji upp tímatöflu í samráði við bamið, þar sem tíminn er valinn til að læra og lesa, þannig að hægt sé að minna á tímann. * Nauðsynlegt er að lesa reglulega með barninu. rninnst fitnm sinnum í viku. * Mikilvægi er að sitja við hliðina á barninu í ró og næði. Lestur á að vera hlý og notaleg reynsla. * Gott er að skoða mynclir og spá í efnið út frá þeim, áður en byrjað er að lesa. * Gotteraðhrósaoft, jafnvel þótt það virðist vera fyrir I íti lræði. H-vnamínið er mikil- vægt, sérstaklega þegar barnið les erfið orð, leiðréttir sjflft viilu eða les heilar setningar rétt. * Oft er erfitt að fmna bók fyrir börn með lestrarörðug- leika, sern höfðar til áhuga þeirra og löngunar til að lesa. Gott e r að lesa þá ti 1 s kipt i s eða að báðir lesi saman. * Mikilvægt er jat'nframt að stuðla að sjálfstæði og ábyrgð barnsins í Iestri og stýra ekki verkínu frá a til ö eða fram kvæma fyrir barnið. * Barnið á helst að benda sjálft á orðið um ieið og það les. Sum börn vilja það ekki og fara þess vegna línuvillt og orðavillt. Gotter að setja blýant við upphaf þeirrar línu sem barnið er að lesa. Þegar barnið er að lesa síðasta orðið í línunni færir þú blýantinn niður að næslu línu. Reyndu þetta áður én þú tekur á þíg ábyrgðína á vcrkinu og bendir sjálf/sjálfur 'yá orðið.________________J - Jónína Ó. Emilsdóttir, aðstoðarskólastjóri Grunn- skólans á Isafirði. HaHdór Hermannsson á ísafirði skrifar Djúpbáturinn Fagranes Nú hefur það verið gert heyrinkunnugt, að rekstur bílaferjunnar Fagraness verði hætt í vor að öllu óbreyttu, takist ekki með einhverjum hætti að bæta fjárhagsstöðu Hf. Djúpbáts- ins. Mér þykja þetta slæm tíð- indi fyrir fbúa ísafjarðarbæj- ar og nágrennis og enn ein sönnun hnignunar byggðar- lagsins. Það verður að segj- ast eins og er, að áhugi al- mennings er hvergi nærri nógur að nýta sér þennan þægilega flutningsmáta á bifreiðumogfólki. Segjamá að það sé einungis íjóra mánuði ársins sem notkun skipsins er með viðunandi hætti. Skammur tími er lið- inn frá því að lagður var mikill kostnaður og fyrir- höfn í að koma þessuin ferðamöguleika á fyrir íbúa svæðisins. Má þar nefna tvær ferjubryggjur, á Isafirði og Arngerðareyri, sem bíða þess eins að safna fugladriti í framtíðinni. Vert er að skoða þetta dæmi nánar. Fólki sem vinn- ur á vegum hins opinbera er borgaður svokallaður ríkis- taxti fyrir að aka á eigin bifreið ef starf þess útheimtir það. Rúmar 35 krónur munu vera borgaðar á hvern ekinn km á malbikuðum vegi en um 40 kr. pr. km á malarvegi. Þarna er tekið tillit til aksturs, bens- íns og viðhalds á bifreið. Frá ísafirði til Arngerðareyrar, landveg, munu vera um 178 km. Margfaldað með 35 kr. á kílómetra gerir það kr. 6.230,. Bíferjufarið kostar ökumann- inn kr. 3.000,- en kr. 500 bæt- ast við ef um farþega er að ræða. Þó að fólki tinnist það taki minnaíbuddunaaðkeyra landveginn, þá er það einfald- lega rangt þegar allt er reikn- að. Skoðum nú næst þægindi og öryggi. Ef við tökum dæmi af venjulegu fólki sem óvant er að key ra bíl í langkey rslum, þá er það samdóma álit þeirra sem að ferðast með ferjunni um Djúp, að það sé ólíkt léttari ferðamáti og afslappaðri á leiðinni til Reykjavíkur, held- ur en að krækja inn og út alla fírði í misjafnri færð. Svo ekki sé nú talað um hálkuna sem ermeiraog minna viðvarandi ávetrumáDjúpveginum. Þeir sem undanfarið hafa verið að týna lífinu í bifreiðaslysum hér á landi hafa flestir farið á hálku, enda þótt að við hér vestra höfum verið svo heppin að sleppa mikið frá hálkuslys- um það sem af er. Nú fyrir skömmu hafa stjórnvöld gefið það út, að nú skuli efla og styrkja dreifbýlið með því að byggja hin svo- kölluðu menningarmusteri á nokkrum stöðum á lands- byggðinni. Þetta mun verða einhverra milljarða dæmi. Margir hugsa gott til þessara framkvæmda. Hins vegar eru mj ög dei ldar mei ni ngar meðal fólks um það með hvaða hætti þetta kemur til með að stöðva fólksflóttann úr héruðunum. Fagranesið hefur hlotið ríkis- styrki til reksturs síns þótt hann sé tiltölulega lítill miðað við rekstur annarra flóaskipa og ferja. Eg myndi vilja, mætti ég ráða, að menningarhöllin yrði höfð örlítið ódýrari í byggingu og peningar sem við það spöruðust nýttir til að styrkja bílaferjuna okkar meira, þannig að hún mætti nýtast okkur í einhver ár til viðbótar, a.m.k. þar til vegur- inn um Djúp er orðinn styttri með brú yfir Mjóafjörð eins og fyrirhugað mun vera ásamt því að klárað væri að leggja bundið slitlag á allan Djúp- veginn. Nú er talið að ferðamanna- þjónustan sé sá atvinnuvegur landsmanna sem á einna mesta framtíð fyrir sér og vaxtarmöguleika. Það er því kaldhæðnislegt, að nú skuli ísfirðingar ætla að horfa á það með hendur í skauti að einn af máttarstólpum ferðaþjón- ustunnar, Fagranesið, skuli hverfa héðan úr byggðarlög- um við Djúp. Hverjum ætlum við svo að telja trú um að hér sé verið að byggja upp til að taka á móti ferðamönnum? Var einhver að hlæja? Fyrir tveimur árum síðan hóf íslandsflug reglubundnar ferðir til Isafjarðar. I kjölfar þeirrar samkeppni sem þá skapaðist lækkuðu flugfar- gjöld verulega á leiðinni milli ísafjarðar og Reykjavtkur. Rúmu ári síðar lagði Islands- flug þessar ferðir niður. Við það hækkuðu flugfargjöld öll á ný. Forráðamenn Islands- Halldór Hermannsson. flugs gáfu það út, að Isfirð- i ngar hefðu sýnt þessu fram- taki þeirra hið mesta tómlæti. Samt sem áður varð mörgum manninum illa við þegar þessi ferðamöguleiki aflagðist. I vor um mánaða- mótin maí-júní geri ég ráð fyrir því að mörgum mann- inum þyki miður þegar Fagranesi ð hættir, eða er öll- um að verða sama um hvernig allt velkist hér til hnignunar? I Noregi er byggðarlag þar sem íbúar bitu í skjaldar- rendur til þess að vinna sig út út erfiðleikum og hnignun með því að vinna saman allir sem einn. Þeim er nú að takast að sigrast á erfiðleik- unum; þar er nú allt á upp- leið. Er svo stutt á milli fjall- anna hér á Isafirði að þau þrengi að hugsanagangi fólks? Mér hefur stundum flogið það í hug. - Halldór Hermannsson. 8 MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRUAR 1999

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.