Bæjarins besta - 31.03.1999, Blaðsíða 2
TJtgefandi:
H-prent ehf.
Sólgötu 9, 400 ísaflörður
■B 456 4560
O456 4564
Netfang prentsmlðju:
hprent@snerpa.is
Stafræn útgáfa:
http://www.snerpa.is/bh
Ábyrgðarmenn:
Sigurjón J. Sigurðsson
Halldór Sveinbjörnsson
Ritstjóri:
Sigurjón J. Sigurðsson
Blaðamaður:
Hlynur Þór Magnússon
Netfang ritstjórnar:
bb@snerpa.is
Bæjarins Þesta er í samtökumbæjar- og héraðs-
fréttablaða. Eftirprentun, hljóðrltun, notkun ljósmynda
og annars efnis er óheimil nema helmllda sé getið.
Fjörheilagt
Ef fallið er í þá freistni að láta seinnihluta fyrirsagnarinnar
gilda yfír líðandi viku á hún rétt á sér. Heilagleikanum er
þó ekki fyrir að fara fyrr en kemur að hátíðinni í lok
Dymbilviku; Skíðavikan, Skíðalandsmótið og afmælið er
því tengist hafa yfir sér annan blæ. Enda þótt heilagleiki
svífi ekki yfir skíðabrekkum og keppnisbrautum íTungudal
er þess að vænta að drengskapur og sannur íþróttaandi
verði þar í fyrirrúmi. Sextíu ár eru nú síðan Skíðalandsmót
var í fyrsta sinn haldið á ísafirði. Það eru merk tímamót.
Til keppni á Skíðalandsmótinu, sem sett var s.l. mánudag
af forseta fslands, hr. Ólafi Ragnari Grímssyni, eru mættir
bestu skíðamenn landsins ásamt erlendum köppum. Allir
áttu þó ekki hægt um gang til leikja að þessu sinni líkt og
verða vill hjá íþróttafólki þegar eitthvað fer öðruvísi en
ætlað er. Megi þeir sem um langan veg eru komnir til að
etja kappi í skemmtilegri íþrótt eiga góða daga á ísafirði.
Megi dvölin hér verða þeim gott vegarnesti og varðveitast
í sjóði minninga þegar frá er horfið.
Mikið vatn er til sjávar runnið og margt öðruvísi en þeg-
ar fyrsta Skíðalandsmótið var haldið hér. Þá öttu kappi
frístundaíþróttamenn sem svo mætti kalla, fólk er leitaði
til fjalla til útiveru og íþrótta oft að loknum löngum og
ströngum vinnudegi. Landsmótin gáfu þessu fólki tækifæri
til að reyna með sér í íþróttinni. Þá var orðið áhugamaður
enn í orðabók íþróttamanna. Nú er öldin önnur. Nú
skreppa atvinnuíþróttamennirnir okkar í útlöndum heim á
gamla Frón til að sína listir sínar þegar mikið liggur við. A
skíðamótum fyrri tíma voru norrænar greinar, ganga og
stökk, í hávegum. Sá er náði bestum árangri samanlögðum
í þessum greinum hlaut sæmdarheitið „Skfðakóngur
íslands”. Nú stökkva menn ekki lengur á skíðum á lands-
mótum. Og skíðakóngur fyrirfmnst enginn.
Dugnaður fáeinna karla og kvenna vakti Skíðavikuna af
nokkurra ára þyrnirósarsvefni. Sú elja verður aldrei full-
þökkuð. Skíðavikan var og er á ný orðin órjúfandi þáttur
í bæjarlífinu á ísafirði í páskavikunni. Og má aldrei niður
falla.
Snúum okkur þá að hátíðinni í lok vikunnar. Megi
páskahátíðin færa okkur þó ekki sé nema hænufet í þá átt
að við verðum „meðal þjóða þjóð” þar sem þekkist
„hvorki sverð né blóð”, og að þjóðir heims muni um síðir
læra að una við þann auð, sem friðsæld gefur, svo vitnað
sé til þjóðhátíðarljóðs Huldu.
Bæjarins besta sendir lesendum sfnum og landsmönnum
öllum bestu óskir um gleðilega páska.
-s.h.
ORÐ VIKUNNAD
Heimskur
Til forna hafði orðið heimskur aðra merkingu en nú.
Heimskt er heimaahð barn, segir hið fomkveðna, og það
er kjarni málsins. Að maður væri heimskur sagði ekkert
um greind hans eða hæfileika, heldur aðeins að hann
skorti þekkingu og víðsýni, að hann skorti reynslu til að
geta notfært sér greindina og hæfileikana. Heimskur var
sá sem hélt sig alla tíð í heimahögunum og fór á mis við
kynni af framandi löndum og þjóðum og siðum þeirra.
Það var því talið mikilvægt ungum mönnum að hleypa
heimdraganum, fara víða og reyna margt, og koma síðan
aftur reynslunni ríkari.
Ráðstefna WWF í Þýskalandi
Dorothee Lubecki verðlaun-
uð fyrir Vestfiarðaverkef ni
Dorothee Lubecki með verðlaunin.
Á ráðstefnu alþjóðlegu
WWF-samtakanna sem hald-
in var í Husum í Þýskalandi
fyrir skömmu fékk Dorothee
Lubecki, ferðamálafulltrúi
Vestfjarða, viðurkenningu og
verðlaun fyrir sérlega vel unn-
ið tilraunaverkefni um þróun
ferðamála áVestfjörðum. Fyr-
ir ári voru ákveðin 35 tilrauna-
verkefni varðandi ferða-
mennsku í norðlægum lönd-
um, þar af 7 á íslandi. Úr
þessum hópi voru 6 verkefni
verðlaunuð, þar af tvö á Græn-
landi, eitt í Noregi, eitt í
Þýskalandi og eitt á Sval-
barða.
Að sögn Dorothee hefur
þessi viðurkenning mikið
kynningargildi fyrirVestfirði,
því að WWF ætlar að gefa út
kynningarbæklinga um heild-
arverkefnið og kynna í því
sambandi sérstaklega þau
verkefni sem verðlaun hlutu.
Fyrsta viðtalið við Dorothee í
þeim tilgangi fór fram á ráð-
stefnunni í Husum og verður
prentað í tímariti nú í vor.
Á ráðstefnunni voru full-
trúar frá flestum Evrópuskrif-
stofum WWF og voru þar
ræddar hugmyndir um að
útbúa ferðapakka fyrir félags-
menn WWF í samvinnu við
verðlaunahafa. WWF er með-
al stærstu náttúruverndarsam-
taka veraldar og félagsmenn
mjög margir.
Vestfjarðaverkefni Doro-
thee Lubecki vakti sérstaka
athygli, þar sem hér er um
þróun á heilu landsvæði að
ræða en ekki breytingar á starfi
eins fyrirtækis. Gott tækifæri
gafst á ráðstefnunni til að
kynna verkefnið ítarlega með
glærum og litskyggnum.
Auk viðurkenningarskjals
fékk Dorothee í sinn hlut
2.500 svissneska franka (um
110.000 krónur).
Á vinnufundum á árunum
1996-97 skoðuðu fulltrúar
WWF í samvinnu við ferða-
heildsala, náttúruvemdarsam-
tök, stjórnendur, rannsóknar-
menn og fulltrúa heimamanna
ávinning og hugsanleg vanda-
mál vegna aukins ferða-
mannastraums á nyrstu svæð-
um jarðar. Afrakstur þeirrar
vinnu eru tíu reglur um ferða-
mál ásamt siðareglum fyrir
ferðaheildsala og ferðamenn
og hafa þær verið gefnar út.
Skíða vikupunktar
Það verður margt um að
vera á Skíðavikunni þetta
árið, hvort sem menn kjósa
að þeysast um á skíðum á
skíðasvæðinu í Tungudal,
renna sér á snjóþotu eða
ganga á skíðum í Tungu-
skógi, taka sundsprett sér
til heilsubótar, hlusta á tón-
list, horfa á leikrit, njóta
myndlistar, dansa og syngja
eða bara rölta um í góða
veðrinu.
Hér verður drepið á helstu
atriði Skíðavikunnar en á
það skal bent að nánari dag-
skrá verður dreift með blaði
Skíðafélags ísfirðinga sem
kemur út í þessari viku.
Fjölskyldupunktamöt
Mótið fer fram á föstudag,
laugardag og sunnudag á
skíðasvæðinu í Tungudal.
Öll fjölskyldan getur tekið
þátt í mótinu, engin aldurs-
takmörk eru í gildi og geta
því amma og afi líka tekið
þátt með barnabörnunum.
Keppt verður í svigi,
göngu og á snjóþotu en á
það skal bent að hver fjöl-
skyldumeðlimur má ekki
keppa nema einu sinni hvern
dag. Allir sem taka þátt
draga miða að keppni lok-
inni en áþeim eru 50-1000
punktar og aðeins þrír 1000
punkta miðar. Sú fjölskylda
sem safnar flestum punktum
ber sigur úr býtum og hlýtur
vegleg verðlaun frá Sjóvá-
Almennum. Verðlaunin verða
afhent kl. 16 á sunnudag í
Tungudal.
Garpamút
Garpamótin hafa öðlast
fastan sess á Skíðaviku. Þau
eru ætluð skíðafólki sem er
komið af allra léttasta skeiði,
þ.e. er 35 ára og eldri.
Garpamótið í svigi fer fram
í Tungudal á páskadag og
hefst kl. 12. Göngumótið
verður í Tunguskógi og hefst
kl. 13. Skráning er á staðnum
og eru allir „gamlir" skíða-
menn hvattir til að taka þátt.
Mjólkursamlag Isfirðinga
mun gefa keppendum fallega
keppnisboli og Gullauga gef-
ur verðlaunapeninga fyrir þrj ú
efstu sætin í hvorri grein.
Verðlaunaafhending fer fram
kl. 16 á sunnudag. Þátttöku-
gjald er kr. 1.200.
Páskaeggjamót Núa-Síríus
Páskaeggjamótið er einnig
fastur liður á Skíðaviku. Mót-
ið fer fram á laugardag kl.
11:30 og er ætlað skíðafólki
sem er 12 ára eða yngra. Keppt
verður í svigi og göngu í
Tungudal og Tunguskógi.
Skráning er á mótsstað.
Mótið fer þannig fram að
hver keppandi dregur miða
þegar hann hefur lokið keppni
og þá fyrst kemur í ljós hvort
viðkomandi hefur hlotið
páskaegg frá Nóa-Síríus, en
reikna má með að nánast allir
keppendur fái glaðning,
þ.e.a.s. fari þátttaka ekki fram
úr björtustu vonum. Þeir sem
ekki fá páskaegg verða leystir
út með smá glaðningi.
Furöufugl Skíðaviku
Föstudagurinn langi verður
skrautlegur á skíðasvæðunum
íTungudal og Tunguskógi en
þann dag eru allir hvattir til
að mæta í grímubúningi eða í
það minnsta með eilthvert
skrautlegt höfuðfat.
Ljósmyndari verður á stað-
numog tekurmyndiraf furðu-
fuglunum og verða þær
hengdar upp í skíðaskálanum
daginn eftir. Dómnefnd mun
fara um svæðið og velja
„Furðufugl Skíðavikunnar".
Vegleg verðlaun eru í boði
fyrir rétta búninginn fyrir utan
þann heiður sem fylgir þessari
skemmtilegu nafnbót.
Sama dag mun Foreldrafé-
lag Skíðafélags ísfirðinga
grilla úti í Tungudal, mála
börnin í framan og að sjálf-
sögðu mun sætindum rigna
yfir svæðið um kl. 13.
Rossignol snjóbrettamót
Snjóbrettin verða vinsælli
með hverju árinu sem Iíður.
Ungir sem aldnir taka ástfóstri
við þessa íþrótt og þeir sem
einu sinni komast upp á lagið
geta ekki hætt.
Á Skíðaviku gefst gestum
að sjá okkar efnilegustu snjó-
brettakappa leiða saman hesta
sína í orðsins fyllstu merk-
ingu. Keppt verður í tveimur
fiokkum 16 ára og yngri og
eldri en 16 ára. Föstudaginn
langa kl. 14:30 hefst keppni í
Boardercross og fer hún fram
íTungudal. Þar er um að ræða
útsláttarkeppni þar sem tveir
eða fleiri keppendur fara
saman niður brautina í einu
og sigrar sá sem kemur fyrstur
í mark.
Á laugardag kl. 13 verður
síðan keppt í stökki af palli
(BigJump).Verðlaunaafhend-
ing fer fram kl. 16 á sunnudag
í Tungudal.
Vestfjarða-Quakingurinn
Á föstudaginn langa hefst
nokkuð sérstakt íþróttamót í
félagsheimilinu á Suðureyri.
Um er að ræða keppni í tölvu-
leiknum Quake II, en hann
nýtur nú fádæma vinsælda
meðal netverja. Það er Snerpa
ehf. á Isafirði sem stendur fy rir
2
MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 1999