Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.02.1999, Blaðsíða 12

Bæjarins besta - 10.02.1999, Blaðsíða 12
12, febrúarkl. 20,00 íþróttahúsinu Torfnesi FRÍTTABIAO A VtSTFJBRÐUM besta Stofnað 14. nóvember 1984* Sími 456 4560 *Fax 456 4564 • Netfang: bb@snerpa.is • Verð kr. 200 m/vsk 12. febrúarkl. 20.00 íþróttahúsinu Torfnesi Önundarfjörður Banashfs á brú Kona á fertugsaldri lést í umferðarslysi er bifreið sem hún var farþegi í lenti í árekstri við litla hóp- ferðabifreið á einbreiðri brú yfir Vaðal í Önundar- firði um kl. 16.30 á föstu- dag. Konan var barnshaf- andi, komin um sjö mán- uði á leið. Ekki tókst að bjarga lífi barnsins. Ökumaður fólksbifreið- arinnar, sambýlismaður kon- unnar, slasaðist talsvert en áverkar hans eru ekki taldir lífshættulegir. Einn farþegi var í hópferðabifreiðinni, en hvorki hann né ökumaður bifreiðarinnar hlutu áverka. Tildrög slyssins eru óljós en veður var með ágætum er slysið varð. Konan sem lést var búsett á Þingeyri. Frá slysstað á brúnni yfir Vaðal í Önundarfirði á föstudag. ísafjöröur r Agúst og Flosi ehf. kaupir Naglann Verktakafyrirtækið Agúst og Flosi ehf. á Isafírði hefur keypt rekstur verktakafyrir- tækisins Naglans ehf. á ísafirði og tekið við þeim verkum sem Naglinn hafði með höndum. Stærst þeirra verka er við Kaþólsku kirkjuna við Mjallargötu. Starfsmenn Naglans eru jafnframt komnir til starfa hjá Agústi og Flosa. Hins vegar er það ekki rétt, sem flogið hefur fyrir, að Agúst og Flosi hafi einnig keypt rekstur Trévers sf., þótt annar eigenda þess sé kominn til starfa hjá þeim. Kökur með kertí á ársafmæli Sólborgar Haldið var upp á eins árs afmæli leikskólans Sólborgar á Torfnesi á Isafirði með friðsælum og kyrrlátum hætti. Skólinn var vígður 1. febrúar á síðasta ári. I tilefni afmæl- isins fengu öll börnin litla köku með kerti. Um þessar mundir eru börnin á Sólborgu 126 talsins á aldrinum frá eins árs og upp í sex ára. Starfsfóikið er alls liðlega þrjátíu „hausar“, en margir af þeim eru í hlutastörfum. Leik- skólastjóri á Sólborgu er Ingigerður Stefánsdóttir. Fyrrverandi fíaggskip ísfirðinga Guðbjörgin seld úr landi Samherji hf. á Akureyri hefur ákveðið að selja tog- arann Guðbjörgu IS 46 til Þýskalands og verður skip- ið afhent í næsta mánuði. Kaupandi er Deutsche Fischfang Union, sem er að mestu leyti í eigu Samherja. Ahöfn skipsins hefur verið sagt upp. Eftir að Guðbjörgin komst í hendur Samherjamanna hafa tilfæringar með skráningu á henni vakið nokkra athygli. Þegar skipið kom síðast til Isafjarðar fyrr í vetur var það aftur komið með einkennis- stafina ÍS 46. Hins vegar hefur skipið ekki lagt upp á Isafirði undanfarin misseri. IimUHMM FYRIR FROSTINU! Nutrí-Síar kuldakremið frá Dior komið aftur NONAME varagloss virka vel í kuldanum StlftiÍM SMt”1 Hafnarstræti 9 • ísafirði Sími 456 5280 /// SAMKAUP OPIÐ: Virka daga kl. 09 - 21 Laugardaga kl. 10 -18 bæklingurinn kemurl Opið sunnud. 14. feb. frá kl. 13 til 17 Söluskrifstofa • Hafnarstræti 7 Isafirði • Simi 456 5390 Lífeyrisbók - Lífeyrissparnaöur Landsbankans Græddur er geymdur eyrir kh Landsbanki Islands ísafírði - sími 456 3022

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.